Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 350. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 864 — 350. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um hjartasjúklinga og bráðamóttöku Landspítala.
Fyrirpurnin hljóðar svo:
1. Mun tíminn sem líður frá því að t.d. hjartasjúklingur kemur á bráðamóttöku í Fossvogi og kemst í hendur sérfræðinga við Hringbraut lengjast frá því sem er við sameiningu bráðamóttöku á einn stað?
2. Hvernig verður þjónustu sem veitt er t.d. á hjartadeild Landspítala háttað eftir sameiningu bráðamóttöku?
Tvær stærstu bráðamóttökur Landspítala munu sameinast í eina bráðadeild í Fossvogi í lok mars 2010. Um er að ræða bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut og móttöku slysa- og bráðadeildar í Fossvogi. Í beinu framhaldi af sameiningunni mun hjartamiðstöð taka til starfa á Landspítala við Hringbraut í núverandi húsnæði bráðamóttöku. Í hjartamiðstöð verður veitt almenn og sérhæfð göngudeildarþjónusta, dagdeildarþjónusta og bráðaþjónusta. Sólarhringsvakt verður frá kl. 8 á mánudagsmorgnum til kl. 20 á föstudögum. Þar verður m.a. boðið upp á bráðatíma fyrir hjartasjúklinga sem veikjast aftur eða versnar af sjúkdómi sínum, þjónustu sem hjartasjúklingar hafa í ríkum mæli leitað eftir á bráðamóttökur.
Bráðaþjónusta við hjartasjúklinga og aðra bráðveika sjúklinga verður á bráðadeild í Fossvogi um helgar og á hátíðisdögum og hjartalæknar munu sinna sérfræðiráðgjöf þar. Í undirbúningi fyrir sameiningu bráðamóttaka hafa fjölmargir starfshópar unnið að endurskoðun verkferla til að bæta þjónustu og koma í veg fyrir tafir í meðferð við þessar breytingar. Þannig hefur sjónum verið beint sérstaklega að sjúklingum með bráða kransæðastíflu sem þurfa að komast í hjartaþræðingu innan 90 mínútna frá komu. Framkvæmdar hafa verið tímamælingar á slíkum ferli sem hefst í Fossvogi og sýna þær að hægt er að undirbúa sjúkling fyrir þræðingu og flutning á 10–15 mínútum, um leið og hjartaþræðingarteymi er kallað út.
Starfshópur sérfræðilækna og sjúkraflutningamanns er nú að ljúka störfum við að endurskipuleggja feril sjúklinga sem greinast með bráða kransæðastíflu í sjúkrabíl á höfuðborgarsvæðinu eða á bráðadeild í Fossvogi og markmiðið er að stytta tímann frá greiningu til nauðsynlegrar meðferðar.
Með áðurnefndum aðgerðum telur Landspítali að tryggt verði að tími frá komu sjúklings til nauðsynlegrar meðferðar verði áfram innan settra marka og muni ekki lengjast.
Hjartadeildir taka áfram á móti hjartasjúklingum sem þurfa að leggjast inn, en legurýmum fækkar með tilkomu hjartamiðstöðvar. Hjartamiðstöð annast þjónustu við sjúklinga sem kallaðir eru inn til hjartaþræðinga, gangráðsísetningar og fleiri minni hjartainngripa, en sú þjónusta er nú á hjartadeildum.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 864 — 350. mál.
Svar