Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 430. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1032 — 430. mál.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Þórs Saaris um erfiða fjárhagsstöðu sveitarfélaga.
1. Hversu mörg sveitarfélög eru eða hafa verið til sérstakrar athugunar hjá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna erfiðrar fjárhagsstöðu?
Alls hafa tíu sveitarfélög verið til sérstakrar skoðunar af hálfu eftirlitsnefndar, en það eru sveitarfélögin Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Sveitarfélagið Álftanes, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Borgarbyggð, Grundarfjarðarbær, Bolungarvík, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað. Með hliðsjón af niðurstöðu nefndarinnar byggðri á fjárhagslegri stöðu einstakra sveitarfélaga, ársreikningum þeirra og fjárhagsáætlunum, má skipta sveitarfélögum sem nefndin hefur haft afskipti af í þrjá flokka. Í fyrsta lagi sveitarfélög sem hafa þurft á sérstakri eftirlitsmeðferð að halda og fjárhagslegum stuðningi. Í öðru lagi sveitarfélög sem nefndin telur mikilvægt að fylgjast áfram vel með fjárhagslegri framvindu hjá. Í þriðja lagi sveitarfélög sem nefndin hefur talið ástæðu til að vara við slæmri skuldastöðu, en hefur ekki talið þörf á því að svo komnu máli að óska frekari upplýsinga.
Í fyrsta flokkinn falla sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupstaður og Sveitarfélagið Álftanes. Samningur var gerður milli eftirlitsnefndar og Bolungarvíkurkaupstaðar um fjárhagslegar aðgerðir og sérstakt eftirlit. Samningurinn gildir til 31. desember 2011 og bindur nefndin vonir við að hann skili sveitarfélaginu þeirri fjárhagslegu sjálfbærni sem honum er ætlað. Einnig var gerður samningur við Sveitarfélagið Álftanes um fjárhagslegar aðgerðir og áætlanagerð. Sú vinna leiddi hins vegar í ljós að fjárhagsstaða sveitarfélagsins var svo alvarleg að skipa þurfti sveitarfélaginu fjárhaldsstjórn, sem tók til starfa 8. febrúar sl.
Í öðrum flokki eru sveitarfélögin Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Reykjanesbær, Borgarbyggð, Grundarfjarðarbær, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað. Nefndin hefur sent þessum sveitarfélögum bréf og gert athugasemdir um skuldsetningu þeirra og óskað jafnframt eftir því að fá sendar ársfjórðungslegar upplýsingar úr bókhaldi þeirra.
Þriðja flokknum tilheyrir Sandgerðisbær sem hefur fengið athugasemd frá nefndinni um skuldsetningu en nefndin mun þó ekki aðhafast frekar að sinni.
2. Hvaða sveitarfélög hafa á síðustu 12 mánuðum verið aðvöruð af eftirlitsnefndinni, sbr. 2. mgr. 74. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998?
Eins og fram kom hér að framan hafa tíu sveitarfélög fengið viðvaranir með vísan til 2. mgr. 74. gr. sveitarstjórnarlaga, þar af níu sveitarfélög sl. 12 mánuði. Jafnframt er rétt að geta þess að afgreiði sveitarstjórn fjárhagsáætlun, ársreikning eða þriggja ára áætlun með halla skal hún, sbr. 2. mgr. 5 gr. reglugerðar nr. 374/2001, með síðari breytingum, senda eftirlitsnefnd greinargerð um ástæður hallans, aðgerðir til að bæta þar úr og áætlun um framtíðarhorfur í rekstri sveitarfélagsins. Alls voru 37 sveitarsjóðir (A hluti) reknir með halla á árinu 2008 og bárust nefndinni greinargerðir þar að lútandi. Þá lögðu 34 sveitarfélög fjárhagsáætlun ársins 2009 fram með halla. Allt eru þetta gögn sem eftirlitsnefnd fer yfir og eru, eftir atvikum, tilefni til frekari samskipta.
3. Hvaða sveitarfélög hafa á síðustu 12 mánuðum tilkynnt eftirlitsnefndinni fjárþröng, sbr. 1. mgr. 75. gr. sveitarstjórnarlaga?
Aðeins eitt sveitarfélag hefur tilkynnt um fjárþröng með vísan til 1. mgr. 75. gr. sveitarstjórnarlaga síðustu 12 mánuði, en það er Sveitarfélagið Álftanes. Áður hafði Bolungarvík tilkynnt nefndinni um fjárþröng.
4. Hefur eftirlitsnefndin á síðustu 12 mánuðum látið fara fram rannsókn á fjárreiðum og rekstri sveitarfélags, sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 374/2001 um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga með síðari breytingum? Ef svo er, í málefnum hvaða sveitarfélaga?
Í kjölfar þess að Sveitarfélagið Álftanes tilkynnti um að það væri komið í fjárþröng lét nefndin fara fram ítarlega athugun á fjárhagsstöðu þess. Sú athugun leiddi í ljós alvarlega fjárhagsstöðu sem leiddi til úrræða skv. 76. gr. og síðar 77. gr. sveitarstjórnarlaga. Ekki hefur verið ráðist í frekari rannsóknir á fjárráðum og rekstri sveitarfélags, enda hefur ekki reynt á að viðvörunum nefndarinnar hafi ekki verið sinnt, sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 374/2001, með síðari breytingum.
5. Hefur eftirlitsnefndin á síðustu 12 mánuðum þurft að grípa til aðgerða, sbr. 3. mgr. 75. gr. sveitarstjórnarlaga? Ef svo er, í málefnum hvaða sveitarfélaga?
Í sjálfu sér hefur eftirlitsnefnd ekki talið þörf á að grípa til sérstakra aðgerða á grundvelli heimildarákvæðis í 3. mgr. 75. gr. sveitarstjórnarlaga sl. 12 mánuði.
6. Við hvaða sveitarfélög hefur eftirlitsnefndin gert samninga um eftirlitsaðgerðir á síðustu 12 mánuðum, sbr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 374/2001?
Eingöngu hefur verið gerður samningur um eftirlitsaðgerðir við Sveitarfélagið Álftanes.
7. Hvaða sveitarfélög hafa verið tekin til frekari skoðunar á síðustu 12 mánuðum eftir greiningu eftirlitsnefndar á reikningsskilum og fjárhagsáætlunum sveitarfélaga?
Eins og fram hefur komið er um að ræða sveitarfélögin Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Sveitarfélagið Álftanes, Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ, Borgarbyggð, Grundarfjarðarbæ, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað.
8. Hverjar voru áætlaðar skuldir og langtímaskuldbindingar þeirra sveitarfélaga sem eru eða hafa verið til sérstakrar athugunar hjá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, sbr. 1. tölul. í árslok 2009? Hversu hátt hlutfall skulda þessara sveitarfélaga var í erlendri mynt í árslok 2009?
9. Hverjar eru framangreindar stærðir skv. 8. tölul. miðað við höfðatölu fyrir hvert sveitarfélaganna?
Sundurliðun óskast eftir nöfnum sveitarfélaganna.
Sveitarfélög þurfa ekki að skila ársreikningum 2009 til ráðuneytisins fyrr en fyrir 15. júní ár hvert og því liggja upplýsingar ekki fyrir hvað þetta atriði varðar.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1032 — 430. mál.
Svar