Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 613. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1077  —  613. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um afnot af efni Ríkisútvarpsins ohf.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.



     1.      Hvaða reglur gilda um lán, sölu, leigu eða aðra notkun á mynd og hljóðefni Ríkisútvarpsins ohf.?
     2.      Er í gildi gjaldskrá fyrir afnot af efni Ríkisútvarpsins ohf. og ef svo er, hvernig er hún?
     3.      Gilda sömu reglur og gjaldskrá um starfsmenn eða verktaka Ríkisútvarpsins ohf. og aðra sem óska eftir afnotum af efni? Ef ekki, hvaða reglur gilda þá?
     4.      Eru í gildi samningar við einhverja aðila um afnot af efni Ríkisútvarpsins ohf. og þá við hverja?
     5.      Hvernig bregst Ríkisútvarpið ohf. við notkun efnis án heimildar eða samnings?


Skriflegt svar óskast.