Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 592. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1031 — 592. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Valgerðar Bjarnadóttur um markaðsleyfi lyfja.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Getur ráðherra upplýst hve margar þeirra umsókna um markaðsleyfi lyfja sem höfðu verið í vinnslu umfram lögboðinn afgreiðslutíma samkvæmt svari ráðherra 24. mars sl. við fyrirspurn á þskj. 738 voru annars vegar vegna einstakra lyfja og hversu margar vegna viðbótarstyrkleika lyfs eða lyfjaforms?
15. apríl sl. höfðu 223 umsóknir um markaðsleyfi lyfja verið í vinnslu umfram lögboðinn afgreiðslutíma hjá Lyfjastofnun og 478 umsóknir um viðbótarstyrkleika eða lyfjaform.
Staða umsókna skipt eftir umsóknarferlum 15. apríl 2010 var:
Umsóknir um landsmarkaðsleyfi komnar á tíma: 59 lyf og að auki 124 viðbótarlyfjaform eða viðbótarstyrkleikar.
Umsóknir um markaðsleyfi með gagnkvæmri viðurkenningu: 164 lyf og að auki 354 viðbótarlyfjaform eða viðbótarstyrkleikar.
Vakin er athygli á því að þessar tölur eru aðeins breyttar frá munnlegu svari ráðherra 24. mars sl. við fyrirspurn um sama efni á þskj. 738 þar sem framangreindar tölur sýna stöðu umsókna 15. apríl en þá höfðu um 30 umsóknir sem þar er getið um verið afgreiddar.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1031 — 592. mál.
Svar