Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 545. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 935  —  545. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan íslenskrar fiskveiðistjórnar.

Flm.: Ólína Þorvarðardóttir, Atli Gíslason, Helgi Hjörvar,


Jónína Rós Guðmundsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Róbert Marshall,
Skúli Helgason, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Magnús Orri Schram, Ögmundur Jónasson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan fiskveiðistjórnarkerfisins þar sem lagðar verði fram grundvallarspurningar, meðal annars hvort taka eigi upp nýtt fiskveiðistjórnarkerfi, setja sérstakt stjórnarskrárákvæði um eignarhald auðlindarinnar og innkalla aflaheimildir og endurúthluta þeim gegn gjaldi til þjóðarinnar.

Greinargerð.


    Undanfarin missiri hefur forusta Landssambands íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, efnt til ágreinings við stjórnvöld vegna yfirlýstra áforma stjórnarflokkanna um breytingar á framtíðarskipan við stjórn fiskveiða. Á sama tíma hafa skoðanakannanir sýnt ríkan vilja meðal þjóðarinnar til þess að fyrirheit ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu nái fram að ganga. Brýnt er að fá úr því skorið hver þjóðarviljinn er í þessu efni.
    Í sáttmála stjórnarflokkanna er kveðið á um mikilvægi þess að standa vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum. Einn af hornsteinum umhverfisstefnu ríkisstjórnarinnar er að þær séu nýttar með sjálfbærum hætti.
    Markmið sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar er að fiskveiðar umhverfis landið séu hagkvæmar og skapi verðmæti og störf en séu jafnframt sjálfbærar og vistvænar og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar um verndun vistkerfa, lífríkis og hafsbotns. Mörkuð er sú stefna að veiðiheimildir skuli ákvarðast af nýtingarstefnu sem byggist á aflareglu hverju sinni. Því er heitið í stjórnarsáttmálanum að með sérstöku ákvæði í stjórnarskrá verði undirstrikað að fiskstofnarnir umhverfis landið séu sameign þjóðarinnar, enda segir í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, að úthlutun veiðiheimilda myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir heimildunum.
    Þá er því einnig heitið að brugðist verði frekar við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 24. október 2007, m.a. með því að gæta atvinnufrelsis og tryggja að jafnræðis verði gætt við úthlutun afnotaréttarins og aðgengi að hinni sameiginlegu auðlind.
    Íslenskur sjávarútvegur mun gegna lykilhlutverki við þá endurreisn atvinnulífsins sem fram undan er. Það er því afar mikilvægt að skapa greininni bestu rekstrarskilyrði sem völ er á og treysta þannig rekstrargrundvöllinn til langs tíma, en jafnframt verði leitað sátta um stjórn fiskveiða eins og segir í stjórnarsáttmálanum. Meðal brýnna aðgerða sem stjórnarsáttmálinn kveður á um er að:
     –      takmarka framsal á aflaheimildum, auka veiðiskyldu og endurskoða tilfærslur á heimildum milli ára,
     –      stofna auðlindasjóð sem fer með ráðstöfun fiskveiðiréttinda í eigu þjóðarinnar, arður af rekstri sjóðsins renni til atvinnuuppbyggingar.
    Þá er því heitið að lög um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð í heild með það að markmiði að:
     –      stuðla að vernd fiskstofna,
     –      stuðla að hagkvæmri nýtingu auðlinda sjávar,
     –      treysta atvinnu,
     –      efla byggð í landinu,
     –      skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar,
     –      leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka.
    Endurskoðunin verði unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og miðað við að áætlun um innköllun og endurráðstöfun taki gildi í upphafi fiskveiðiárs 1. september 2010.
    Í samræmi við ákvæði stjórnarsáttmálans var um mitt síðasta ár skipaður starfshópur með fulltrúum stjórnmálaflokka og hagsmunaaðila í sjávarútvegi til að vinna að endurskoðuninni. Sá vinnuhópur hefur nú verið að störfum í sjö mánuði. Fulltrúar þriggja hagsmunaaðila hafa að svo stöddu sagt sig frá starfinu og óljóst er á þessari stundu hvenær eða með hvaða hætti nefndin getur lokið störfum.
    Flutningsmenn tillögunnar telja að ekki verði undan því vikist að bregðast með áþreifanlegum hætti við úrskurði mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, eins og stjórnarsáttmálinn gerir ráð fyrir. Málflutningur forsvarsmanna LÍÚ undanfarið bendir til þess að breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu muni vart nást fram í fullu samkomulagi við alla hagsmunaaðila.
    Flutningsmenn telja að full ástæða sé til þess að þjóðin fái að tjá hug sinn um þetta mikilvæga mál.
    Með þingsályktunartillögu þessari er ríkisstjórninni falið að vinna að framgangi málsins og láta orða þær spurningar sem æskilegt er að þjóðin svari.