Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 551. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 941  —  551. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um heildarkostnað ríkissjóðs af breytingum á heitum ráðuneyta.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



    Hver var heildarkostnaður ríkissjóðs af eftirtöldum breytingum á heitum ráðuneyta, sbr. reglugerð nr. 101/2009 um breytingu á reglugerð nr. 177/2007 um Stjórnarráð Íslands og hvernig sundurliðast hann eftir ráðuneytum:
     a.      dómsmála- og mannréttindaráðuneyti í stað dóms- og kirkjumálaráðuneytis,
     b.      mennta- og menningarmálaráðuneyti í stað menntamálaráðuneytis,
     c.      samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti í stað samgönguráðuneytis,
     d.      efnahags- og viðskiptaráðuneyti í stað viðskiptaráðuneytis?