Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 487. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 988  —  487. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar um þróun vísitölu neysluverðs.

     1.      Hver hefur verið þróun vísitölu neysluverðs frá ársbyrjun 2007 þar til nú?
    Samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur vísitala neysluverðs hækkað frá ársbyrjun 2007 til mars 2010 um 35,3%.

     2.      Hver hefur þróunin verið á þessu tímabili hvað varðar:
                  a.      innlendar vörur,
                  b.      innfluttar vörur fyrir utan áfengi og tóbak,
                  c.      innlendar búvörur og grænmeti,
                  d.      aðrar innlendar matvörur, þar sem fram kemur verðþróun helstu vöruflokka,
                  e.      innfluttar matvörur?

     a.      Innlendar vörur hafa hækkað um 29,5%.
     b.      Innfluttar vörur fyrir utan áfengi og tóbak hafa hækkað um 55,6%.
     c.      Innlendar búvörur og grænmeti hafa hækkað um 22,2%. Þessi liður í mælingum Hagstofu Íslands nær ekki til hreinna innlendra búvara og grænmetis og er ekki aðgreindur í útreikningi eftir því hvort um innlenda eða innflutta vöru er að ræða.
     d.      Aðrar innlendar matvörur, þar sem fram kemur verðþróun helstu vöruflokka, hafa hækkað um 35,6%. Hagstofan birtir ekki nánari sundurliðun varðandi þennan lið.
     e.      Innfluttar matvörur hafa hækkað um 62,8%.