Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 533. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 922 — 533. mál.
um undirbúning og kostnaðaráætlun að dýpkun og breikkun innsiglingarinnar í Grindavíkurhöfn og aðstöðu fyrir stórskipabryggju við Stórubót eða innan hafnar.
Alþingi ályktar að skora á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að fela Siglingastofnun Íslands að láta nú þegar gera úttekt á kostnaði við breikkun og dýpkun innsiglingar í Grindavíkurhöfn frá ytri görðum að Eyjabakka þannig að breidd rennunnar verði a.m.k. 50 metrar og dýpi um 10 metrar í allri rennunni og 7–8 metrar að Eyjabakka innan hafnar. Rannsóknir vegna þessara hugmynda hafa þegar verið unnar en eftir er að vinna nánar úr þeim. Mikilvægt er að ganga nú þegar til gerðar kostnaðaráætlunar og hugmynda að verkferli, bæði með tilliti til þess að Grindavíkurhöfn er ein mikilvægasta fiskihöfn landsins og að margvísleg áform eru uppi um iðnað í stórum stíl sem kallar á stórskipalægi.
Nauðsynlegum rannsóknum á innsiglingu og endurbótum á bryggjuplássi er lokið hjá Siglingastofnun en eftir er að vinna úr þeim, meta og gera tillögur að gerð mannvirkja og kostnaðaráætlun. Þessa þætti er mikilvægt að fá upp á borðið nú þegar, ekki síst þar sem öllum grunnrannsóknum er lokið. Rannsóknir Siglingastofnunar á innsiglingunni í Grindavíkurhöfn og aðstæðum þar voru mjög viðamiklar og hafa m.a. reynst grunnurinn að hönnun mannvirkja við gerð Landeyjahafnar við Bakka á Landeyjasandi. Þess er vænst að Siglingastofnun geti á skömmum tíma skilað hugmyndum að möguleikum bóta og uppbyggingar í Grindavík varðandi fiskiskipahöfn og aðstöðu flutningaskipa en mikilvægt er að hafa sem raunhæfasta kostnaðaráætlun til þess að vinna með að framgangi málsins.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 922 — 533. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um undirbúning og kostnaðaráætlun að dýpkun og breikkun innsiglingarinnar í Grindavíkurhöfn og aðstöðu fyrir stórskipabryggju við Stórubót eða innan hafnar.
Flm.: Árni Johnsen, Atli Gíslason, Björgvin G. Sigurðsson, Róbert Marshall,
Ásbjörn Óttarsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson,
Oddný G. Harðardóttir, Eygló Harðardóttir,
Unnur Brá Konráðsdóttir, Ragnheiður E. Árnadóttir.
Alþingi ályktar að skora á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að fela Siglingastofnun Íslands að láta nú þegar gera úttekt á kostnaði við breikkun og dýpkun innsiglingar í Grindavíkurhöfn frá ytri görðum að Eyjabakka þannig að breidd rennunnar verði a.m.k. 50 metrar og dýpi um 10 metrar í allri rennunni og 7–8 metrar að Eyjabakka innan hafnar. Rannsóknir vegna þessara hugmynda hafa þegar verið unnar en eftir er að vinna nánar úr þeim. Mikilvægt er að ganga nú þegar til gerðar kostnaðaráætlunar og hugmynda að verkferli, bæði með tilliti til þess að Grindavíkurhöfn er ein mikilvægasta fiskihöfn landsins og að margvísleg áform eru uppi um iðnað í stórum stíl sem kallar á stórskipalægi.
Greinargerð.