Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 592. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 993  —  592. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um markaðsleyfi lyfja.

Frá Valgerði Bjarnadóttur.



    Getur ráðherra upplýst hve margar þeirra umsókna um markaðsleyfi lyfja sem höfðu verið í vinnslu umfram lögboðinn afgreiðslutíma samkvæmt svari ráðherra 24. mars sl. við fyrirspurn á þskj. 738 voru annars vegar vegna einstakra lyfja og hversu margar vegna viðbótarstyrkleika lyfs eða lyfjaforms?


Skriflegt svar óskast.