Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 500. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1145  —  500. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Skúla Helgasonar um brottfall nemenda úr framhaldsskólum.

     1.      Hvernig hefur þróun brottfalls nemenda úr framhaldsskólum verið undanfarinn áratug, sundurliðað eftir árum og landshlutum?
    Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um brottfall nemenda úr framhaldsskólum eftir árum og landshlutum. Til að fá slíkar tölur fram þyrfti að óska eftir sérstakri greiningu á gögnum Hagstofunnar. Slíkt er gerlegt en mundi taka nokkurn tíma. Aftur á móti liggja fyrir upplýsingar sem geta varpað nokkru ljósi á fyrirspurnina þótt þær svari henni ekki til hlítar.
    Hagstofan hefur skoðað námsferil allra sem fæddir eru 1982 fram til ársins 2006 eða til 24 ára aldurs. Í skýrslu hennar sem birtist árið 2008 (Hagtíðindi, 3. júní 2008) kemur fram að við 24 ára aldur höfðu rúm 5% ekki stundað neitt nám eftir grunnskóla, og 32,8% höfðu stundað nám án þess að ljúka framhaldsskólaprófi. Samtals höfðu því tæp 39% af árganginum ekki lokið framhaldsskólaprófi við 24 ára aldur. Af þeim sem höfðu stundað nám í framhaldsskóla án þess að ljúka honum var tæpur fjórðungur enn í skóla. Það þýðir að 26,5% nemenda í árganginum höfðu horfið frá námi við 24 ára aldur og gátu á þeim tíma talist brottfallnir. Nær 62% árgangsins höfðu hins vegar lokið framhaldsskólanámi á þessum tíma (hafa má í huga að íslenskir nemendur ljúka námi að jafnaði eldri en í öðrum Evrópulöndum). Samfelldari mælingar benda til þess að dregið hafi úr brottfalli á Íslandi undanfarinn áratug.
    Ekki er að finna upplýsingar um brottfall eftir landshlutum í áðurnefndri skýrslu en hins vegar voru brautskráningar af framhaldsskólastigi greindar eftir landshlutum. Af þeim tölum má leiða að því líkur að brottfall var minnst í Reykjavík en mest á Suðurnesjum og Vestfjörðum.

     2.      Hvernig hefur brottfall þróast annars staðar á Norðurlöndum á sama tíma?

    Vegna þess að brottfall er skilgreint á mismunandi hátt eftir löndum er samanburður erfiður. Hins vegar gefa samræmdar tölur, sem Evrópusambandið birtir, kost á evrópskum samanburði. Þar kemur í ljós að brottfall á Íslandi er umtalsvert meira en annars staðar á Norðurlöndum, einkum á fyrri árum framhaldsskólanáms. Það jákvæða í þeim samanburði er þó að brottfallið á Íslandi hefur minnkað umtalsvert, um 5% frá árinu 2000 til 2008. Hins vegar hefur brottfall annars staðar á Norðurlöndum annaðhvort staðið í stað eða aukist á sama tíma. Þessar upplýsingar gefa ótvíræða vísbendingu um að brottfall á framhaldsskólastigi á Íslandi hafi minnkað frá aldamótum.
    Segja má, með nokkurri einföldun, að um fjórðungur ungs fólks sem innritast í framhaldsskóla að loknu grunnskólanámi ljúki ekki framhaldsskólanámi við 24 ára aldur og hverfi frá námi. Þetta hlutfall hefur lækkað um 5% frá árinu 2000. Nokkur munur er á brottfalli eftir landshlutum, það er minna á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Ísland sker sig úr öðrum Norðurlöndum en brottfall er umtalsvert meira á Íslandi en annars staðar. Það er næst mest í Noregi og minnst í Finnlandi. Þess má geta að fyrir stóru kreppuna í Finnlandi var brottfall þar umtalsvert en mjög dró úr því í kreppunni. Því er líklegt að kreppan hér á landi muni hafa svipuð áhrif. Næg atvinnutækifæri eins og voru hér á landi og í Noregi virðast valda auknu brottfalli.
    Í lok mars sl. kom út skýrsla um nýja rannsókn á brottfalli í framhaldsskólum á Norðurlöndum. Þar er gerð grein fyrir umfangi og einkennum brottfalls í löndunum fimm. Fram kemur að mynstur brottfalls þar er um margt líkt, eins og rakið er hér á undan. Það sem m.a. vekur athygli í skýrslunni er hve mikla áherslu rannsakendur leggja á áhrif félagslegs bakgrunns nemenda á brottfall. Því verði að beina sjónum að stöðu nemenda áður en þeir ná framhaldsskólaaldri, eigi að draga frekar úr áhættu á brottfalli. Í þessu sambandi má nefna að Danir hafa þegar gripið til aðgerða í þeim anda og aukið ábyrgð sveitarfélaga á vegferð nemenda frá grunnskóla til framhaldsskóla. Ætlunin er að vinna frekar að kortlagningu brottfalls á norrænum vettvangi á grunni skýrslunnar og standa vonir til að úr þeirri vinnu komi fram tillögur til úrbóta.
    (Slóð að norrænu skýrslunni: www.norden.org/no/publikasjoner/publikasjoner/ 2010-517).

     3.      Til hvaða aðgerða hefur verið gripið í ráðuneytinu til að draga úr brottfalli í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um stöðugleika í efnahagsmálum 17. febrúar 2008 þar sem fram kom að stefnt skyldi að því að ekki fleiri en 10% fólks á vinnumarkaði yrðu án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar árið 2020, og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar?
    Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um stöðugleika í efnahagsmálum segir að stefnt verði að því að eigi verði fleiri en 10% fólks á vinnumarkaði án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar árið 2020. Tvennt má nefna til marks um að miðað hafi áfram í þeirri viðleitni:
    Í fyrsta lagi er nú unnið að því að skapa tækifæri og hvata til menntunar fyrir fólk sem er á vinnumarkaði og hefur notið takmarkaðrar skólagöngu eða ekki lokið námi. Ný lög um framhaldsfræðslu setja menntun þessa hóps í öndvegi. Þar eru sett fram ýmis ný úrræði til menntunar í samstarfi við fræðsluaðila og atvinnulíf, sem hafa verið að mótast á undanförnum árum með árangri. Má þar nefna að í samstarfi fræðslumiðstöðva iðngreina og framhaldsskóla hafa tugir einstaklinga undirgengist svokallað raunfærnimat sem hefur gert þeim kleift að taka upp menntaþráðinn að nýju og ljúka starfsréttindum. Einnig hefur skipulögð námsráðgjöf fyrir fólk á vinnumarkaði orðið til þess að margir hafa hafið nám að nýju. Ýmsir stunda nám samkvæmt sérsniðnum námskrám fyrir fólk með litla formlega menntun sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur haft forgöngu um að semja og ráðuneytið staðfest með hliðsjón af námi í framhaldsskólum. Með því móti hefur tekist að koma mörgum af stað í námi að nýju og greiða öðrum leið til frekari menntunar.
    Í öðru lagi er unnið að umbótum á framhaldsskólastiginu sem miða að því að fleiri finni sér námsleiðir við hæfi og ljúki skilgreindu lokaprófi á framhaldsskólastigi. Þannig mun vonandi draga úr brottfalli ungmenna sem oft virðist mega rekja beint til þess að framboð náms er ekki nægilega fjölbreytt. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla frá 2008 eiga ólögráða nemendur nú rétt á námi í framhaldsskólum. Skólunum ber samkvæmt því að bjóða öllum sem þangað leita nám við hæfi. Í þeim samningum sem ráðuneytið er nú að gera við framhaldsskólana um áherslur í starfi þeirra til næstu þriggja ára er sérstök áhersla lögð á fjölbreyttara námsframboð til að tryggja betur rétt ungmenna til náms við hæfi.
    Breyttar áherslur í námskrárgerð eiga að opna möguleika framhaldsskóla á því að skipuleggja og starfrækja nám sem mætir ólíkum forsendum og áhugasviðum ungmenna. Gagnrýnt er að núverandi námsframboð sé of bóknámsmiðað og fáir valkostir til menntunar fyrir þá sem ekki eru hneigðir til bóknáms. Ýmsir möguleikar á sviði listgreina, starfsmennta og skapandi greina séu vannýttir. Í samhengi við meiri fjölbreytni í námsframboði gefst nú kostur á að skilgreina ný námslok í framhaldsskólum undir heitinu framhaldsskólapróf. Vonir standa til að með þessum framangreindu breytingum á starfsháttum og námsframboði framhaldsskóla muni enn draga úr brottfalli.