Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 579. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1185 — 579. mál.
um breytingu á lögum nr. 85/2008, um opinbera háskóla (almenningsfræðsla).
a. Í stað orðsins „menntamálaráðherra“ í 1. mgr. kemur: mennta- og menningarmálaráðherra.
b. Í stað orðsins „Menntamálaráðherra“ í 2. mgr. kemur: Ráðherra.
Háskóli sinnir kennslu, rannsóknum, þekkingarleit og sköpun á sviði vísinda, fræða, tækniþróunar eða lista. Hann miðlar fræðslu til almennings og veitir þjóðfélaginu þjónustu í krafti þekkingar sinnar. Háskóla er enn fremur heimilt að sinna endurmenntun þeirra sem lokið hafa háskólaprófi í þeim fræðum sem stunduð eru innan hans.
Ráðherra er heimilt að fela einstökum háskólum að sinna kennslu eða rannsóknum á ákveðnum afmörkuðum sviðum, ótímabundið eða til ákveðins tíma.
Um hlutverk háskóla fer að öðru leyti eftir því sem mælt er fyrir um í lögum nr. 63/2006, um háskóla.
a. 1. tölul. 2. mgr. orðast svo: Tveir fulltrúar háskólasamfélagsins tilnefndir af háskólafundi.
b. 3. tölul. 2. mgr. orðast svo: Einn fulltrúi tilnefndur af ráðherra.
c. Í stað orðsins „Tveir“ í 1. tölul. 3. mgr. kemur: Þrír.
d. 3. tölul. 3. mgr. orðast svo: Tveir fulltrúar tilnefndir af ráðherra.
e. Í stað orðsins „Tveir“ í 4. tölul. 3. mgr. kemur: Þrír.
f. Í stað orðanna „Tveir fulltrúar skv. 4. tölul. 2. mgr. og 4. tölul. 3. mgr.“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: Tveir fulltrúar skv. 4. tölul. 2. mgr., þrír fulltrúar skv. 4. tölul. 3. mgr.“
Í stað orðsins „Menntamálaráðherra“ í 1. mgr. 8. gr. laganna kemur: Ráðherra.
Rektor veitir ótímabundin akademísk störf við háskóla og framgang akademískra starfsmanna. Forseti fræðasviðs veitir tímabundin akademísk störf við skóla og stofnanir sem heyra undir skóla í umboði rektors. Forstöðumaður veitir akademísk störf við stofnun sem heyrir undir háskólaráð í umboði rektors. Veiting starfs skal ákveðin á grundvelli tillögu sem gerð er samkvæmt nánari reglum settum af háskólaráði en þær afmarka jafnframt umboð forseta og forstöðumanna. Þegar starf hefur verið veitt skal gerður um það ráðningarsamningur.
Háskóla er heimilt að bjóða upp á endurmenntun þeirra sem hafa lokið háskólaprófi í þeim fræðum sem viðurkenning hans tekur til, sbr. 3. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006.
Með hugtakinu endurmenntun er í lögum þessum átt við eftirfarandi:
a. námskeið fyrir háskólamenntað fólk á fagsviði þess,
b. viðbótarnám fyrir háskólamenntað fólk á þverfaglegum grunni sem miðar að skilgreindum námslokum eða prófgráðu skv. 22. gr.
a. Í stað orðsins „menntamálaráðuneyti“ í d-lið kemur: mennta- og menningarmálaráðuneyti.
b. E-liður orðast svo: gjöldum fyrir endurmenntun skv. 23. gr. a.
c. Við bætist nýr stafliður sem orðast svo: gjöldum fyrir fræðslu fyrir almenning.
Kjörtímabil þeirra nemenda á háskólafundi sem kjörnir voru í febrúar 2009 framlengist um eitt ár.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1185 — 579. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 85/2008, um opinbera háskóla (almenningsfræðsla).
(Eftir 2. umr., 1. júní.)
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:a. Í stað orðsins „menntamálaráðherra“ í 1. mgr. kemur: mennta- og menningarmálaráðherra.
b. Í stað orðsins „Menntamálaráðherra“ í 2. mgr. kemur: Ráðherra.
2. gr.
Í stað orðsins „menntamálaráðherra“ í 2. gr. laganna kemur: ráðherra.3. gr.
3. gr. laganna orðast svo:Háskóli sinnir kennslu, rannsóknum, þekkingarleit og sköpun á sviði vísinda, fræða, tækniþróunar eða lista. Hann miðlar fræðslu til almennings og veitir þjóðfélaginu þjónustu í krafti þekkingar sinnar. Háskóla er enn fremur heimilt að sinna endurmenntun þeirra sem lokið hafa háskólaprófi í þeim fræðum sem stunduð eru innan hans.
Ráðherra er heimilt að fela einstökum háskólum að sinna kennslu eða rannsóknum á ákveðnum afmörkuðum sviðum, ótímabundið eða til ákveðins tíma.
Um hlutverk háskóla fer að öðru leyti eftir því sem mælt er fyrir um í lögum nr. 63/2006, um háskóla.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:a. 1. tölul. 2. mgr. orðast svo: Tveir fulltrúar háskólasamfélagsins tilnefndir af háskólafundi.
b. 3. tölul. 2. mgr. orðast svo: Einn fulltrúi tilnefndur af ráðherra.
c. Í stað orðsins „Tveir“ í 1. tölul. 3. mgr. kemur: Þrír.
d. 3. tölul. 3. mgr. orðast svo: Tveir fulltrúar tilnefndir af ráðherra.
e. Í stað orðsins „Tveir“ í 4. tölul. 3. mgr. kemur: Þrír.
f. Í stað orðanna „Tveir fulltrúar skv. 4. tölul. 2. mgr. og 4. tölul. 3. mgr.“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: Tveir fulltrúar skv. 4. tölul. 2. mgr., þrír fulltrúar skv. 4. tölul. 3. mgr.“
5. gr.
Í stað orðsins „Menntamálaráðherra“ í 1. mgr. 8. gr. laganna kemur: Ráðherra.
6. gr.
Í stað orðanna „fjallar um og tekur þátt í að móta“ í 2. málsl. 1. mgr. 9. gr. laganna kemur: mótar og setur fram.7. gr.
Í stað orðanna „eins árs“ í lokamálslið 2. mgr. 10. gr. laganna kemur: tveggja ára.8. gr.
Við 1. mgr. 13. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Háskólaráði er heimilt að ákveða að í skólaráði sitji einnig fulltrúar tiltekinna kennslugreina sem saman mynda deild. Enn fremur er háskólaráði heimilt að ákveða að í skólaráði sitji fulltrúi opinberrar stofnunar sem er í mjög nánu samstarfi um kennslu og þjálfun nemenda.9. gr.
1. mgr. 17. gr. laganna orðast svo:Rektor veitir ótímabundin akademísk störf við háskóla og framgang akademískra starfsmanna. Forseti fræðasviðs veitir tímabundin akademísk störf við skóla og stofnanir sem heyra undir skóla í umboði rektors. Forstöðumaður veitir akademísk störf við stofnun sem heyrir undir háskólaráð í umboði rektors. Veiting starfs skal ákveðin á grundvelli tillögu sem gerð er samkvæmt nánari reglum settum af háskólaráði en þær afmarka jafnframt umboð forseta og forstöðumanna. Þegar starf hefur verið veitt skal gerður um það ráðningarsamningur.
10. gr.
Í stað orðsins „skóla“ í 2. mgr. 21. gr. laganna kemur: háskóla.11. gr.
Á eftir 23. gr. laganna kemur ný grein, 23. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:Endurmenntun.
Háskóla er heimilt að bjóða upp á endurmenntun þeirra sem hafa lokið háskólaprófi í þeim fræðum sem viðurkenning hans tekur til, sbr. 3. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006.
Með hugtakinu endurmenntun er í lögum þessum átt við eftirfarandi:
a. námskeið fyrir háskólamenntað fólk á fagsviði þess,
b. viðbótarnám fyrir háskólamenntað fólk á þverfaglegum grunni sem miðar að skilgreindum námslokum eða prófgráðu skv. 22. gr.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 24. gr. laganna:a. Í stað orðsins „menntamálaráðuneyti“ í d-lið kemur: mennta- og menningarmálaráðuneyti.
b. E-liður orðast svo: gjöldum fyrir endurmenntun skv. 23. gr. a.
c. Við bætist nýr stafliður sem orðast svo: gjöldum fyrir fræðslu fyrir almenning.
13. gr.
Í stað orðsins „menntamálaráðherra“ í 1. málsl. 1. mgr. og 2. málsl. 2. mgr. 26. gr. laganna kemur: ráðherra.14. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Kjörtímabil þeirra nemenda á háskólafundi sem kjörnir voru í febrúar 2009 framlengist um eitt ár.
II.