Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 451. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1046 — 451. mál.
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar um fjárframlög til háskóla.
1. Hver hafa fjárframlög ríkissjóðs til svonefndra einkarekinna háskóla á Íslandi verið á undanförnum tíu árum?
Eftirfarandi tafla sýnir fjárveitingar til einkarekinna háskóla á fjárlögum viðkomandi ár. Fjárhæðir eru í millj. kr.
Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands voru sameinaðir um mitt ár 2005 og eru framlög til þeirra því aðgreind á fjárlögum það árið. Vegna þessarar sameiningar er Tækniháskóli Íslands hafður með hér þrátt fyrir að hafa verið ríkisrekinn háskóli. Taflan sýnir ekki fjárveitingar á fjáraukalögum og millifærslur af óskiptum liðum, svo sem vegna launabóta. Helst ber að nefna að Tækniháskólinn fékk 205 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2002, 35 millj. kr. á fjáraukalögum 2003 og 75 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2005 vegna kostnaðar við niðurlagningu skólans. Þá fékk Háskólinn á Bifröst 27,8 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2007.
2. Hvað hafa sömu skólar innheimt miklar fjárhæðir með skólagjöldum á sama tíma?
Hvað innheimtu skólagjalda varðar þá eru hér birtar tölur frá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) yfir veitt skólagjaldalán í hverjum skóla fyrir sig. Þessar upplýsingar endurspegla aðkomu ríkisins að fjármögnun skólagjalda en ekki heildartekjur þeirra af skólagjöldum. Þegar fjárveitingar LÍN eru metnar á fjárlögum hverju sinni er miðað við að beinn kostnaður ríkissjóðs sé um 51% á móti hverri útlánaðari krónu hjá sjóðnum. Upplýsingar um heildartekjur einkaskólanna af skólagjöldum liggja ekki fyrir, einkum vegna þess að tekjur skólanna af skólagjöldum eru ekki birtar með samræmdum hætti í ársreikningum þeirra.
3. Hver hafa fjárframlög ríkissjóðs til ríkisrekinna háskóla á Íslandi verið á undanförnum tíu árum?
Á fjárlögum 2004 sameinuðust Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Rannsóknarstofnun landbúnaðarins (RALA) og Garðyrkjuskóli ríkisins. Landbúnaðarskólarnir voru fluttir frá landbúnaðarráðuneytinu yfir til mennta- og menningarmálaráðuneytis í ársbyrjun 2008. Við þann flutning var 160 millj. kr. framlagi til Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri haldið eftir í landbúnaðarráðuneytinu vegna rannsóknarsamninga. Framlagið var síðan greitt út til skólans í formi sértekna og kemur því ekki fram í töflunni. Taflan sýnir ekki fjárveitingar á fjáraukalögum og millifærslur af óskiptum liðum, svo sem vegna launabóta. Helst ber að nefna að Háskóli Íslands hefur fengið eftirfarandi aukafjárveitingar á fjáraukalögum; 80 millj. kr. árið 2001, 15 millj. kr. árið 2004, 7,8 millj. kr. árið 2005, 47 millj. kr. árið 2006, og 474,6 millj. kr. árið 2007 þar af 282 millj. kr. fjármagnaðar af Happdrætti Háskóla Íslands og 100 millj. kr. framlag vegna stofnunar Keilis. Þá fékk Háskóli Íslands aukafjárveitingu til að ráðstafa 200 millj. kr. frá Happdrætti Háskóla Íslands á fjáraukalögum 2008. Háskólinn á Akureyri fékk 110 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2005, 64,6 millj. kr. árið 2006 og 233,5 millj. kr. árið 2008. Kennaraháskóli Íslands fékk 16 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2007. Landbúnaðarháskóli Íslands fékk 160,5 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2005 og 64 millj. kr. árið 2007. Hólaskóli – Háskólinn á Hólum fékk 15 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2003, 90 millj. kr. árið 2005, 70 millj. kr. árið 2007 og 169 millj. kr. árið 2008.
Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Ísland voru sameinaðir á árinu 2008 en fjárveiting skólanna sameinuð á fjárlögum 2009.
4. Hvað hafa sömu skólar innheimt miklar fjárhæðir með skólagjöldum á sama tíma?
Ríkisreknir háskólar innheimta skrásetningargjöld af nemendum sínum sem nú nema 45.000 kr. á skólaári vegna skrásetningar og þjónustu við nemendur, sbr. a-lið 2. mgr. 24. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla. Skólarnir hafa umtalsverðar tekjur af gjaldinu. Ríkisháskólarnir innheimta einnig í einhverjum mæli skólagjöld og þá einkum vegna endurmenntunar og fræðslu til almennings. Hér eru birtar tölur frá Lánasjóði íslenskra námsmanna yfir veitt skólagjaldalán vegna náms í ríkisreknum háskólum, eða sambærilegar upplýsingar og birtar eru hér að framan yfir skólagjaldalán sem veitt eru í einkareknum skólum.
Skólagjaldalán sem falla hér undir Háskóla Íslands eru vegna náms við Endurmenntunarstofnun háskólans, m.a. MBA- og MPM-nám. Skólagjaldalán sem falla undir Kennaraháskóla Íslands eru vegna ökukennaranáms sem nú fer fram í HÍ. Hvað Hólaskóla varðar þá er lánað fyrir gjöldum umfram 45.000 kr. en innritunargjöld við skólann eru 50.000 kr., sbr. 15. gr. laga nr. 57/1999, um búnaðarfræðslu.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1046 — 451. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar um fjárframlög til háskóla.
1. Hver hafa fjárframlög ríkissjóðs til svonefndra einkarekinna háskóla á Íslandi verið á undanförnum tíu árum?
Eftirfarandi tafla sýnir fjárveitingar til einkarekinna háskóla á fjárlögum viðkomandi ár. Fjárhæðir eru í millj. kr.
Fjárveitingar til einkarekinna háskóla á fjárlögum.
*
| Einkareknir háskólar | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 |
| Háskólinn í Reykjavík | 279 | 386 | 422 | 418 | 498 | 1.374 | 1.596 | 1.859 | 2.173 | 2.089 |
| Tækniháskólinn | 298 | 353 | 398 | 551 | 674 | |||||
| 577 | 739 | 820 | 969 | 1.172 | 1.374 | 1.596 | 1.859 | 2.173 | 2.089 | |
| Háskólinn á Bifröst | 61 | 108 | 128 | 156 | 184 | 217 | 246 | 275 | 348 | 333 |
| Listaháskóli Íslands | 276 | 315 | 368 | 426 | 442 | 507 | 545 | 587 | 668 | 642 |
| Samtals | 914 | 1.162 | 1.316 | 1.552 | 1.798 | 2.098 | 2.387 | 2.720 | 3.188 | 3.064 |
| *Hér er einungis um fjárveitingar á fjárlögum að ræða, ekki fjáraukalögum og eða af óskiptum liðum. | ||||||||||
Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands voru sameinaðir um mitt ár 2005 og eru framlög til þeirra því aðgreind á fjárlögum það árið. Vegna þessarar sameiningar er Tækniháskóli Íslands hafður með hér þrátt fyrir að hafa verið ríkisrekinn háskóli. Taflan sýnir ekki fjárveitingar á fjáraukalögum og millifærslur af óskiptum liðum, svo sem vegna launabóta. Helst ber að nefna að Tækniháskólinn fékk 205 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2002, 35 millj. kr. á fjáraukalögum 2003 og 75 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2005 vegna kostnaðar við niðurlagningu skólans. Þá fékk Háskólinn á Bifröst 27,8 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2007.
2. Hvað hafa sömu skólar innheimt miklar fjárhæðir með skólagjöldum á sama tíma?
Hvað innheimtu skólagjalda varðar þá eru hér birtar tölur frá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) yfir veitt skólagjaldalán í hverjum skóla fyrir sig. Þessar upplýsingar endurspegla aðkomu ríkisins að fjármögnun skólagjalda en ekki heildartekjur þeirra af skólagjöldum. Þegar fjárveitingar LÍN eru metnar á fjárlögum hverju sinni er miðað við að beinn kostnaður ríkissjóðs sé um 51% á móti hverri útlánaðari krónu hjá sjóðnum. Upplýsingar um heildartekjur einkaskólanna af skólagjöldum liggja ekki fyrir, einkum vegna þess að tekjur skólanna af skólagjöldum eru ekki birtar með samræmdum hætti í ársreikningum þeirra.
Skólagjaldalán LÍN, einkareknir háskólar.
| Skólaárið | 2001–02 | 2002–03 | 2003–04 | 2004–05 | 2005–06 | 2006–07 | 2007–08 | 2008–09 | 2009–10 |
| Háskólinn á Bifröst | 47.595.000 | 65.407.500 | 89.630.021 | 117.952.068 | 178.311.716 | 236.587.290 | 237.344.420 | 246.979.661 | 152.146.813 |
| Háskólinn í Reykjavík | 97.756.000 | 106.476.644 | 126.538.302 | 159.982.420 | 202.031.147 | 279.763.722 | 365.764.735 | 482.244.858 | 480.047.378 |
| Listaháskólinn | 9.006.500 | 11.894.000 | 18.101.050 | 27.332.500 | 34.369.000 | 41.708.131 | 47.663.125 | 59.459.612 | 57.672.000 |
| Samtals | 154.357.500 | 183.778.144 | 234.269.373 | 305.266.988 | 414.711.863 | 558.059.143 | 650.772.280 | 788.684.131 | 689.866.191 |
3. Hver hafa fjárframlög ríkissjóðs til ríkisrekinna háskóla á Íslandi verið á undanförnum tíu árum?
Fjárframlög ríkissjóðs til ríkisrekinna háskóla að frádregnum sértekjum.
| Ríkisreknir háskólar | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 |
| Háskóli Íslands | 3.349 | 3.866 | 4.910 | 4.530 | 4.825 | 5.770 | 6.439 | 7.232 | 9.958 | 10.096 |
| Kennaraháskóli Íslands | 715 | 919 | 943 | 1.167 | 1.301 | 1.461 | 1.562 | 1.654 | ||
| 4.064 | 4.786 | 5.853 | 5.697 | 6.126 | 7.231 | 8.001 | 8.886 | 9.958 | 10.096 | |
| Háskólinn á Akureyri | 408 | 460 | 596 | 684 | 819 | 955 | 1.143 | 1.301 | 1.461 | 1.377 |
| Landbúnaðarháskóli Íslands | 136 | 149 | 190 | 193 | 509 | 573 | 615 | 477 | 551 | 597 |
| Hólaskóli – Háskólinn á Hólum | 124 | 143 | 177 | 174 | 170 | 221 | 221 | 235 | 268 | 258 |
| Samtals | 4.732 | 5.538 | 6.816 | 6.749 | 7.625 | 8.980 | 9.980 | 10.899 | 12.238 | 12.327 |
Á fjárlögum 2004 sameinuðust Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Rannsóknarstofnun landbúnaðarins (RALA) og Garðyrkjuskóli ríkisins. Landbúnaðarskólarnir voru fluttir frá landbúnaðarráðuneytinu yfir til mennta- og menningarmálaráðuneytis í ársbyrjun 2008. Við þann flutning var 160 millj. kr. framlagi til Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri haldið eftir í landbúnaðarráðuneytinu vegna rannsóknarsamninga. Framlagið var síðan greitt út til skólans í formi sértekna og kemur því ekki fram í töflunni. Taflan sýnir ekki fjárveitingar á fjáraukalögum og millifærslur af óskiptum liðum, svo sem vegna launabóta. Helst ber að nefna að Háskóli Íslands hefur fengið eftirfarandi aukafjárveitingar á fjáraukalögum; 80 millj. kr. árið 2001, 15 millj. kr. árið 2004, 7,8 millj. kr. árið 2005, 47 millj. kr. árið 2006, og 474,6 millj. kr. árið 2007 þar af 282 millj. kr. fjármagnaðar af Happdrætti Háskóla Íslands og 100 millj. kr. framlag vegna stofnunar Keilis. Þá fékk Háskóli Íslands aukafjárveitingu til að ráðstafa 200 millj. kr. frá Happdrætti Háskóla Íslands á fjáraukalögum 2008. Háskólinn á Akureyri fékk 110 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2005, 64,6 millj. kr. árið 2006 og 233,5 millj. kr. árið 2008. Kennaraháskóli Íslands fékk 16 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2007. Landbúnaðarháskóli Íslands fékk 160,5 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2005 og 64 millj. kr. árið 2007. Hólaskóli – Háskólinn á Hólum fékk 15 millj. kr. aukafjárveitingu á fjáraukalögum 2003, 90 millj. kr. árið 2005, 70 millj. kr. árið 2007 og 169 millj. kr. árið 2008.
Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Ísland voru sameinaðir á árinu 2008 en fjárveiting skólanna sameinuð á fjárlögum 2009.
4. Hvað hafa sömu skólar innheimt miklar fjárhæðir með skólagjöldum á sama tíma?
Ríkisreknir háskólar innheimta skrásetningargjöld af nemendum sínum sem nú nema 45.000 kr. á skólaári vegna skrásetningar og þjónustu við nemendur, sbr. a-lið 2. mgr. 24. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla. Skólarnir hafa umtalsverðar tekjur af gjaldinu. Ríkisháskólarnir innheimta einnig í einhverjum mæli skólagjöld og þá einkum vegna endurmenntunar og fræðslu til almennings. Hér eru birtar tölur frá Lánasjóði íslenskra námsmanna yfir veitt skólagjaldalán vegna náms í ríkisreknum háskólum, eða sambærilegar upplýsingar og birtar eru hér að framan yfir skólagjaldalán sem veitt eru í einkareknum skólum.
Skólagjaldalán LÍN, ríkisreknir háskólar.
| Skólaárið | 2001–02 | 2002–03 | 2003–04 | 2004–05 | 2005–06 | 2006–07 | 2007–08 | 2008–09 | 2009–10 |
| Háskóli Íslands | 13.962.914 | 19.848.875 | 17.023.266 | 23.333.278 | 67.364.421 | 72.732.891 | 90.480.541 | 108.610.793 | 80.736.533 |
| Kennaraháskóli Íslands | 8.640.000 | ||||||||
| Háskólinn á Hólum | 125.000 | 85.000 | 70.000 | ||||||
| Samtals | 13.962.914 | 19.848.875 | 17.023.266 | 23.333.278 | 76.004.421 | 72.732.891 | 90.605.541 | 108.695.793 | 80.806.533 |