Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 439. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1071  —  439. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar um tannvernd grunnskólabarna.

     1.      Hvað er talið að það kosti þjóðarbúið á ári að hefja aftur skólatannlækningar, grunnskólabörnum að kostnaðarlausu?
    Skólatannlækningar voru endanlega lagðar af í Reykjavík á árinu 2000 og fram til þessa hafa stjórnvöld ekki haft uppi áform um að endurvekja þær. Þar sem engar áætlanir hafa verið gerðar er því erfitt að svara með nokkurri vissu hver kostnaðurinn af slíkri aðgerð yrði.
    Á landinu öllu eru 176 grunnskólar með um 43 þúsund grunnskólanemum. Ef miðað er við venjulegan tannlæknarekstur má áætla að kostnaður við fullbúnar tannlæknastofur í helmingi grunnskóla landsins geti numið 4–4,5 milljörðum kr.; um 2 milljörðum kr. í stofnkostnað og 2,5 milljörðum kr. í árlegan rekstrarkostnað. Ef stjórnvöld tækju ákvörðun um að undirbúa eða kanna grundvöll fyrir því að hefja skólatannlækningar að nýju þyrfti m.a. að kanna hvað hægt væri að nýta af húsnæði skóla og heilsugæslustöðva sem þegar er fyrir hendi. Einnig þyrfti að skilgreina hvað yrði innifalið í skólatannlækningum og hvað ekki og hvernig skipulagi skólatannlækninga yrði háttað. Meðal annars mætti hafa hliðsjón af fyrirkomulagi skólatannlækninga í nálægum löndum, þar sem áhersla er lögð á tannvernd og tannhirðu sem tannfræðingar annast fremur en tannlæknar. Væntanlega yrði heilsugæslunni falið að sjá um framkvæmd skólatannlækninga ef af yrði. Á vegum heilbrigðisráðuneytisins er starfandi nefnd um eflingu heilsugæslunnar og fjallar hún sérstaklega um þennan þátt heilbrigðisþjónustunnar, m.a. reglubundið eftirlit með tönnum ungbarna, aukna aðkomu tannfræðinga að tannvernd í skólum og hugmyndir um svonefnda ábyrgðartannlækna.

     2.      Hvað stendur í vegi þess að hefja aftur skólatannlækningar, grunnskólabörnum að kostnaðarlausu?
    Ljóst er að skólatannlækningar verða ekki teknar upp að nýju nema með verulegum tilkostnaði. Fram að þessu hefur sú framkvæmd ekki verið sett á forgangslista stjórnvalda, en full ástæða er til þess að meta nánar möguleikana á því að koma skólatannlækningum aftur á laggirnar og gera tilheyrandi framkvæmda- og kostnaðaráætlanir. Nefnd heilbrigðisráðuneytisins um eflingu heilsugæslunnar mun skila fyrstu tillögum snemmsumars.

     3.      Hefur kostnaður þjóðarbúsins af lakari tannvernd skólabarna á síðustu árum verið metinn og ef svo er, hvernig?
    Ekki liggur fyrir mat á kostnaði þjóðarbúsins vegna ófullnægjandi tannverndar í skólum landsins á undanförnum árum. Athuganir á þróun tannátustuðulsins DMFT * hjá 12 ára börnum gefa til kynna að tannskemmdir hafi aukist. Á árinu 1996 var DMFT hjá 12 ára börnum 1,5 og í rannsókn frá 2005 var stuðullinn hjá þessum aldurshópi kominn upp í 2,1. Lýðheilsustöð hefur nú verið falið að gera frekari úttekt á stöðu tannheilsumála meðal skólabarna og koma með tillögur um úrbætur. Sýnt þykir að þetta verkefni verður að vinna í samvinnu við heilsugæsluna og tannlæknadeild Háskóla Íslands. Enn fremur er ljóst að öll kostnaðar- og ábatagreining á kostnaði þjóðfélagsins vegna tannskemmda er flókin. Þegar niðurstöður þessara athugana liggja fyrir verða þær lagðar til grundvallar markvissum aðgerðum til eflingar tannheilsu barna og unglinga.
Neðanmálsgrein: 1
    * Tannátustuðullinn DMFT segir til um hversu margar tennur (T) eru skemmdar (D), fylltar (F) eða tapast (M) vegna tannskemmda hjá tilteknum einstaklingi.