Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 598. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1152 — 598. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um rekstur ráðuneyta og starfsmannafjölda árin 2006–2009.
1. Hver voru útgjöld við rekstur ráðuneyta á árunum 2006, 2007, 2008 og 2009 á föstu verðlagi, sundurliðað eftir ráðuneytum?
Samkvæmt fjárhagskerfi ríkisins námu heildarútgjöld ráðuneyta samtals 26.028 millj. kr. á umræddu árabili á föstu verðlagi. Í eftirfarandi töflu eru útgjöld sundurliðuð eftir aðalskrifstofum ráðuneyta í millj. kr.
Á tímabilinu voru gerðar skipulagsbreytingar á verkefnum aðalskrifstofa ráðuneytanna sem höfðu áhrif á fjárheimildir og ársverkafjölda þeirra. Árið 2008 var fjárhagur þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins aðskilinn aðalskrifstofu ráðuneytisins og fækkaði stöðugildum á aðalskrifstofunni sem því nam, eða um 22 stöðugildi. 1. janúar 2008 tóku gildi ný lög um Hagstofu Íslands þar sem henni var breytt úr ráðuneyti í sjálfstæða stofnun sem heyrir undir forsætisráðuneyti.
Á tímabilinu voru einnig aðrar breytingar gerðar á aðalskrifstofum og verkefnum ráðuneyta. Árið 2007 var rekstur iðnaðarráðuneytis og viðskiptaráðuneytis aðskilinn. Árið 2008 var starfsemi sjávarútvegsráðuneytis annars vegar og landbúnaðarráðuneytis hins vegar sameinuð í eitt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. 1. október 2009 tók gildi breyting á reglugerð nr. 177/2007, um Stjórnarráð Íslands, þegar heiti viðskiptaráðuneytis var breytt í efnahags- og viðskiptaráðuneyti, heiti dóms- og kirkjumálaráðuneytis var breytt í dómsmála- og mannréttindaráðuneyti, heiti menntamálaráðuneytis var breytt í mennta- og menningarmálaráðuneyti og heiti samgönguráðuneytis var breytt í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Á sama tíma tóku gildi ýmsar breytingar á verkefnum og skipulagi ráðuneytanna.
2. Hver var þróun starfsmannafjölda í ráðuneytunum á sama árabili, sundurliðað eftir ráðuneytum?
Samkvæmt launavinnslukerfi ríkisins voru 566,4 stöðugildi (ársverk í dagvinnu) á aðalskrifstofum ráðuneytanna árið 2006 en árið 2009 voru ársverk í dagvinnu 511,2. Í eftirfarandi töflu er yfirlit yfir fjölda ársverka sundurliðað eftir aðalskrifstofum ráðuneyta.
Helstu breytingar á ársverkum milli ára eru vegna skipulagsbreytinga og tilflutnings verkefna milli ráðuneyta, sbr. svar við 1. tölulið fyrirspurnarinnar.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1152 — 598. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um rekstur ráðuneyta og starfsmannafjölda árin 2006–2009.
1. Hver voru útgjöld við rekstur ráðuneyta á árunum 2006, 2007, 2008 og 2009 á föstu verðlagi, sundurliðað eftir ráðuneytum?
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.