Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 512. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1179  —  512. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 38/2005, um happdrætti.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur frá dómsmála- og mannréttindaráðuneyti. Umsagnir bárust um málið frá Krabbameinsfélaginu, Íslenskum getraunum og Íslenskri getspá.
    Með frumvarpinu er lagt til að kveðið verði skýrt á um að bann við að auglýsa, kynna eða miðla upplýsingum um happdrætti, sem ekki hefur leyfi samkvæmt lögum um happdrætti, taki einnig til starfsemi sem er rekin erlendis.
    Nefndin fjallaði um frumvarpið sem felur í sér að b-liður 1. mgr. 11. gr. laganna er tekinn upp í heild þó að einungis sé verið að bæta við hann. Nefndin telur að þegar litið er til sjónarmiða um skýrleika í lagasetningu sé rétt að leggja til viðbót við stafliðinn án þess að hreyft sé við honum öllum.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    1. gr. orðist svo:
    Við b-lið 1. mgr. 11. gr. laganna bætist: óháð því hvort starfsemi þess er rekin hérlendis eða erlendis.

    Valgerður Bjarnadóttir og Ólöf Nordal voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Þór Saari áheyrnarfulltrúi í nefndinni er samþykkur álitinu.

Alþingi, 20. maí 2010.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Birgir Ármannsson.


Ögmundur Jónasson.



Gunnar Bragi Sveinsson.


Róbert Marshall.


Þráinn Bertelsson.