Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 602. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1030 — 602. mál.
Fjárlaganefnd hefur fjallað um skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármálastjórn ráðuneyta og skil rekstraráætlana sem gefin var út í júní 2009.
Í ársbyrjun 2009 ákvað Ríkisendurskoðun að gera átak í eftirliti með fjármálastjórn ráðuneyta og stofnana. Stofnunin kannaði einkum skil á rekstraráætlunum til ráðuneyta, skráningu þeirra í bókhaldskerfi ríkisins og eftirlit með framkvæmd þeirra. Einnig voru kannaðir vissir þættir innra eftirlits og hvort ráðuneytin hefðu reynt að meta áhrif lægri fjárveitinga á magn og gæði þjónustu.
Í ljós kom að 10 af 233 áætlunum hafði verið skilað innan tímamarka sem kveðið er á um í reglugerð, þ.e. fyrir árslok 2008. Fjórtán áætlanir höfðu verið samþykktar innan tímamarka sem um samþykkt gilda, þ.e. fyrir miðjan janúar. Að mati Ríkisendurskoðunar er skýringin sú að fjárlög voru samþykkt seint. Í byrjun maí voru 10 áætlanir enn ósamþykktar.
Ekki eru til samræmdar reglur um hvernig standa skuli að skráningu ársáætlana í bókhaldskerfi ríkisins Orra, en Ríkisendurskoðun telur að samþykktar rekstraráætlanir eigi undantekningarlaust að skrá. Af 222 samþykktum rekstraráætlunum höfðu 179 verið skráðar í byrjun maí eða um 81%. Eftirlitsaðilar gátu því ekki með góðu móti fylgst með því að 39 stofnanir störfuðu í samræmi við samþykktar áætlanir. Einkum er ámælisvert að mati Ríkisendurskoðunar að aðalskrifstofur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins höfðu ekki skráð áætlanir fyrir aðalskrifstofur sínar. Fjárlaganefnd tekur undir álit Ríkisendurskoðunar þar sem segir: „augljóst er að allt samtímaeftirlit utanaðkomandi eftirlitsaðila með rekstri er marklaust ef þeir hafa ekki aðgang að áætlunum.“ Fjárlaganefnd telur að aðalskrifstofur ráðuneytanna eigi að vera öðrum til fyrirmyndar í þessum málum.
Í skýrslunni eru tilgreindar sjö ábendingar til ráðuneytanna sem allar eru góðra gjalda verðar. Ríkisendurskoðun bendir m.a. á að hafi forstöðumaður ekki gert rekstraráætlun innan tímamarka beri ráðuneyti að gera hana og að taka ætti þá reglu upp í reglugerð um framkvæmd fjárlaga. Fjárlaganefnd Alþingis telur að ábyrgðin sé enn hjá forstöðumanni en ráðuneytunum beri að ganga á eftir því að rekstraráætlunin sé gerð.
Ríkisendurskoðun komst að raun um að rekstraráætlanir í Orra eru ekki ávallt þær sömu og stofnanir nota sjálfar og ráðuneytin miða við í sínu eftirliti. Fjárlaganefnd telur mikilvægt að samræmi sé á milli þeirra áætlana sem notaðar eru í ríkisrekstrinum og að starfað sé eftir þeim áætlunum sem skráðar eru í Orra.
Fjárlagaliðir í fjárlögum 2009 voru 463 og bar að skila rekstraráætlunum fyrir 233 liði. Áætlanagerð fyrir millifærsluliði og aðra liði sem stýrt er beint af ráðuneytunum reyndist afar misjöfn milli ráðuneyta og taldi Ríkisendurskoðun því ástæðu til að samræma hana.
Athugun Ríkisendurskoðunar leiddi í ljós dæmi um að sértekjur stofnana væru ekki bókaðar jafnóðum og þær mynduðust: „Eins kom fram í samtölum við starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins að færsla bókhalds er of hæg til að samtímaeftirlit sé skilvirkt.“ Að mati fjárlaganefndar er of mikill losarabragur í bókhaldsmálum ríkisins miðað við þessar lýsingar og ber forstöðumönnum að sjá til þess að úr verði bætt. Fjárlaganefnd hyggst bæta möguleika sína á eftirliti og hefur nefndin samþykkt einróma og lagt fram tillögu til þingsályktunar um að Alþingi feli fjármálaráðherra að sjá til þess að fjárlaganefnd verði veittur beinn skoðunaraðgangur að þeim bókhalds- og upplýsingakerfum ríkisins sem vistuð eru hjá Fjársýslu ríkisins.
Brögð eru að því að ráðuneyti veiti styrki án þess að gerðir séu samningar þar sem fram koma þær kröfur sem gerðar eru til samningsaðila en um það segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar: „Þetta gildir m.a. um styrki sem fjárlaganefnd Alþingis veitir. Mörg ráðuneyti telja að eftirfylgni með styrkjum fjárlaganefndar sé ekki á þeirra verksviði.“ Í þessu sambandi bendir fjárlaganefnd á að hún hefur gert kröfu um að hafi verkefni hlotið styrk áður þurfi að fylgja greinargerð um ráðstöfun styrks við næstu umsókn. Einnig hefur nefndin bent á að Ríkisendurskoðun sé heimilt að kalla eftir greinargerðum um ráðstöfun styrkja og annarra framlaga af ríkisfé og meta hvort þau hafi skilað þeim árangri sem að var stefnt. Því hefur nefndin treyst á að í innra eftirliti ráðuneytanna sé fylgst með því að formskilyrðum sé framfylgt áður en styrkirnir eru greiddir út. Nefndin telur að ráðuneytin beri ábyrgð á framkvæmd fjárlaga og þeim fjárheimildum sem til ráðstöfunar eru, þ.m.t. þeim styrkjum sem Alþingi ákvarðar.
Ráðuneytin virðast samkvæmt skýrslunni almennt ekki hafa skoðað ítarlega hve raunhæfar tekjuáætlanir sértekna eru. Að mati fjárlaganefndar er hér um ágalla á áætlanagerð ríkisins að ræða sem forstöðumenn verða að bregðast við.
Í skýrslunni segir að flest ráðuneytin hafi gert ráð fyrir að stofnanir sem áttu ónýttar fjárheimildir í lok síðasta árs fengju að nýta þær án takmarkana á árinu 2009. Sem dæmi má taka að í skýrslunni segir að rekstrarstjóri utanríkisráðuneytis segi að ekki komi „til greina að heimild stofnana til að ráðstafa vannýttum heimildum verði takmörkuð.“ Hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu fá stofnanir að nýta ónýttar fjárheimildir að mestu leyti á yfirstandandi ári og hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu „er ljóst að stofnanir sem áttu ónýttar fjárheimildir í lok síðasta árs fá að nýta þær án takmarkana á þessu ári.“ Svipuð sjónarmið koma fram hjá öðrum ráðuneytum. Í því sambandi vill fjárlaganefnd geta þess að flutningur ónotaðra fjárheimilda er heimilaður í lokafjárlögum ár hvert og því er það Alþingis að ákveða hvort flutningurinn er heimill. Hins vegar segir í 2. mgr. 37. gr. laga nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins: „Að fengnu samþykki hlutaðeigandi ráðherra og fjármálaráðherra er heimilt að geyma ónýttar fjárveitingar í lok reikningsárs. Með sama hætti er heimilt að draga skuldir frá fyrra ári frá fjárveitingum ársins.“ Lokafjárlög hafa yfirleitt ekki verið afgreidd nógu tímanlega til að nýtast út frá sjónarmiði þeirra sem vinna eftir rekstraráætlunum og þurfa að taka tillit til ónotaðra fjárheimilda. Því þyrftu lokafjárlög að vera samþykkt mun fyrr ár hvert. Að öðrum kosti mun yfirfærsla fjárheimilda ekki vera í því formi sem afgreiðsla lokafjárlaga gerir ráð fyrir. Það er því mat fjárlaganefndar að setja þurfi skýrari reglur um yfirfærslu fjárheimilda til að forstöðumenn ríkisstofnana viti fyrr hvað til ráðstöfunar er.
Yfirleitt höfðu möguleg áhrif lægri fjárveitinga og aukins álags á þjónustu og rekstur ekki verið metin sérstaklega.
Ríkisendurskoðun treystir sér ekki til að leggja mat á hvort endurnýja eigi samninga um árangursstjórnun og þá með hvaða hætti, en markmið þeirra var að auka skilvirkni og árangur með skýrri forgangsröðun verkefna og styrkja samskipti ráðuneyta og stofnana. Stofnunin hyggst hefja úttekt á kerfinu síðar á árinu. Fjárlaganefnd telur mikilvægt að árangur af starfsemi ríkisins sé mældur árlega á sem fjölbreyttastan hátt og að þær mælingar séu hluti af eftirliti með framkvæmd fjárlaga, eftir því sem við verður komið.
Margar fleiri athugasemdir og ábendingar er að finna í skýrslunni. Fjárlaganefnd telur að skýrslan eigi að geta nýst vel við að styrkja eftirlit með notkun fjárveitinga ríkisins. Þar sem margar þessara ábendinga hafa komið áður fram í skýrslum Ríkisendurskoðunar virðist vanta farveg til að koma þeim til framkvæmda eða haldbær rök til að gera það ekki. Nefndin telur að framkvæmdarvaldinu beri að skapa þennan vettvang. Jafnframt telur nefndin að ríkisaðilar eigi í auknum mæli að leggja mat á þann árangur sem þeir ná og setja sér raunhæf markmið til nokkurra ára í senn. Þannig mundi eftirlit við framkvæmd fjárlaga ekki einungis vera með fjárveitingunum heldur þeim samfélagslega árangri sem felst í rekstrinum.
Fjárlaganefnd hefur skipað starfshóp til að fara yfir fjárlagaferlið og mun hann taka þau mál til athugunar. Markmiðið er að styrkja fjárlagavinnuna og eftirlit með framkvæmd fjárlaga. Hópurinn mun við vinnu sína styðjast við skýrslu frá OECD um þessi mál sem og skýrslu frá AGS og önnur gögn sem talið er að nýtist við þessa vinnu.
Til að kanna hvernig skil rekstraráætlana hefðu gengið á árinu 2010 og mál þeim tengd sendi fjárlaganefnd Alþingis öllum aðalskrifstofum ráðuneytanna bréf dagsett 23. febrúar 2010 þar sem spurt var um stöðu þessara mála. Í ljós kom að algengt var að aðalskrifstofurnar sjálfar hefðu ekki gengið frá áætlun sinni fyrir tilskilin tímamörk og störfuðu samkvæmt drögum að áætlun þar til áætlun hefði verið samþykkt. Þá áttu margar stofnanir eftir að skila og fjölda áætlana var eftir að skrá í bókhalds- og eftirlitskerfi ríkisins.
Fjárlaganefnd tekur undir gagnrýni Ríkisendurskoðunar á þeim seinagangi sem er á frágangi áætlana miðað við gildandi reglur. Þó ber að taka tillit til þess að aðalskrifstofur veittu í upphafi árs 2010 í nokkrum tilfellum viðbótarskilafrest þar sem ekki var búið að yfirfæra fjárheimildir milli ára. Nefndin beinir þeim tilmælum til aðalskrifstofa ráðuneyta að bæta þegar úr þeim annmörkum sem nefndir hafa verið og telur að þeim beri að standa betur að málum á næsta ári.
Í skýrslunni segir einnig: „Ríkisendurskoðun telur að breyta eigi reglugerð um framkvæmd fjárlaga á þann veg að skylt verði að gera rekstraráætlanir fyrir alla fjárlagaliði aðra en tilfærslur og greiðslur til aðila utan ríkisins. Þar verði áætlanir um greiðsludreifingu látnar duga.“ Fjárlaganefnd tekur undir þetta.
Fjárlaganefnd Alþingis spurði skrifstofu- og rekstrarstjóra aðalskrifstofa ráðuneytanna um þá niðurstöðu Ríkisendurskoðunar að rekstraráætlanir í Orra væru ekki ávallt þær sömu og stofnanir nota sjálfar og ráðuneytin miða við í sínu eftirliti. Óskað var upplýsinga um hvaða stofnanir væri átt við innan ráðuneytisins. Jafnframt var óskað eftir skýringum á því hvers vegna þetta verklag væri látið viðgangast hjá ráðuneytinu, væri því til að dreifa. Yfirleitt könnuðust aðalskrifstofurnar ekki við umrætt verklag. Þó benti iðnaðarráðuneytið á að áætlanir Byggðastofnunar væru ekki skráðar í Orra og um skýrslugerð Fjármálaeftirlitsins, Seðlabanka Íslands og Ríkisábyrgðarsjóðs gilti reglugerð nr. 347/2000. Ekki voru nefnd fleiri bein dæmi. Fjárlaganefnd telur mikilvægt, eins og áður hefur komið fram, að einungis sé notuð ein samræmd áætlun hjá hverri stofnun og fjárlagalið og hún sé skráð í bókhaldskerfið. Stofnanir geta þá ekki borið fyrir sig að skýringin á fráviki milli fjárheimilda og niðurstöðu bókhalds stafi af því að greiðsludreifing í áætlunum ríkisins sé röng. Var það nokkuð algeng skýring á frávikum sem bárust við fyrirspurnum fjárlaganefndar Alþingis um framkvæmd fjárlaga á milli ársfjórðunga árið 2008. Að mati nefndarinnar er eðlilegt að fjármála- og rekstrarstjórar ráðuneytanna leitist sameiginlega við að bæta áætlanagerð og eftirlit með fjármunum ríkisins eins og kostur er.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1030 — 602. mál.
Álit fjárlaganefndar
um skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármálastjórn ráðuneyta
og skil rekstraráætlana.

Alþingi, 27. apríl 2010.
Guðbjartur Hannesson,
form.
Anna Margrét Guðjónsdóttir.
Ásbjörn Óttarsson.
Björn Valur Gíslason.
Kristján Þór Júlíusson.
Oddný G. Harðardóttir.
Þór Saari.
Þuríður Backman.