Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 603. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1033  —  603. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um skipan nefndar til að rannsaka fall sparisjóða og erfiðleika íslenska sparisjóðakerfisins.

Flm.: Ásmundur Einar Daðason, Lilja Mósesdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson,


Björn Valur Gíslason, Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir.



    Alþingi ályktar að fela forsætisnefnd Alþingis að skipa nefnd til að rannsaka íslenska sparisjóðakerfið. Nefndinni verði ætlað að leita sannleikans um aðdraganda og orsök falls sparisjóða hér á landi og kanna þá alvarlegu stöðu sem margir þeirra eru í. Þá leggi nefndin mat á hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi á Íslandi og eftirlit með henni, og hverjir kunni að bera ábyrgð á því. Rannsóknin nái að minnsta kosti aftur til ársins 2001 eða aftur fyrir þann tíma sem sala stofnfjárhluta á yfirverði var leyfð.

Greinargerð.


    Með þingsályktunartillögu þessari er forsætisnefnd Alþingis falið að skipa nefnd til að rannsaka íslenska sparisjóðakerfið. Rannsóknin verði byggð á lögum um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða, nr. 142/2008, eftir því sem við á. Skal nefndin starfa samkvæmt sambærilegum heimildum og hafa það hlutverk að skoða þær lagabreytingar sem gerðar hafa verið á starfsemi sparisjóða og ákvarðanir tengdar þeim, leggja mat á hvort mistaka eða vanrækslu hafi gætt við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi og starfsemi sparisjóða á Íslandi sem og eftirlit og ábyrgð. Nefndin skal í þessu skyni:
     –      Varpa sem skýrustu ljósi á aðdraganda og orsakir þess vanda íslenska sparisjóðakerfisins sem meðal annars var litið til við setningu laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl.
     –      Afla upplýsinga um starfsemi sparisjóðanna sem geta skýrt vanda þeirra, svo sem um fjármögnun og útlánastefnu þeirra, eignarhald, aukningu á stofnfé, arðgreiðslur, kaup og sölu á stofnfé, hlutafélagavæðingu sparisjóða, endurskoðun og tengsl þeirra við atvinnulífið.
     –      Gera úttekt á reglum íslenskra laga um fjármálamarkaðinn og tengda atvinnustarfsemi með sérstöku tilliti til sparisjóðakerfisins og bera saman við reglur annarra landa og framkvæmd stjórnvalda á þeim.
     –      Leggja mat á hvernig staðið hafi verið að eftirliti með fjármálastarfsemi hér á landi, með tilliti til sparisjóðakerfisins, á síðustu árum og upplýsingagjöf af því tilefni milli stjórnvalda, til ríkisstjórnar og til Alþingis.
     –      Koma með ábendingar og tillögur að breytingum á lögum, reglum, vinnubrögðum og skipulagi opinberrar stjórnsýslu sem miða að því að gera sparisjóðum kleift að starfa á þeim félagslegu forsendum sem þeim upphaflega var ætlað að gera.
     –      Gera ráðstafanir til þess að hlutaðeigandi yfirvöld fjalli um mál þar sem grunur vaknar við rannsókn nefndarinnar um refsiverða háttsemi eða brot á starfsskyldum og gera jafnframt grein fyrir þeim málum í skýrslu til Alþingis.
     –      Skila Alþingi skýrslu um rannsóknina ásamt þeim samantektum og úttektum sem nefndin ákveður að láta vinna í þágu rannsóknarinnar.
    Hinn 22. apríl sl. tók Fjármálaeftirlitið ákvarðanir um að taka yfir starfsemi Byrs – sparisjóðs og Sparisjóðsins í Keflavík. Þessar ákvarðanir voru teknar eftir að stjórnir sjóðanna höfðu farið fram á að Fjármálaeftirlitið tæki yfir starfsemi þeirra þar sem samningaviðræður við kröfuhafa þeirra lauk án árangurs. Í mars 2009 tók Fjármálaeftirlitið yfir rekstur SPRON og Sparisjóðabankans, móðurbanka sparisjóða um allt land. Voru allar innstæður viðskiptavina SPRON og nb.is færðar til Nýja Kaupþings og gefið var út skuldabréf sem tryggt var með veði í öllum eignum SPRON. Í júlí 2009 var enn fremur skipuð bráðabirgðastjórn yfir Sparisjóði Mýrasýslu en á mánuðunum fyrir hrun 2008 höfðu verið uppi hugmyndir um að Kaupþing legði til nýtt stofnfé í sparisjóðinn og eignaðist 70% eignarhlut í honum, aðrir fjárfestar legðu fram frekara stofnfé og færu með um 10% eignarhlut en Borgarbyggð héldi um 20% eignarhlut. Þessar áætlanir náðu ekki fram að ganga fyrir hrunið í október 2008. Í apríl tók Nýja Kaupþing yfir lánasafn Sparisjóðs Mýrasýslu og varð jafnframt eigandi þriggja norðlenskra sparisjóða, þ.e. Siglufjarðar og Skagafjarðar, sem saman mynda Afl Sparisjóð, og Sparisjóðs Ólafsfjarðar. Þessir sparisjóðir höfðu áður verið að mestu í eigu Sparisjóðs Mýrasýslu. Af þessu má sjá að sparisjóðirnir hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum í undangengnum áföllum á fjármálamörkuðum heimsins og voru merki þess orðin ljós fyrir október 2008 og setningu neyðarlaganna.
    Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna 2008 er ekki sérstaklega fjallað um málefni sparisjóðakerfisins en þó er talið að það verðskuldi slíka rannsókn. Í rannsókn sem þessari á íslenska sparisjóðakerfinu er mikilvægt að farið verði töluvert aftur í tímann og skoðaðar breytingar á lagaumhverfi sparisjóðanna og rekstrarformi þeirra og ákvarðanir eftirlitsaðila og túlkun þeirra á gildandi reglum um starfsumhverfi þeirra. Nauðsynlegt er að metið verði hvaða áhrif framangreint hafi haft á stöðu sparisjóðanna og rekstur almennt og jafnframt með tilliti til þeirra samfélagssjónarmiða sem þeir störfuðu eftir. Rannsóknin á ekki að einskorðist við aðdraganda hrunsins í október 2008 heldur taka einnig til tímans eftir hrun enda eru áhrif hrunsins enn að koma í ljós hjá sparisjóðum um allt land. Markmið rannsóknarinnar skal að öðru leyti vera sambærilegt því sem um getur í 1. gr. framangreindra laga nr. 142/2008 og sömu reglur gilda um skipan rannsóknarnefndarinnar og störf hennar, rannsóknarheimildir hennar og málsmeðferð og giltu um þá rannsóknarnefnd sem starfaði á grundvelli laganna. Mikilvægt er að ítarleg rannsókn verði gerð á umhverfi sparisjóða og er því ekki heppilegt að nýta heimildir 4. mgr. 15. gr. framangreindra laga sem kveður á um heimild þingmannanefndar sem kosin var á Alþingi til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndarinnar til að setja af stað framhaldsrannsókn þar sem þingmannanefndin á að skila niðurstöðu sinni á núverandi löggjafarþingi og gæfist því síður tími til að bregðast við niðurstöðum framhaldsrannsóknarinnar.