Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 599. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1144  —  599. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um upplýsingaaðgengi og textavarp.

     1.      Hvað líður gerð þjónustusamnings milli Ríkisútvarpsins og mennta- og menningarmálaráðuneytis hvað varðar textun á síðu 888 í textavarpi á dagskrárefni líðandi stundar, t.d. fréttum, Kastljósi og öðru innlendu efni?
    Í samningi um útvarpsþjónustu í almannaþágu sem mennta- og menningarmálaráðuneyti gerði við Ríkisútvarpið árið 2007 og gildir til 31. mars 2012 segir að Ríkisútvarpið skuli veita fötluðum aðgang að útvarpsþjónustu í almannaþágu með því að nýta tæknimöguleika, svo sem með textun á sjónvarpsefni, með textavarpi og á vefsvæði sínu. Fjöldi textaðra klukkustunda skal aukast að lágmarki um 100% frá upphafi samningstímabilsins til loka þess (úr 167 klst. í 334 klst.). Stefnt skal að því að öll forunnin innlend dagskrá verði textuð í lok samningstímabilsins. Þá skal hlutfall útsendinga á táknmáli vera a.m.k. hið sama og við upphaf samningstímabilsins. Einnig skal táknmálstúlkun fylgja sjónvarpsumræðum í aðdraganda kosninga.
    Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisútvarpinu hefur nú náðst sá áfangi að texta alla forunna innlenda þætti sem sýndir eru í Ríkisútvarpinu á síðu 888 í textavarpinu. Þegar um er að ræða beinar útsendingar frá mikilvægum fundum, eins og þegar Rannsóknarnefnd Alþingis kynnti skýrslu sína nýverið, er leitast við að endurtaka útsendinguna við fyrsta tækifæri með texta á síðu 888 í textavarpinu. Sama gilti um Fréttaaukann sem var á dagskrá fyrr í vetur en hann var í beinni útsendingu og því var ekki var hægt að texta hann á síðu 888 í textavarpinu. Til að bæta úr því var hann textaður á síðu 888 fyrir endursýningu.
    Um þessar mundir er unnið að endurskoðun á þjónustusamningnum milli Ríkisútvarpsins og ráðuneytisins.

     2.      Eru í gildi einhverjar verklagsreglur um textun við rof á útsendingu vegna óvæntra atvika, svo sem náttúruhamfara og annarra alvarlegra atburða?
    Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur fylgt þeirri vinnureglu að þegar send er út dagskrá vegna óvæntra atburða, t.d. náttúruhamfara, rennur textaborði með helstu efnisatriðum yfir skjáinn.

     3.      Hyggst ráðherra leggja til að öllum sjónvarpsstöðvum verði skylt að senda út efni með textun á síðu 888 í textavarpi?
    Ráðherra hefur ekki í hyggju að skylda sjónvarpsstöðvar til að senda út efni með textun á síðu 888 í textavarpi, enda er það í höndum stjórnenda og stjórna sjónvarpsstöðva að taka ákvörðun um dagskrárstefnu sína. Í þjónustusamningi við Ríkisútvarpið eru ákvæði um textun og hefur Ríkisútvarpið að meginstefnu uppfyllt þær almannaþjónustu kvaðir sem samingurinn mælir fyrir um að þessu leyti. Í nýjum þjónustusamningi við Ríkisútvarpið verða áfram settar fram kröfur um aukna þjónustu á þessu sviði, m.a. textun dagskár í beinni útsendingu, svo sem fréttum og Kastljósi, sé þess kostur.