Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 569. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1203 — 569. mál.
um frv. til l. um breyt. á l. um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um ársreikninga (minnihlutavernd o.fl.).
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón Ögmund Þormóðsson og Þóru Hjaltested frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Pál Rúnar Mikaelsson frá Félagi atvinnurekenda, Árnýju Guðmundsdóttur og Kristínu Fjólu Fannberg frá Fjármálaeftirlitinu og Guðrúnu Björk Bjarnadóttur frá Samtökum atvinnulífsins. Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Deloitte hf., Félagi atvinnurekenda, Félagi löggiltra endurskoðenda, Fjármálaeftirlitinu, Hagstofu Íslands, Kauphöll Íslands (OMX Nordic Exchange), Ríkisendurskoðun, ríkislögreglustjóra, ríkisskattstjóra, Samtökum atvinnulífsins, Seðlabanka Íslands og tollstjóranum í Reykjavík.
Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um ársreikninga sem miða að því að auka vernd minni hluthafa. Frumvarpið byggist á skýrslu um vernd minni hluthafa í hlutafélögum og einkahlutafélögum sem Lagastofnun Háskóla Íslands samdi fyrir viðskiptaráðherra í kjölfar bankahrunsins. Í frumvarpinu eru einnig lagðar til breyttar reglur um starfskjör stjórnar og æðstu stjórnenda í hlutafélögum og einkahlutafélögum á grundvelli nýrra EES-tilmæla.
Tilgangur frumvarpsins er fyrst og fremst sá að styrkja vernd minni hluthafa í hlutafélögum og einkahlutafélögum. Sú grundvallarregla gildir í félagarétti að meiri hluti hluthafa ræður alla jafna ferðinni við ákvarðanatöku á hluthafafundi og fer því með æðsta vald í málefnum hvers hlutafélags. En hagsmunir meiri hluta og minni hluta hluthafa fara ekki alltaf saman jafnvel þó að hagsæld félagsins sé almennt helsta hagsmunamál hluthafa. Reglum um vernd minni hluthafa er einkum ætlað að veita valdi meiri hlutans ákveðið mótvægi en slíkar reglur verða þó að hafa takmörk sem byggjast á því að virða verður rétt meiri hlutans til að stjórna félagi og fara með hagsmuni þess.
Helstu ákvæði frumvarpsins sem miða að því að styrkja minnihlutavernd og byggjast á skýrslu Lagastofnunar eru þau að hluthafi mun geta krafist dóms um innlausn hlutar hans ef veigamikil rök standa til þess. Einnig mun ráðgjafi hluthafa njóta málfrelsis á hluthafafundum. Lagðar eru til breyttar reglur um boðun á hluthafafundi og skerpt á upplýsingaskyldu stjórnar og framkvæmdastjórnar. Einnig er lagt til að samþykki hluthafafundar þurfi til að binda félag sé gerður samningur milli þess og fyrirsvarsmanna þess eða tengdra aðila.
Verður nú gerð nánari grein fyrir þeim breytingum sem felast í frumvarpinu og tillögum nefndarinnar til breytinga. Í 2. gr. er nýmæli um að hluthafi geti krafist dóms fyrir því að félagið innleysi hlut hans í félaginu ef veigamikil rök standa til þess og honum verði gert kleift að losna úr því af ákveðnum ástæðum. Það er gert að skilyrði að innlausn leiði ekki til umtalsverðs tjóns fyrir félagið eða leiði með öðrum hætti til ósanngjarnrar niðurstöðu fyrir það. Nefndin leggur til þá breytingu á 2. gr. að hluthöfum verði bætt við upptalningu í 1. tölul. 1. mgr. og ákvæðið eigi ekki við um fjármálafyrirtæki, vátryggingafélög og félög sem hafa verðbréf sín tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi fjármálagerninga (MTF). Síðarnefnda breytingin er tilkomin vegna umræðna í nefndinni um áhrif 2. gr. frumvarpsins á fjármálafyrirtæki og vátryggingafélög. Óbreytt ákvæði hefði getað leitt til þess að fjármálafyrirtæki eignaðist eigin bréf langt yfir 10% af útgefnu hlutafé en samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki getur það varðað stjórnvaldssektum að fara yfir þessi mörk. Þá var talið að ákvæðið gæti haft áhrif á gjaldþol vátryggingafélags. Þar sem mun auðveldara er fyrir hluthafa að selja hluti í félögum sem hafa hluti tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði leggur nefndin til að ákvæðið eigi ekki við um þessi þrjú tilvik.
Í 6. gr. og 12. gr. er lagt til að orðið ,,bersýnilega“ falli brott á tveimur stöðum í lögunum. Annars vegar í 1. mgr. 76. gr. þar sem mælt er fyrir um að félagsstjórn, framkvæmdastjóri o.fl. megi ekki gera neinar þær ráðstafanir sem bersýnilega eru til þess fallnar að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa eða félagsins. Hins vegar er í 95. gr. laganna mælt fyrir um að hluthafafundur megi ekki taka ákvörðun sem bersýnilega er til þess fallin að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa eða félagsins. Er lagt til að orðið „bersýnilega“ verði fellt brott á þessum tveimur stöðum og er talið að þetta geti styrkt minni hluthafa þar sem líkur á ágreiningi um það hvort skilyrðið um ,,bersýnilega“ eigi við verða ekki fyrir hendi.
Í 8. gr. er lagt til að ráðgjafi hluthafa njóti málfrelsis á hluthafafundum og að umboð umboðsmanns hluthafa gildi í eitt ár í stað fimm ára. Í 9. gr. er gert ráð fyrir að ekki þurfi 10% hlutafjár til að gera kröfu um aukafund eins og nú er í íslenskum hlutafélagalögum og sambærilegum dönskum og sænskum lögum, heldur nægi 5%.
Í 10. gr. er gert ráð fyrir því sem aðalreglu að boða þurfi til hluthafafundar í hlutafélögum með skemmst tveggja vikna fyrirvara í stað viku fyrirvara eins og í gildandi lögum en að í undantekningartilfellum megi halda hluthafafund sem er boðaður með skemmst einnar viku fyrirvara ef hluthafar sem ráða yfir a.m.k. 90% af hlutafé samþykkja það fyrir fram skriflega.
Samkvæmt 88. gr. a laga um hlutafélög skal boða til hluthafafundar minnst þremur vikum fyrir fund þegar um félög er að ræða þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði. Um var rætt í nefndinni að það gæti verið þungt í vöfum fyrir óskráð félög að þurfa að boða til hluthafafundar með tveggja vikna fyrirvara. Leggur nefndin því til að áfram verði miðað við að hluthafafundur sé boðaður skemmst viku fyrir fund en þó tveimur vikum fyrir aðalfund félags. Hið sama gildi um þau gögn sem skulu vera aðgengileg hluthöfum, þau verði aðgengileg viku fyrir hluthafafund hið skemmsta en þó tveimur vikum fyrir aðalfund nema frestur til að boða fundinn sé skemmri.
Í 11. gr. er lagt til að skerpt verði á upplýsingarétti félagsstjórnar og framkvæmdastjóra með þeim hætti að það verði gert að skilyrði að tjón verði að teljast ,,verulegt“ til að félagsstjórn eða framkvæmdastjóri geti vikist undan því að veita upplýsingar.
Í 13. gr. er lagt til að samþykki hluthafafundar þurfi til að binda félag þegar gerður er samningur að raunvirði meira en 1/20 hlutafjár milli félagsins og ýmissa fyrirsvarsmanna þess og tengdra aðila. Í þeim tilgangi að gera ákvæðið viðurhlutaminna og betur framkvæmanlegt leggur nefndin til að miðað verði við 1/10 hlutafjár og lágmarksfjárhæð samnings sem ákvæðið nær til verði að svara til lágmarksfjárhæð hlutafjár í hlutafélögum. Einnig leggur nefndin til að ákvæðið nái ekki til samninga fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga og félaga sem hafa verðbréf sín tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi fjármálagerninga (MTF). Nefndin áréttar að ákvæðið á ekki við um t.d. samninga sem eru gerðir í tengslum við eðlilegan rekstur félags, sbr. t.d. 4. tölul. 1. mgr. Samsvarandi ákvæði um einkahlutafélög er í 26. gr. frumvarpsins.
Nefndin leggur til þá breytingu að samningur verði að nafnvirði að nema meira en 1/10 hlutafjár á undirritunartíma samningsins.
Þá er lagt til að tilvísun í stjórnarmenn verði felld brott í upptalningu 2. tölul. 1. mgr. enda tekur hluthafafundur ákvörðun um þóknun stjórnarmanna og því eru ekki gerðir samningar um slíkt við þá. Þá leggur nefndin til að ákvæðið eigi ekki við um fjármálafyrirtæki, vátryggingafélög og félög sem hafa verðbréf sín tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi fjármálagerninga.
Í frumvarpinu eru einnig lagðar til eftirtaldar breytingar á öðrum atriðum laga um hlutafélög og laga um einkahlutafélög en sem miða að því að styrkja vernd minni hluta:
Til að einfalda málsmeðferð er í 1., 3. og 5. gr. lagt til að efnahags- og viðskiptaráðherra geti framselt það vald sem hann hefur skv. 3., 55. og 66. gr. laganna. Í 3. gr. laga um hlutafélög getur efnahags- og viðskiptaráðherra veitt undanþágu frá búsetuskilyrði stofnenda hlutafélaga sem og veitt undanþágu frá skilyrðum 3. mgr. 3. gr. um hverjir geti verið stofnendur hlutafélags. Í 2. mgr. 55. gr. laganna er mælt fyrir um heimild ráðherra til að veita undanþágu frá innköllunarskyldu til lækkunar hlutafjár. Í 2. mgr. 66. gr. getur ráðherra veitt undanþágu frá því að framkvæmdastjórar og minnst helmingur stjórnarmanna hafi búsetu hér á landi. Verði frumvarpið að lögum yrði ráðherra heimilt að framselja vald sitt til hlutafélagaskrár til að spara mönnum sérstaka ferð í ráðuneyti hans.
Í b-lið 3. gr. er lagt til að því verði lýst nákvæmar hverjir skuli skrifa undir tilkynningu um lækkun hlutafjár. Nefndin leggur til breytingu á orðalagi til að tryggja að ekki leiki vafi á því að einnig sé átt við varamenn í stjórn.
Í 4. gr. er gert ráð fyrir breytingu á 3. mgr. 55. gr. laga um hlutafélög í þeim tilgangi að takmarka heimild stjórnar í hlutafélögum þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, eða á markaðstorgi fjármálagerninga eins og það er kallað, til að ákveða þá fjárhæð sem félagið má reiða fram sem endurgjald fyrir kaup á eigin hlutum. Ákvæðin taka líka til sölu á eigin hlutum þessara félaga. Gert er ráð fyrir því að miðað skuli við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en samningur var gerður til að draga úr líkum á kaupum á yfirverði eða sölu á undirverði. Jafnframt er gert ráð fyrir því að í öðrum hlutafélögum geti hluthafar sem ráða yfir minnst 5% hlutafjár krafist þess innan mánaðar frá því að stjórn tilkynnir um samning að endurskoðanda verði falið að meta hvort það verð sem stjórn hefur samið um sé sanngjarnt og efnislega rökstutt. Komist endurskoðandi að þeirri niðurstöðu að svo hafi ekki verið getur hluthafi eftir atvikum átt bótaábyrgð á hendur félaginu eða stjórn þess. Vísast til skaðabótakafla laganna í því sambandi. Þannig getur háttað til að stjórn hafi gert fyrirvara í samningi um hugsanlegar athugasemdir hluthafa þannig að gera megi breytingar og ekki reyni á skaðabótaábyrgð.
Í 7. gr. er gert ráð fyrir breytingum á 79. gr. a í hlutafélagalögum vegna nýrra tilmæla framkvæmdastjórnarinnar 2009/385/EB frá 30. apríl 2009, um breytingu á tilmælum 2004/ 013/EB og 2005/165/EB að því er varðar starfskjör stjórnenda í félögum sem hafa fjármálagerninga sína tekna til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði. Starfskjarastefna í félögum þykir stundum hafa tekið mið af skammtímasjónarmiðum og er nú m.a. leitast við að hafa árangur félaga í huga, setja takmörk á breytilega þætti starfskjaranna, fresta útborgunum og miða t.d. við þrjú til fimm ár, gera ráð fyrir endurgreiðslum í vissum tilvikum og reyna að tryggja að starfslokagreiðslur séu ekki inntar af hendi í kjölfar slaks árangurs. Þá er gert ráð fyrir að stjórnarmenn skuli ekki njóta kaupréttar á hlutum. Felast í tillögunum hömlur á frjálsræði félaga á þessu sviði. Tilmæli framkvæmdastjórnarinnar 2009/384/EB frá 30. apríl 2009, um starfskjarastefnu í fjármálageiranum, eru ekki tekin til meðferðar í þessu frumvarpi. Almenn ákvæði þessarar greinar frumvarpsins gilda þó um starfskjarastefnu í fjármálageiranum nema sérákvæði víki þeim til hliðar. Nefndin leggur til nokkrar breytingar á ákvæðinu. Lagt er til að þess verði getið í 3. tölul. 1. mgr. 79. gr. a laganna að sá töluliður eigi ekki við um stjórnarmenn. Þá eru lagðar til orðalagsbreytingar þar sem rætt var um það í nefndinni að óheppilegt væri að í lagatexta væri vísað til þess að hafa bæri hliðsjón af „EES-samþykktum“, sömuleiðis er lagt til að orðið ,,almennt“ verði fellt brott úr 3. tölul.
Í 14. gr. er gert ráð fyrir að sett verði svipað ákvæði um tryggingu fyrir greiðslu kostnaðar á rannsókn og er í 87. gr. hlutafélagalaga um tryggingu fyrir greiðslu kostnaðar vegna boðunar til fundar.
Þær breytingar sem eru lagðar til á lögum um einkahlutafélög eru sambærilegar við nokkrar þeirra breytinga sem er lagt til að verði gerðar á lögum um hlutafélög. Nefndin gerir þó ráð fyrir því að 23. gr. frumvarpsins falli brott þar sem kveðið er á um fresti til að boða til funda í einkahlutafélögum og er því gert ráð fyrir því að ákvæði laga um einkahlutafélög verði óbreytt um það.
Í 28. gr. er gert ráð fyrir breytingu á 2. mgr. 96. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, þannig að 1/10 hlutafjárins nægi í stað 1/5 til að samþykkja tilnefningu á endurskoðanda minni hluta sem taki þátt í endurskoðunarstörfum með kjörnum endurskoðanda til næsta aðalfundar. Þetta er talið stuðla að aukinni minnihlutavernd.
Nefndin leggur til að við frumvarpið bætist tvær nýjar greinar þess efnis að 136. gr. laga um hlutafélög og 110. gr. laga um einkahlutafélög falli brott en þar eru sérákvæði um málshöfðunarfresti. Verði breytingartillagan samþykkt takmarkast málshöfðanir vegna skaðabóta á grundvelli 134. og 135. gr. laga um hlutafélög og 108. og 109. gr. laga um einkahlutafélög af almennum reglum um tómlæti og fyrningu kröfuréttinda. Gert er ráð fyrir því að ákvæðið sé afturvirkt, sbr. breytingu nefndarinnar á 30. gr. frumvarpsins. Breytingin felur í sér að í stað þess að mál skuli höfðað innan tveggja ára frá því bótaskyld háttsemi átti sér stað gildi almennur fyrningarfrestur skaðabótakrafna sem er fjögur ár frá þeim degi sem tjónþoli fékk nauðsynlegar upplýsingar um tjónið og þann sem ber ábyrgð á því skv. 9. gr. laga um fyrningu kröfuréttinda, nr. 150/2007. Þau lög öðluðust gildi 1. janúar 2008 og eiga einungis við um þær kröfur sem stofnast hafa eftir gildistöku þeirra. Sé um að ræða skaðabótakröfur sem stofnuðust fyrir 1. janúar 2008 nemur fyrningarfresturinn 10 árum frá hinum bótaskylda atburði, sbr. 2. tölul. 4. gr. eldri fyrningarlaga.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
Eygló Harðardóttir og Sigurður Kári Kristjánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1203 — 569. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um ársreikninga (minnihlutavernd o.fl.).
Frá viðskiptanefnd.

Alþingi, 3. júní 2010.
Lilja Mósesdóttir,
form., frsm.
Magnús Orri Schram.
Árni Þór Sigurðsson.
Mörður Árnason.
Jónína Rós Guðmundsdóttir.
Margrét Tryggvadóttir.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
með fyrirvara.