Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 503. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1058 — 503. mál.
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur um dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver eru starfssvið Ríkisútvarpsins og hverjir stjórna þeim?
2. Hvaða innlendir þættir eru á dagskrá Ríkisútvarpsins? Hverjir annast dagskrárgerð þeirra eða hafa umsjón með þeim? Svör óskast greind eftir starfssviðum Ríkisútvarpsins.
3. Eru til stefnumótandi rammar um inntak þáttanna eða lýsing á hlutverki þeirra og ef svo er, hver tekur ákvarðanir þar að lútandi? Óskað er eftir að lýsingarnar fylgi ef þær eru til.
Óskað var eftir upplýsingum frá Ríkisútvarpinu ohf. um þau atriði sem fyrirspurnin lýtur að.
Í stjórn RÚV eru Svanhildur Kaaber, formaður, Margrét Frímannsdóttir, varaformaður, Kristín Edwald, Ari Skúlason og Magnús Stefánsson.
Í varastjórn eru Hlynur Hallsson, Sigríður Ása Richardsdóttir, Signý Ormarsdóttir, Helgi Pétursson og Þórey Anna Matthíasdóttir.
Hér má sjá skipurit félagsins eins og það hefur verið undanfarin missiri og hverjir hafa stýrt hverju starfssviði fyrir sig.
Kveðið er á um hlutverk Ríkisútvarpsins og dagskrárstefnu í lögum nr. 6/2007. Heildarramminn og megináherslur í dagskrármálum eru síðan mótaðar enn frekar í samningi um útvarpsþjónustu í almannaþágu milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Ríkisútvarpsins sem undirritaður var 23. mars 2007.
Að þessum heildarramma slepptum er nánari útfærsla í höndum RÚV sem setur sér dagskrárstefnu er tekur til allra sviða miðlunar. Í þeirri stefnu koma fram áherslur stofnunarinnar í efni dagskrár og þjónustu við notendur. Auk útvarpsstjóra kemur framkvæmdastjórn að verkinu en verkið er síðan unnið af viðeigandi dagskrárstjóra og dagskrárráði en eitt dagskrárráð er starfandi fyrir hljóðvarp og annað fyrir Sjónvarpið. Þannig er t.d. dagskrá Sjónvarpsins ákveðin í samvinnu útvarpsstjóra, framkvæmdastjórnar, dagskrárstjóra og dagskrárráðs Sjónvarpsins. Fundir eru haldnir vikulega hjá dagskrárráði Sjónvarps. Sama fyrirkomulag gildir fyrir hljóðvarpið. Við þetta verk er m.a. stuðst við nákvæmar áhorfs- og hlustunarmælingar og víðtækar viðhorfskannanir.
Þegar dagskrárrammi hvers miðils liggur fyrir er hann útfærður enn frekar af viðeigandi dagskrárstjórum í nánu samstarfi við umsjónarmenn þáttanna. Endanleg útfærsla er síðan í höndum umsjónarmanna einstakra þátta.
Dæmi um þætti á Rás 1.
Samfélagið í nærmynd. Í þættinum eru þjóðmálin skoðuð frá ýmsum hliðum. M.a. er fjallað um heilbrigðismál, félagsmál og atvinnumál og ýmsum skemmtilegum fróðleiksmolum skotið inn á milli atriða. Til þess að auka fjölbreytnina og fróðleikinn leggja dagskrárgerðarmenn af landsbyggðinni þættinum lið, auk þess sem fréttaritarar í Evrópu greina frá áhugaverðum samfélagsmálum erlendis. Umsjón: Leifur Hauksson og Hrafnhildur Halldórsdóttir.
Víðsjá. Í þættinum er fjallað um menningu á breiðum grundvelli, innan lands og utan. Fylgst er með viðburðum á listasviðinu – leikhúsi, bókmenntum, tónlist og myndlist – auk þess sem fjallað er um hugmyndastrauma og margt fleira sem lýtur að menningarástandi samtímans. Öflugir gagnrýnendur og pistlahöfundar kveða sér hljóðs. Á föstudögum er þátturinn styttri og þá er boðið upp á umræður og þematengda þætti. Dagskrárgerð: Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Eiríkur Guðmundsson, Guðni Tómasson, Haukur Ingvarsson og Sigríður Stephensen.
Spegillinn. Fréttatengdur þáttur sem er á dagskrá á samtengdum rásum að loknum kvöldfréttum alla virka daga. Spegillinn er gagnrýninn fréttaskýringaþáttur þar sem fundnir eru aðrir fletir á málum en fjallað er um annars staðar; einnig eru skoðuð mál sem aðrir fjalla ekki um. Dagskrárgerð: Friðrik Páll Jónsson, Anna Kristín Jónsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Jón Guðni Kristjánsson og Sigrún Davíðsdóttir.
Dæmi um þætti á Rás 2.
Morgunútvarpið. Frétta- og dægurmálaþáttur á vegum fréttastofu Ríkisútvarpsins. Þar er fjallað á mannamáli um það sem helst brennur á fólki hverju sinni og fréttir heima og erlendis krufnar til mergjar. Rætt við áhugavert fólk og venjulegir Íslendingar segja óvenjulegar sögur. Þátturinn er í umsjón Margrétar Marteinsdóttur, Sveins H. Guðmarssonar og Freys Eyjólfssonar.
Vinsældalisti Rásar 2. Er á laugardögum klukkan 15. Vinsældalistinn samanstendur af 30 vinsælustu lögum rásarinnar. Sighvatur Jónsson, eða Hvati, er umsjónarmaður Vinsældalista Rásar 2 en hann fer yfir vinsælustu lögin, sem hlustendur geta valið á heimasíðu þáttarins www.ruv.is/topp30, skoðar vinsældalista í öðrum löndum og rifjar upp vinsæl lög fyrri ára.
Síðdegisútvarpið. Fréttatengdur þáttur á vegum fréttastofu. Umsjónarmenn eru Hallgrímur Thorsteinsson, Linda Blöndal og Erla Ragnarsdóttir.
Hið opinbera. Þáttur þar sem áhersla er lögð á nýja íslenska tónlist, auk þess sem þar heyrast reglulega innlendar jafnt sem erlendar tónleikaupptökur. Umsjón: Ágúst Bogason.
Framangreind dæmi eru aðeins brot af dagskrá hljóðvarps en hún samanstendur af mjög mörgum stökum þáttum og föstum dagskrárliðum, samtals skipta þeir hundruðum. Allir þættir Rásar 1 og 2 eru unnir af dagskrárdeild utan fréttir, hádegisútvarpið og Spegillinn sem er á samtengdum rásum og Morgunútvarpið og Síðdegisútvarpið sem er á Rás 2.
Dæmi um þætti í Sjónvarpinu.
Kastljós. Fréttaumfjöllunar- og dægurmálaþáttur þar sem fjallað er um það sem hæst ber á líðandi stundu: Menningu, listir, stjórnmál og allt sem nöfnum tjáir að nefna í dagsins önn. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson, Þóra Arnórsdóttir, Helgi Seljan, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Brynja Þorgeirsdóttir.
Silfur Egils. Umræðu- og viðtalsþáttur Egils Helgasonar um pólitík, dægurmál og það sem efst er á baugi. Þar koma saman stjórnmálamenn, stjórnmálaskýrendur, fjölmiðlamenn og fleiri sem eitthvað hafa til málanna að leggja og ræða um landsins gagn og nauðsynjar. Útsendingu stjórnar Ragnheiður Thorsteinsson.
Skólahreysti. Þáttaröð um keppni stráka og stelpna í 9. og 10. bekk grunnskólanna í upphífingum, armbeygjum, dýfum og hraðaþraut. Kynnar eru Ásgeir Erlendsson og Felix Bergsson.
Stundin okkar. Þáttur með fjölbreyttu og skemmtilegu efni fyrir yngstu börnin. Umsjónarmaður er Björgvin Franz Gíslason og Eggert Gunnarsson sér um dagskrárgerð.
Kiljan. Í þættinum, sem er í umsjón Egils Helgasonar, er fjallað um bækur og menningu úr ýmsum áttum og af öllum toga. Kolbrún Bergþórsdóttir og Páll Baldvin Baldvinsson eru álitsgjafar þáttarins og Bragi Kristjónsson bókakaupmaður segir frá forvitnilegum bókum. Ragnheiður Thorsteinsson sér um dagskrárgerð.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1058 — 503. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.

Innlendir þættir á dagskrá Ríkisútvarpsins flokkaðir eftir starfssviðum
á tímabilinu 1. – 30. nóvember 2009.
| Þættir á vegum dagskrársviðs útvarps | |
| Rás 1 | Dagskrárgerð/umsjónarmenn |
| Andrarímur | Guðmundur Andri Thorsson |
| Á réttri hillu | Guðrún Gunnarsdóttir |
| Á tónsviðinu | Una Margrét Jónsdóttir |
| Bak við stjörnurnar | Arndís Björk Ásgeirsdóttir |
| Breiðstræti | Ólöf Sigursveinsdóttir |
| Endurómur úr Evrópu | Lana Kolbrún Eddudóttir |
| Fimm fjórðu | Lana Kolbrún Eddudóttir |
| Flakk | Lísa Pálsdóttir |
| Fólk og fræði | Háskólanemar |
| Gatan mín | Jökull Jakobsson |
| Guðsþjónustur | Frá ýmsum kirkjum |
| Heimur hugmyndanna | Ævar Kjartansson og Páll Skúlason |
| Hringsól | Magnús R. Einarsson |
| Hvað er að heyra? | Arndís Björk Ásgeirsdóttir |
| Í heyranda hljóði | Ævar Kjartansson |
| Kátir voru karlar | Þórdís Gísladóttir og Þorgerður E. Sigurðardóttir |
| Krossgötur | Hjálmar Sveinsson |
| Kvika | Sigríður Pétursdóttir |
| Kvöldgestir | Jónas Jónasson |
| Leynifélagið | Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir |
| Litla flugan | Lana Kolbrún Eddudóttir |
| Lostafulli listræninginn | Jórunn Sigurðardóttir |
| Morgunleikfimi | Halldóra Björnsdóttir |
| Morgunstund KK | KK |
| Næturtónar | Diljá Sigursveinsdóttir, Nathalía Halldórsdóttir og Örlygur Benediktsson |
| Okkar á milli | Pétur Halldórsson, Steinunn Harðardóttir, Lísa Pálsdóttir |
| Orð kvöldsins | Rannveig Sigurbjörnsdóttir |
| Orð skulu standa | Karl Th. Birgisson |
| Óskastundin | Gerður G. Bjarklind |
| Raddir barna | Berglind Häsler |
| Sagnaslóð | Jón Ormar Ormsson |
| Samfélagið í nærmynd | Hrafnhildur Halldórsdóttir og Leifur Hauksson |
| Seiður og hélog | Marta Guðrún Jóhannesdóttir og Jórunn Sigurðardóttir |
| Stefnumót | Svanhildur Jakobsdóttir |
| Straumar | Ásmundur Jónsson |
| Sumar raddir | Jónas Jónasson |
| Söngvamál | Una Margrét Jónsdóttir |
| Söngvarar blárrar sveiflu | Vernharður Linnet |
| Til allra átta | Sigríður Stephensen |
| Tónleikur | Ingibjörg Eyþórsdóttir |
| Tríó | Magnús R. Einarsson |
| Úr gullkistunni | Gunnar Stefánsson |
| Úr tónlistarlífinu | Ingibjörg Eyþórsdóttir |
| Út um græna grundu | Steinunn Harðardóttir |
| Útvarpsleikhúsið | Nokkur verk flutt |
| Útvarpssagan | Gunnar Stefánsson |
| Víðsjá | Elísabet I. Ragnarsdóttir, Eiríkur Guðmundsson, Guðni Tómasson, Haukur Ingvarsson og Sigríður Stephensen |
| Vítt og breitt | Hanna G. Sigurðardóttir, Pétur Halldórsson |
| Rás 2 | Dagskrárgerð/umsjónarmenn |
| A til J | Atli Þór Albertsson og Jóhann G. Jóhannsson |
| Auglit | Guðni Már Henningsson |
| Bergsson & Blöndal | Felix Bergsson og Margrét Blöndal |
| Dordingull | Sigvaldi Ástríðarson |
| Eigi skal slökkva | Snorri Sturluson |
| Færibandið | Bubbi Morthens |
| Guðni Már | Guðni Már Henningsson |
| H&M | Heiða Ólafsdóttir og Margrét Erla Maack |
| Haförninn | Dóri DNA |
| Hið opinbera | Ágúst Bogason |
| Litla hafmeyjan | Þórður H. Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson |
| Luftgítar | Matthías Már Magnússon |
| Milli frétta | Heiða Ólafsdóttir og Margrét Erla Maack |
| Nei hættu nú alveg | Vilhelm Anton Jónsson |
| Næturvaktin | Guðni Már Henningsson |
| Poppland | Ólafur Páll Gunnarsson, Heiða Ólafsdóttir, Matthías Magnússon og Margrét Erla Maack |
| Popppressan | Andrea Jónsdóttir |
| PZ-senan | Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason |
| Rokkland | Ólafur Páll Gunnarsson |
| Sirrý á sunnudagsmorgnum | Sigríður Arnardóttir |
| Skúrinn | Ragnar Gunnarsson og Gunnar Gunnarsson |
| Streymi | Þossi |
| Vinsældarlisti Rásar 2 | Matthías Már Magnússon |
| Þættir á vegum dagskrársviðs Sjónvarps – innlent | |
| Umsjónarmenn/dagskrárgerð | |
| Eldað með Jóhönnu Vigdísi | Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir/Egill Eðvarðsson |
| Flautan og litirnir | Guðmundur Norðdahl (aðkeypt) |
| Hófsöm rjúpnaveiði | Sigmar B. Hauksson (aðkeypt) |
| Kastljós | Sigmar Guðmundsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Þóra Tómasdóttir, Elsa María Jakobsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Helgi Seljan/Steingrímur Dúi Másson, Egill Eðvarðsson, Sigurður Jakobsson og Gaukur Jörundsson |
| Kiljan | Egill Helgason/Ragnheiður Thorsteinsson |
| Konur á rauðum sokkum | Halla Kristín Einarsdóttir (aðkeypt) |
| Marteinn | Saga film ehf. (aðkeypt) |
| Nýsköpun – íslensk vísindi | Lífsmynd ehf. (aðkeypt) |
| Persónur og leikendur | Eva María Jónsdóttir/Haukur Hauksson |
| Silfur Egils | Egill Helgason/Ragnheiður Thorsteinsson |
| Skoppa og Skrítla út um hvippinn og hvappinn | Skopp sf. (aðkeypt) |
| Spaugstofan | Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason/Björn Emilsson |
| Stóra planið | Poppoli ehf. (aðkeypt) |
| Stundin okkar | Björgvin Franz Gíslason/Eggert Gunnarsson |
| Sykursýki – sjúkdómur 21. aldar | Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson (aðkeypt) |
| Útsvar | Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir/Helgi Jóhannesson |
| Veðurfréttir | Fluttar af Veðurfræðingafélaginu ehf. |
| Þættir á vegum fréttasviðs RÚV | |
| Sjónvarpið | Umsjónarmenn/dagskrárgerð |
| Fréttaaukinn | Frétta- og dagskrárgerðarmenn á fréttastofu RÚV |
| Fréttir | Frétta- og dagskrárgerðarmenn á fréttastofu RÚV |
| Handboltainnslög | Íþrótta- og dagskrárgerðarmenn á fréttasviði |
| Íslandsmótið í handbolta | Íþrótta- og dagskrárgerðarmenn á fréttasviði |
| Íslandsmótið í hreysti | Sölvi Fannar Viðarsson/Guðmundur Begkvist (aðkeypt) |
| Leiðin til afreka | Hermann Níelsson (aðkeypt) |
| Táknmálsfréttir | Fréttir af fréttastofu RÚV sem fluttar eru af táknmálstúlkum frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra |
| Tíufréttir | Frétta- og dagskrárgerðarmenn á fréttastofu RÚV |
| Útvarpsfréttir í dagskrárlok | Frétta- og dagskrárgerðarmenn á fréttastofu RÚV |
| Viðtalið | Bogi Ágústsson/Karl Sigtryggsson |
| Rás 1 og Rás 2 | |
| Fréttir | Frétta- og dagskrárgerðarmenn á fréttastofu RÚV |
| Spegillinn | Friðrik Páll Jónsson, Anna Kristín Jónsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Jón Guðni Kristjánsson og Sigrún Davíðsdóttir |
| Rás 2 | |
| Morgunvaktin | Freyr Eyjólfsson og Lára Ómarsdóttir |
| Síðdegisútvarpið | Hallgrímur Thorsteinsson, Linda Blöndal og Erla Ragnarsdóttir |
| Vikulokin | Hallgrímur Thorsteinsson |