Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 388. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 991  —  388. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um starfandi lækna.

     1.      Hvað voru margir a) útskrifaðir læknar og b) starfandi læknar hér á landi ár hvert 1999–2009?
    Samkvæmt upplýsingum frá landlækni voru 1.190 læknar starfandi á Íslandi árið 2009 eða einn læknir á hverja 267 íbúa. Á árunum 1999–2009 útskrifuðust samtals 414 læknakandídatar frá læknadeild Háskóla Íslands. Sjá nánar töflu. Til viðbótar þessu er ótalinn fjöldi íslenskra lækna sem hefur menntað sig undanfarin ár í Danmörku og Ungverjalandi, en nú um stundir munu um 110 íslenskir ríkisborgarar stunda læknanám í þessum tveimur löndum.

Fjöldi útskrifaðra lækna og starfandi
lækna á tímabilinu 1999–2009.

Ár Útskrifaðir læknar Starfandi
læknar
1999 38 938
2000 33 968
2001 34 990
2002 38 1.029
2003 30 1.047
2004 35 1.056
2005 44 1.104
2006 40 1.120
2007 36 1.157
2008 49 1.188
2009 37 1.190

    Læknafélagið hefur upplýsingar um starfandi lækna á Íslandi og erlendis en einungis fyrir árin 2009 og það sem liðið er af árinu 2010 (janúar og febrúar). Samkvæmt þeim gögnum kemur fram að læknum sem starfa erlendis fjölgaði úr 31,3% í 33,7% á umræddu tímabili (sjá töflu).

Fjöldi lækna sem starfa á Íslandi og erlendis.

Allir læknar með almennt íslenskt lækningaleyfi Læknar erlendis Hlutfall Læknar
á Íslandi
Hlutfall
Janúar og febrúar 2010 1.611 544 33,77% 1.067 66,23%
Samtals 2009 1.586 497 31,34% 1.089 68,66%
Breyting 25 47 –22
     2.      Hve hátt hlutfall íslenskra lækna sem stundað hafa framhaldsnám erlendis hefur snúið heim að námi loknu til starfa hér? Svar óskast sundurliðað eftir árum 1999–2009.
    Ekki er hægt að svara þessari spurningu sundurliðað eftir árum 1999–2009, því umbeðnar upplýsingar eru hvorki fáanlegar hjá landlæknisembættinu né annars staðar. Læknar sækja framhaldsmenntun sína víða og er ekki til nein miðlæg skráning um hvenær þeir fóru utan til framhaldsnáms eða í hvaða sérnám þeir völdu að fara. Ekki er fylgst með því hvar íslenskir læknar eru starfandi erlendis og ekki heldur hvenær þeir snúa til starfa hér á landi eftir dvöl erlendis.
    Í sameiginlegri skýrslu nefndar norrænna læknafélaga, sem í sátu fulltrúar frá öllum norrænu félögunum frá árinu 2008 og fjallar um atvinnumál lækna, kemur fram að þeir íslensku læknar sem flust hafa utan í framhaldsnám skiluðu sér flestir til baka til Íslands eftir framhaldsnám eða um 90%. Ekki eru til enn sambærilegar tölur fyrir árið 2009. Í sömu norrænu skýrslu um atvinnumál lækna kemur fram að fjöldi lækna hér á landi er í góðu hlutfalli við eftirspurn og því er þess ekki að vænta að skortur verði á læknum hér á landi.

     3.      Er útlit fyrir að erfitt verði að manna stöður lækna á sjúkrahúsum vegna aðgerða stjórnvalda árin 2010, 2011 og 2012? Ef svo er, er öryggi sjúklinga í hættu vegna læknaskorts á komandi árum?
    Landlæknir telur að ekki verði erfitt að manna stöður lækna á sjúkrahúsum næstu þrjú árin og er öryggi sjúklinga því tryggt.