Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 437. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 908  —  437. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar um þjónustu menningarstofnana við byggðir landsins.

     1.      Hvað hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands að jafnaði farið margar tónleikaferðir á ári út á land á síðustu fimm árum, flokkað eftir stöðum og hverju ári?
    Starfsárið 2004–2005:
     –      29.9.2004: Íþróttahúsið á Sauðárkróki.
     –      30.9.2004: Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi.
     –      19.3.2005: Höllin í Vestmannaeyjum.
     –      22.4.2005: Íþróttahúsið á Flúðum.

    Starfsárið 2005–2006:
     –      14.9.2005: Íþróttahúsið á Klifi, Ólafsvík.
     –      15.9.2005: Stykkishólmskirkja.
     –      11.11.2005: Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju.

    Starfsárið 2006–2007:
     –      15.9.2006: Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum.
     –      6.2.2007: Íþróttahús Síðuskóla á Akureyri.

    Starfsárið 2007–2008:
     –      5.10.2007: Íþróttahúsið í Reykjanesbæ.
     –      24.1.2008: Íþróttahúsið á Torfunesi á Ísafirði.

    Starfsárið 2008–2009:
     –      4.11.2008: Glerárkirkja á Akureyri.
     –      5.11.2008: Kirkju- og menningarmiðstöðin Fjarðabyggð, Eskifirði.
     –      6.11.2008: Íþróttahúsinu á Höfn í Hornafirði.

    Þess skal getið að nær öllum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands er útvarpað beint í Ríkisútvarpinu og ná þeir þannig til allra landsmanna. Þá hefur Sjónvarpið sýnt eftirtalda þætti:
     –      Heimsókn Sinfóníuhljómsveitar Íslands til Þýskalands (Berlínar), frumsýning 10. apríl 2009 (tvær endursýningar).
     –      Tónverkið Edda 1 – sköpun heimsins eftir Jón Leifs, frumsýning 1. janúar 2007.
     –      Manstu gamla daga, frumsýning 6. október 2006 (tvær endursýningar).
     –      Hljómsveitin Ný dönsk og Sinfóníuhljómsveit Íslands, frumsýning 12. desember 2004 (tvær endursýningar).


     2.      Hvað hefur Þjóðleikhúsið farið margar sýningarferðir út á land á síðustu fimm árum, flokkað eftir stöðum og hverju ári?
    Starfsárið 2004–2005:
     –      Græna landið: Akureyri.
     –      Grjótharðir: Fangelsið á Litla-Hrauni.
     –      Edith Piaf: Egilsstaðir.
     –      Edith Piaf: Akureyri.

    Starfsárið 2006–2007:
     –      Patrekur 1,5: Akureyri, Búðardalur, Egilsstaðir, Eskifjörður, Grundarfjörður, Húsavík, Höfn í Hornafirði, Ísafjörður, Keflavík og Sauðárkrókur.

    Starfsárið 2007–2008:
     –      norway.today: Akranes, Borgarnes, Grundarfjörður, Ísafjörður, Keflavík og Selfoss.

    Starfsárið 2008–2009:
     –      Sá ljóti: Akranes, Akureyri, Egilsstaðir, Eskifjörður, Höfn í Hornafirði, Keflavík, Sauðárkrókur, Selfoss og Vestmannaeyjar.
     –      Ísvélin: Egilsstaðir (Þjóðleikur).
     –      Eftir lífið: Egilsstaðir (Þjóðleikur).
     –      Dúkkulísa: Egilsstaðir (Þjóðleikur).

     3.      Hvað hefur leiklistarsvið Ríkisútvarpsins tekið upp mörg leikverk úti á landi á síðustu fimm árum?
    Á umræddu tímabili var eitt verk tekið upp úti á landi en það var Þumalína, sýning leikfélagsins á Sólheimum í leikstjórn Ásu Hlínar Svavarsdóttur.

     4.      Hvað hefur dagskrársvið Ríkisútvarpsins hljóðvarps unnið margar þáttaraðir fyrir Rás 1 og Rás 2 úti á landi á síðustu fimm árum?
    Dagskrársvið Rásar 1 hefur unnið eftirtalda þætti úti á landi á síðustu fimm árum:
     –      Pipar og salt – vikulegur þáttur með léttri tónlist, framleiddur á Akureyri.
     –      Vítt og breitt – morgunþáttur, sendur út frá Akureyri tvisvar í viku.
     –      Sagnaslóð – vikulegur þáttur um sögulegan fróðleik, unninn á Akureyri og Sauðárkróki.
     –      Okkar á milli – 1–2 viðtalsþættir á viku í beinni útsendingu um menn og málefni, hafa komið frá svæðisstöðvunum.
     –      Stakir hátíðaþættir hafa komið frá öllum svæðisstöðvunum.
     –      Flækingur – síðdegisþáttur, alla virka daga frá landsbyggðinni sumarið 2008.
     –      Samfélagið í nærmynd – hefur verið samtengt í þrjú ár með einum umsjónarmanni á Akureyri og hinum í Reykjavik.
     –      Vikulokin – vikulegur þáttur, einstaka þættir hafa á tímabilinu verið sendir út frá landsbyggðinni.

    Dagskrársvið Rásar 2 hefur unnið eftirtalda þætti úti á landi á síðustu fimm árum:
     –      Morgunútvarpið – daglegur þáttur, samsendur frá Akureyri og Reykjavík.
     –      A–J – vikulegur helgarþáttur, sendur út frá Akureyri.
     –      Sunnudagsmorgunn með Margréti Blöndal – í fjögur af þessum fimm árum var Margrét Blöndal með beinar útsendingar frá Akureyri alla sunnudagsmorgna.
     –      Bergsson & Blöndal – alla laugardaga, samsendur frá Akureyri og Reykjavík.

    Fyrir utan ofangreinda þætti, hafa þættir einnig verið keyptir frá m.a. Egilsstöðum og Ísafirði. Nú er t.d. í vinnslu þátturinn Aldrei fór ég suður sem verður á dagskrá um páskana og þáttaröð um tónlist sem unnin er á Egilsstöðum sem einnig verður á dagskrá um páskana.
    Hádegisútvarpið – þáttur alla virka daga, hóf göngu sína 15. mars sl., sendur út frá Akureyri á báðum rásum hljóðvarps. Auk þessu eru ellefufréttir sendar út alla virka daga frá Akureyri á báðum rásum.


     5.      Hvað hefur Listasafn Íslands sett upp margar sýningar úti á landi á síðustu fimm árum, flokkað eftir stöðum og hverju ári?
     2005.
    Sýningar:
                  –      Reykjavík; Listasafn Íslands heimsækir Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir, 107 verk á sýningunni
    Umtalsvert magn verka lánað á sýningar á landsbyggðinni:
                  –      Akureyri, Listasafnið; Skrýmsl, óvættir og afskræmingar, 9 verk lánuð
    Alls lánuð verk á ýmsar sýningar innanlands og erlendis:
                  –      235 verk lánuð á ýmsar sýningar.

     2006.
    Sýningar:
                  –      Reykjanesbær, Listasafn Reykjanesbæjar; Náttúruafl, 29 verk á sýningu.
                  –      Húsavík, Safnahúsið á Húsavík; Úrval – íslenskt landslag og náttúra – abstrakt sýn og hlutbundin, 27 verk á sýningu.
    Umtalsvert magn verka lánað á sýningar á landsbyggðinni:
                  –      Akureyri, Listasafnið; Hraunblóm, 9 verk lánuð.
    Alls lánuð verk á ýmsar sýningar innanlands og erlendis:
                  –      133 verk lánuð á ýmsar sýningar.

     2007.
    Sýningar:
                  –      Reykjanesbær, Listasafn Reykjanesbæjar; Húsafellsmyndir Ásgríms Jónssonar, 24 verk á sýningu.
                  –      Skriðuklaustur, Gunnarsstofnun; Passíusálmar, Barbara Árnason, 21 verk
    Umtalsvert magn verka lánað á sýningar á landsbyggðinni:
                  –      Hveragerði, Listasafn Árnesinga; Að flytja fjöll, 25 verk lánuð.
    Alls lánuð verk á ýmsar sýningar innanlands og erlendis:
                  –      109 verk lánuð á ýmsar sýningar.

     2008.
    Sýningar:
                  –      Seyðisfjörður, Skaftfell; Íslensk myndlist – hundrað ár í hnotskurn, 21 verk á sýningu.
    Umtalsvert magn verka lánað á sýningar á landsbyggðinni:
                  –      Hveragerði, Listasafn Árnesinga; Picasso á Íslandi, 48 verk lánuð.
                  –      Hveragerði, Listasafn Árnesinga; Úrval verka eftir Höskuld Björnsson, 5 verk lánuð.
    Alls lánuð verk á ýmsar sýningar innanlands og erlendis:
                  –      166 verk lánuð á ýmsar sýningar.

     2009.
    Sýningar:
                  –      Vefsýning, Reykjavíkurmyndir Ásgríms Jónssonar, rafræn sýning á 25 myndum úr safneign.
    Umtalsvert magn verka lánað á sýningar:
                  –      Akureyri, Listasafnið; Kreppumálarar, 15 verk lánuð.
                  –      Hveragerði, Listasafn Árnesinga; Andans konur, 26 verk lánuð
    Alls lánuð verk á ýmsar sýningar innanlands og erlendis:
                  –      148 verk lánuð á ýmsar sýningar.

     2010.
    Sýningar:
                  –      Hveragerði, Listasafn Árnesinga; Íslensk myndlist – 100 ár í hnotskurn, 59 verk lánuð.