Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 438. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1010 — 438. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar um orkunotkun á landinu.
1. Hver er heildarraforkunotkun á landinu og hvernig skiptist hún í prósentum talið á milli höfuðborgarsvæðisins, Vesturlands, Vestfjarða, Norðurlands vestra, Norðurlands eystra, Austurlands, Suðurlands og Suðurnesja?
Heildarraforkuframleiðsla á landinu árið 2009 var 16.835 gígavattstundir. Stórnotkun nam 12.925 gígavattstundum og jókst um 3,9% frá fyrra ári en almenn notkun minnkaði um 2,1% og nam 3.555 gígavattstundum. Töp við flutning raforkunnar frá virkjunum til almenningsveitna og stórnotenda voru 355 gígavattstundir og minnkuðu um 11,0%.
Raforkunotkun í einstökum landshlutum, að meðtöldum dreifitöpum, skiptist með eftirfarandi hætti:
Upplýsingar um raforkunotkun og skiptingu hennar milli landshluta eru fengnar frá orkuspárnefnd.
2. Til hverra framangreindra landsvæða er áætlað að raforka úr fyrirhuguðum virkjunum fari?
Í samtengdu raforkukerfi er ekki unnt að segja nákvæmlega fyrir um flæði raforku frá virkjunum til einstakra endanlegra notenda. Orkuspárnefnd uppfærir á hverju ári raforkuspá þar sem m.a. er spáð fyrir um breytingar á almennri raforkunotkun eftir landshlutum. Í spánni er gert ráð fyrir að raforkunotkun aukist hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu en að aukningin verði minni á öðrum svæðum.
Í raforkuspá er ekki gert ráð fyrir fyrirhuguðum stóriðjuverkefnum að öðru leyti en því sem þegar hefur verið ákveðið. Orkufyrirtækin eiga í samningaviðræðum um raforkusölu til stóriðjuverkefna í öllum landshlutum nema Vestfjörðum. Þar sem hvorki liggja fyrir endanlegir samningar um raforkusölu né hvaða virkjunarkostir verða fyrir valinu er á þessu stigi ekki hægt að segja fyrir um hvert raforka frá fyrirhuguðum virkjunum fari.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1010 — 438. mál.
Svar

|
|
Almenn notkun, gwst. |
Stórnotkun, gwst. |
Alls, gwst. |
Hlutfall, % |
| Suðurnes | 262,0 | 0,0 | 262,0 | 1,56 |
| Höfuðborgarsvæðið | 1.387,5 | 2.926,0 | 4.313,5 | 25,62 |
| Vesturland | 235,7 | 5.071,2 | 5.306,9 | 31,52 |
| Vestfirðir | 224,4 | 0,0 | 224,4 | 1,33 |
| Norðurland vestra | 118,4 | 0,0 | 118,4 | 0,70 |
| Norðurland eystra | 332,1 | 26,7 | 358,9 | 2,13 |
| Austurland | 398,0 | 4.900,9 | 5.298,9 | 31,47 |
| Suðurland | 596,9 | 0,0 | 596,9 | 3,55 |
| Samtals | 3.555,0 | 12.924,8 | 16.479,8 | 97,89 |
| Flutningstöp | 355,5 | 2,11 | ||
| Alls | 16.835,4 | 100,00 |