Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 486. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 840  —  486. mál.




Fyrirspurn



til félags- og tryggingamálaráðherra um atvinnuleysi og fjölda starfa.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hvað hefur atvinnuleysi verið mikið sem hlutfall af mannafla, sundurliðað eftir mánuðum frá ársbyrjun 2009?
     2.      Hvað hefur atvinnuleysið verið mikið sem hlutfall af mannafla á framangreindu tímabili, sundurliðað eftir mánuðum, kyni og einstökum landsvæðum?
     3.      Hver hefur þróunin verið í fjölda starfa frá ársbyrjun 2009?


Skriflegt svar óskast.