Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 478. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 823 — 478. mál.
til fjármálaráðherra um rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á stórfelldu skattundanskoti.
1. Hvert er áætlað umfang afleiðu- og gjaldmiðlasamninga á íslenskum bankamarkaði frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja?
2. Hvert er áætlað umfang kaupréttarsamninga á íslenskum bankamarkaði frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja?
3. Hvert er áætlað umfang niðurfellingar ábyrgða og afskrifta lána til fyrrum starfsmanna og stjórnenda fjármálafyrirtækja frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja?
4. Hvaða fjármagn hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins til ráðstöfunar til að sinna rannsóknum á hugsanlegum ógreiddum sköttum vegna afleiðu-, gjaldmiðla- og kaupréttarsamninga, niðurfellinga ábyrgða, greiðslna á einkakostnaði eigenda og stjórnenda og afskrifta lána?
5. Hversu margt starfsfólk hefur skattrannsóknarstjóri til að sinna rannsóknum á hugsanlegum ógreiddum sköttum vegna afleiðu-, gjaldmiðla- og kaupréttarsamninga, niðurfellinga ábyrgða, greiðslna á einkakostnaði eigenda og stjórnenda og afskrifta lána?
6. Hefur skattrannsóknarstjóri fengið auknar fjárveitingar eða fjölgað starfsfólki eftir hrun bankanna haustið 2008?
7. Hversu margir munu starfa við sérstakan starfshóp um skattundanskot í fjármálakerfinu og hversu mikið fjármagn munu þeir hafa til ráðstöfunar?
8. Hversu mörgum málum hefur verið vísað til skattrannsóknarstjóra frá skila- og slitastjórnum föllnu bankanna frá október 2008?
Skriflegt svar óskast.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 823 — 478. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á stórfelldu skattundanskoti.
Frá Eygló Harðardóttur.