Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 487. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 841  —  487. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um þróun vísitölu neysluverðs.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hver hefur verið þróun vísitölu neysluverðs frá ársbyrjun 2007 þar til nú?
     2.      Hver hefur þróunin verið á þessu tímabili hvað varðar:
                  a.      innlendar vörur,
                  b.      innfluttar vörur fyrir utan áfengi og tóbak,
                  c.      innlendar búvörur og grænmeti,
                  d.      aðrar innlendar matvörur, þar sem fram kemur verðþróun helstu vöruflokka,
                  e.      innfluttar matvörur?


Skriflegt svar óskast.