Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 605. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1044  —  605. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um jafnræði lífsskoðunarfélaga, trúarlegra sem veraldlegra.

Flm.: Auður Lilja Erlingsdóttir, Margrét Pétursdóttir, Lilja Mósesdóttir,


Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Skúli Helgason, Birgitta Jónsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela dómsmála- og mannréttindaráðherra að hefja vinnu sem tryggi jafnrétti og jöfn tækifæri lífsskoðunarfélaga, jafnt trúarlegra sem veraldlegra. Í þessu skyni láti ráðherra meðal annars undirbúa lagabreytingar og gerð frumvarps til sérstakra laga um stöðu lífsskoðunarfélaga.

Greinargerð.


    Í lífsskoðunum felst áhrifavald og lífsskoðunarfélög eiga sinn þátt í að móta siðferði þegnanna.
    Með lífsskoðunarfélagi er átt við félag sem með frjálsri aðild félaga hefur eftirfarandi að markmiðum sínum og starfsvettvangi:
     a.      Siðferði og siðfræði: Umræða um siðferðisgildi og hvernig best er að leysa siðferðisleg álitamál.
     b.      Fjölskyldan og félagslegar athafnir: Framkvæmd félagslegra athafna fjölskyldunnar (ferming, gifting, nafngjöf og útför) á tímamótum samkvæmt lífssýn félaga.
    Núgildandi löggjöf á Íslandi viðurkennir eingöngu trúfélög sem lífsskoðunarfélög, þ.e. félög sem fjalla um siðferði og lífsskoðanir og sjá meðlimum fyrir þjónustu við félagslegar athafnir líkt og nafngjöf, fermingu, giftingu og útför. Trúlausir einstaklingar um allan heim hafa í vaxandi mæli viljað sjá um þessar félagslegu athafnir sjálfir og hafa víða myndað veraldleg lífsskoðunarfélög í þeim tilgangi undanfarin 60 ár.
    Veraldleg lífsskoðunarfélög víða í Evrópu njóta sömu stöðu og trúarleg lífsskoðunarfélög. Algengust og fjölmennust eru félög siðrænna húmanista, en einnig eru til félög sem kenna sig við skynsemishyggju, efahyggju, siðrækt og fleira því skylt. Í Noregi starfar til að mynda félag húmanista sem er stærsta veraldlega lífsskoðunarfélagið í heiminum með um 75.000 meðlimi og fékk það sömu stöðu gagnvart ríkinu og trúarleg lífsskoðunarfélög árið 1981. Félagið er í dag stærsta lífsskoðunarfélag Noregs fyrir utan ríkiskirkjuna.
    Í dag er íslenskum þegnum mismunað eftir því hvort þeir aðhyllast trú sem felur í sér átrúnað á yfirnáttúruleg fyrirbrigði eða hvort þeir aðhyllast lífsviðhorf óháð trúarsetningum.

Mismunun á sviði lagalegra vígslna.
    Samkvæmt lögum geta trúfélög vígt hjúskap lagalega, en veraldleg lífsskoðunarfélög ekki.

Fjárhagsleg mismunun tryggð með lögum.
    Þjóðkirkjan er fjármögnuð í fyrsta lagi með framlagi úr ríkissjóði til greiðslu launakostnaðar samkvæmt sérstökum samningi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar. Í öðru lagi renna sóknargjöld til þjóðkirkjunnar á sama hátt og til annarra skráðra trúfélaga. Í þriðja lagi fær þjóðkirkjan framlag í Jöfnunarsjóð sókna og í fjórða lagi ber ríkissjóði að skila Kirkjumálasjóði árlega fjármagni samkvæmt lögum um sóknargjöld. Önnur trúfélög en þjóðkirkjan fá aðeins sóknargjöld. Veraldleg lífsskoðunarfélög fá enga reglubundna aðstoð eða fjármögnun.

Félagsleg mismunun tryggð með ákvæðum í stjórnarskrá.
    Evangelísk-lúterska kirkjan fær sérstaka stöðu þjóðkirkju og forsetinn er sérstakur verndari hennar, en ekki annarra lífsskoðunarfélaga. Þetta dregur úr sameiningarafli forsetans fyrir alla þjóðina og gefur þau skilaboð að mismunun sé í lagi í krafti hefðarinnar.
    Í íslenskri löggjöf hallar á trúfrelsi og jafnræðis er ekki gætt hvað lagalega, fjárhagslega og félagslega stöðu lífsskoðunarfélaga varðar. Eðli máls samkvæmt ber ríkisvaldinu að tryggja frjálsum félögum jafna meðhöndlun óháð stærð þeirra eða lífssýn.