Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 322. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1012 —  322. mál.




Svar



sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar um kostnað við fiskveiðieftirlit hjá Fiskistofu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er kostnaður við eftirlit veiðieftirlitsmanna á vegum Fiskistofu? Óskað er eftir upplýsingum annars vegar um kostnað eftirlits um borð í fiskiskipum og hins vegar við eftirlit í landi. Enn fremur er óskað eftir sundurliðun á launakostnaði, ferðakostnaði, dagpeningum og öðrum útlögðum kostnaði.

    Í eftirfarandi töflu eru teknar saman upplýsingar varðandi kostnað af eftirliti veiðieftirlitsmanna á vegum Fiskistofu. Rétt er að taka fram að tölurnar sem þar er að finna taka einungis til kostnaðar sem fylgir veiðieftirliti á vettvangi, þ.e. um borð í fiskiskipum, í löndunarhöfnum og hjá vigtunarleyfishöfum. Í þessum tölum er því ekki tilgreindur kostnaður af stjórnun eftirlitsmanna sem fram fer í höfuðstöðvum Fiskistofu í Hafnarfirði eða kostnaður sem til verður vegna nauðsynlegs undirbúnings og gagnaöflunar vegna eftirlitsstarfa á vettvangi og úrvinnslu og eftirfylgni skýrslna sem til verða vegna mála sem upp koma við vettvangseftirlit, og ekki heldur annar kostnaður af annarri starfsemi Fiskistofu sem að einhverju leyti er tengd eða til komin vegna vettvangseftirlits.

Kostnaður veiðieftirlitsmanna fyrstu 11 mánuði ársins 2009.


Eftirlit með fullvinnsluskipum
Laun og launatengd gjöld 38.233.978
Dagpeningar 217.328
Ferðakostnaður 359.665
Annar kostnaður 530.311
Tekjur vegna veru eftirlitsmanna um borð –11.434.500
Samtals eftirlit með fullvinnsluskipum 27.906.782
Land- og sjóeftirlit
Laun og launatengd gjöld – fastráðnir eftirlitsmenn 164.343.295
Laun og launatengd gjöld – lausráðnir eftirlitsmenn 8.847.430
Dagpeningar 15.566.022
Ferðakostnaður 3.080.788
Annar kostnaður 4.314.364
Skipaleiga 2.918.168
Samtals veiðieftirlit 199.070.067
Rekstur bifreiða 10.142.863
Húsaleiga
Stykkishólmur 1.265.100
Ísafjörður 1.336.154
Akureyri 1.169.800
Höfn 1.421.203
Grindavík 2.042.441
Vestmannaeyjar 901.871
Hafnarfjörður, 20% 8.228.729
Samtals húsaleiga 16.365.298
Heildarkostnaður 237.119.712