Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 473. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 929  —  473. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um kostnað við sóknaráætlun.


     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður stjórnvalda af 20/20 sóknaráætluninni og hvernig er gert ráð fyrir að hann skiptist eftir kjördæmum?
     2.      Hver er áætlaður stjórnunarkostnaður?
    Stýrihópur um gerð 20/20 sóknaráætlun markaði í upphafi þá stefnu að halda útlögðum kostnaði vegna sóknaráætlunarinnar í lágmarki. Hagsmunaaðilar og aðrir sem koma að vinnu við undirbúning og gerð sóknaráætlunar fá ekki greidd nefndarlaun og allur kostnaður vegna þátttöku fulltrúa ráðuneyta, sveitarfélaga eða samtaka þeirra er borinn af viðkomandi aðila og forsætisráðuneytið hefur ekki vitneskju um þann kostnað.
    Stýrihópur um gerð 20/20 sóknaráætlunar fékk 20 millj. kr. af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar á árinu 2009 og 25 millj. kr. í fjárlögum 2010 undir lið forsætisráðuneytis. Útlagður kostnaður á vegum stýrihópsins á árinu 2009 nam um 14,8 millj. kr. Þar af nam aðkeyptur sérfræðikostnaður vegna verkefnisstjórnar og samantektar á tölfræðilegum gögnum fyrir þjóðfundi á einstökum svæðum 12,8 millj. kr., fundarkostnaður 1,0 millj. kr. og ferðakostnaður 1,0 millj. kr.
    Á árinu 2010 er útlagður kostnaður á vegum stýrihópsins áætlaður um 30 millj. kr. Aðkeyptur sérfræðikostnaður vegna verkefnisstjórnar, skipulagningar og umsjónar með þjóðfundum í átta landshlutum og annarra funda á vegum verkefnisins er áætlaður um 22 millj. kr., ráðstefnu- og fundakostnaður er áætlaður um 4 millj. kr., ferðakostnaður er áætlaður um 1,5 millj. kr. og útgáfu- og prentkostnaður er áætlaður um 1,5 millj. kr.
    Beinn kostnaður stýrihópsins vegna öflunar gagna, skipulagningar, utanumhalds og úrvinnslu átta þjóðfunda í átta landshlutum er áætlaður 11–12 millj. kr. eða nálægt 1,5 millj. kr. á hvern fund. Aðkeyptur stjórnunarkostnaður nam um 7 millj. kr. á árinu 2009 og er áætlaður um 15–17 millj. kr. á árinu 2010.

     3.      Hefur starfsfólk verið ráðið í tengslum við verkefnið? Ef svo er, hve margir hafa verið ráðnir, hverjir eru þeir og á hvaða grunni voru þeir ráðnir? Voru stöðurnar auglýstar og þá hvar?
    Starfsfólk forsætisráðuneytis og annarra ráðuneyta hefur unnið með stýrihópi um gerð 20/20 sóknaráætlunar eftir því sem unnt hefur verið. Verkefnið er afar umfangsmikið og því var ákveðið að gera samning við Kristin T. Gunnarsson, ráðgjafa hjá Expectus, um verkefnisstjórn til að tryggja utanumhald og framgang verkefnisins. Samningurinn rann út í árslok 2009 en var endurnýjaður á grundvelli niðurstöðu útboðs Ríkiskaupa um kaup á ráðgjafarþjónustu fram á mitt ár 2010.
    Þá þótti nauðsynlegt að gera samning við ráðgjafa um að annast undirbúning, skipulagningu og umsjón með þjóðfundum sem haldnir voru í átta landshlutum á tímabilinu 30. janúar til 20. mars 2010. Í samstarfi við einstök ráðuneyti þurfti að afla tiltekinna tölfræðilegra upplýsinga um hvern og einn landshluta en þessi gögn voru ekki aðgengileg nema að litlu leyti. Á grundvelli rammasamnings Ríkiskaupa um kaup á ráðgjafarþjónustu var gerður samningur við ráðgjafarfyrirtækið Expectus til að annast þá vinnu. Samningurinn rann út í lok mars 2010.