Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 391. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1164  —  391. mál.




Nefndarálit



um frv. til lokafjárlaga fyrir árið 2008.

Frá minni hluta fjárlaganefndar.



    Fjárheimildir sem til ráðstöfunar voru á árinu 2008 námu 489,4 milljörðum kr. Útgjöld samkvæmt ríkisreikningi 2008 námu 687,9 milljörðum kr. og staða fjárheimilda í árslok var því neikvæð um 198,5 milljarða kr.
    Helstu skýringar á þessu mikla fráviki er gjaldfærsla á rúmlega 192 milljarða kr. afskrift af veðlánakröfum sem ríkissjóður yfirtók af Seðlabanka Íslands eftir fall bankanna og af verðbréfalánum til aðalmiðlara. Auk þess voru gjaldfærðar ríflega 35 milljarða kr. lífeyrisskuldbindingar umfram áætlun vegna neikvæðrar ávöxtunar og áfalla sem lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins urðu fyrir í kjölfar bankakreppunnar. Reyndar telur minni hlutinn að hér eigi að tilgreina með beinum hætti þau töp sem lífeyrissjóðirnir urðu fyrir á hlutabréfa- og skuldabréfaeign í stað þess að kalla þau neikvæða ávöxtun. Að mati minni hlutans þarf að kanna betur ástæður þess mikla taps sem lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins urðu fyrir og vekur minni hlutinn athygli á því að tapaðar fjármagnstekjur vegna þessa geta einnig numið verulegum fjárhæðum. Þar sem kostnaður vegna þessa taps lífeyrissjóðanna lendir á almenningi hlýtur það að vera eðlileg krafa að gerð verði úttekt á sjóðunum og skipt um stjórnir þeirra að því marki sem unnt er.
    Seðlabanki Íslands og ríkissjóður urðu fyrir verulegu tjóni vegna ótryggra veðlána Seðlabankans til fjármálafyrirtækja. Í lok árs 2008 námu kröfur Seðlabankans vegna þessara lánveitinga 345 milljörðum kr. Bankinn tapaði 75 milljörðum kr. en ríkissjóður yfirtók 270 milljarða kr. Í ríkisreikningi kemur fram að ákveðið var að afskrifa 174,9 milljarða kr. af kröfunum. Bankarnir sem féllu öfluðu sér lausafjár m.a. með því að taka lán hjá minni fjármálafyrirtækjum sem fengu síðan lán hjá Seðlabankanum gegn ótryggðum bréfum. Seðlabankinn herti ekki kröfur um veðtryggingar fyrr en í ágúst 2008 og setti með því skorður við þessari aðferð bankanna til að afla lausafjár.
    Minni hlutinn bendir á að í skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2008 er spurt hvers vegna Seðlabankinn hafi ekki brugðist fyrr við þessum leik bankanna þar sem vitað var um hann. Það er mat Ríkisendurskoðunar að með því hefði mátt draga úr því tjóni sem ríkissjóður og Seðlabankinn urðu fyrir við fall bankanna. Minni hlutinn bendir á að það virðist ekki ætlun fjárlaganefndar að hlusta á þessi orð Ríkisendurskoðunar og óska eftir stjórnsýsluúttekt á Seðlabanka Íslands. Það má því velta því fyrir sér í kjölfarið til hvers þessi hluti af eftirliti Alþingis er. Minni hlutinn minnir á að liðið er á annað ár frá hruninu og enn er Seðlabanki Íslands með sömu verkefni og honum mistókst að leysa í aðdraganda hrunsins. Eftir því sem best er vitað starfar bankinn enn eftir sömu verkferlum og þá. Með lokafjárlögum 2008 er verið að afgreiða ríkisreikning 2008 og koma afleiðingar hrunsins og mistaka Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins skýrt fram í honum. Almenningur greiðir nú kostnaðinn af þessum mistökum í formi hærri skatta, niðurskurðar og skertrar þjónustu.
    Að mati minni hlutans má ætla að miðað við 5% vexti geti vaxtakostnaður vegna þessa taps numið 12,5 milljörðum kr. á ári. Enginn skoðar hvað fór úrskeiðis hjá Seðlabanka Íslands og fjármálaráðuneytinu, en fjöldi aðila kannar hvað gerðist hjá einkaaðilum. Að mati minni hlutans er eðlilegt að fjárlaganefnd Alþingis, sem er fulltrúi almennings við meðferð opinbers fjár, láti skoða og skýra þennan þátt málsins fyrir þjóðinni. Minni hlutinn telur eðlilegt að Ríkisendurskoðun eða annar aðili sem Alþingi velur vinni ítarlega stjórnsýsluúttekt á Seðlabanka Íslands. Jafnframt telur minni hlutinn eðlilegt að inn í úttektina verði tekin þau störf stjórnsýslunnar, og þá sérstaklega fjármálaráðuneytisins og Fjármálaeftirlitsins, sem tengjast þroti Seðlabankans síðustu mánuði fyrir hrun. Minni hlutinn lýsir undrun yfir því að Ríkisendurskoðun skuli ekki að eigin frumkvæði hafa hafið þessa úttekt strax í kjölfar hrunsins og telur það ámælisvert að stofnunin skuli ekki hafa lokið slíkri rannsókn samhliða endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2008.
    Yfirteknar veðlánakröfur Seðlabanka Íslands námu 345 milljörðum kr. Tapaðar veðlánakröfur ríkissjóðs og Seðlabanka Íslands vegna falls bankanna árið 2008 nema um 267 milljörðum kr. sem er um 57% af tekjum ríkissjóðs það ár og um 18% af allri vergri landsframleiðslu ársins. Fáheyrt er að Seðlabankar fari á hausinn, en í raun er hér um að ræða gjaldþrot sem orðið hefur þjóðinni gríðarlega dýrt. Minni hlutinn telur það ámælisvert og í raun óábyrgt að formaður og meiri hluti fjárlaganefndar skuli ekki hafa krafist ítarlegrar stjórnsýsluúttektar á starfsháttum Seðlabanka Íslands vegna ársins 2008.
    Minni hlutinn leggur til að frumvarpinu verði hafnað þar til fullnægjandi skýringar á falli Seðlabanka Íslands hafa verið gefnar og fyrir liggur úttekt um hvað unnt er að læra af þeirri stórkostlegu sóun á opinberum fjármunum sem sér hér átti sér stað. Enginn hefur enn skoðað hvað er að hjá bankanum og ekki hefur enn verið útskýrt fyrir almenningi með fullnægjandi hætti hvað gerðist. Jafnframt þurfa að liggja fyrir nýir verkferlar sem geta tekið með fullnægjandi hætti á aðstæðum sem þessum komi þær aftur upp.

Alþingi, 28. maí 2010.



Þór Saari,


frsm.


Höskuldur Þórhallsson.