Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 610. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1213  —  610. mál.




Svar



dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um umhverfisvæna greftrun.

     1.      Hvernig er staðið að greftrun og líkbrennslu á Íslandi?

    Samkvæmt 1. gr. laga um kirkjugarða o.fl., nr. 36/1993, er skylt annaðhvort að greftra lík í lögmætum kirkjugarði eða brenna þau í viðurkenndri bálstofu.
    Þegar greftrun á sér stað eru lík lögð í kistu og þær síðan settar í grafir sem eru það djúpar að minnst einn metri er frá kistuloki á grafarbarm.
    Ein bálstofa er á Íslandi, hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma í Fossvogi. Líkin eru brennd í líkbrennsluofni við mikinn hita. Öskunni er síðan komið fyrir í duftkerjum og þau ýmist sett í venjulegar grafir eða í grafir í sérstökum duftkersreitum eða öskunni er stráð í viðurkenndum minningarlundi innan kirkjugarðs eða öskunni er dreift yfir sjó eða öræfi, en eftir lagabreytingu árið 2002 geta nánustu aðstandendur fengið leyfi ráðuneytisins til slíkrar dreifingar.

     2.      Hver er umhverfismengunin af greftrun og líkbrennslu?

    Umhverfismengun af völdum greftrunar getur fyrst og fremst stafað frá því efni sem kistur eru smíðaðar úr, einkum timbri, málmum og plasti.
    Sérstakt átak var gert í þessum efnum árið 2007 en með reglugerð nr. 668/2007 voru verulegar breytingar gerðar á reglugerð um kistur, duftker, greftrun og líkbrennslu. Var stefnt að því gera efnin vistvænni og að lágmarka mengun við niðurbrot kistu eða duftkers í jarðvegi. Til dæmis var áskilið að allur viður skyldi vera óvatnsvarinn, gegnheill viður, spónaplötur (E1) og MDF (Medium Density Fiberboard). Handföng skulu vera úr tré eða plasti sem hefur eðlilegt niðurbrot og samlagast jarðvegi og valda ekki mengun. Ef um reipi er að ræða eiga þau að vera gerð úr trefjum sem tilheyrir plönturíkinu. Skrautmunir skulu vera úr niðurbrjótanlegu efni sem samlagast jarðvegi. Málning á kistum má ekki geyma þungmálma og kistur mega ekki vera plastklæddar. Skrúfur og samsetningarefni, svo sem vinklar, mega ekki vega meira en 200 g í hverri kistu. Líkklæði skulu vera úr niðurbrjótanlegu efni. Niðurbrot á líkama hins látna getur tekið mismunandi langan tíma, m.a. vegna mismunandi jarðvegs, en að lokum aðlagast hann jarðveginum, nema þau aðskotaefni sem eru í líkamanum, svo sem kvikasilfur í tönnum, járnpinnar, mjaðmakúlur, o.fl.
    Að því er bálstofuna snertir þá eru lík brennd í kistum. Reynt er að lágmarka mengunarvaldandi þætti með sama hætti og í öðrum kistum. Mengun af völdum látinna manna sem eru brenndir, stafar einkum frá kvikasilfri (amalgam) í tönnum, járnteinum og öðrum aðskotahlutum. Hreinsibúnaður brennsluofnsins sem er frá árinu 1948 var endurnýjaður fyrir nokkrum árum og er reglulega fylgst með mengun í útblæstri. Til fróðleiks fylgir skýrsla sem gerð var af Efnagreiningum Keldnaholti í janúar 2007 varðandi mat á kvikasilfursmengun frá líkbrennslu og dreifingarspá varðandi Bálstofuna í Fossvogi.

     3.      Hefur verið skoðaður möguleikinn á að leyfa þurrfrystingu við greftrun til að draga úr umhverfismengun?
    Ráðuneytinu er kunnugt um og hefur fylgst með þessari vistvænu aðferð sem lýst er, þ.e. þurrfrystingu, en sænskur líffræðingur og verkfræðingur, Susanne Wiigh-Mäsak að nafni, kynnti hana árið 2001 og fékk einkaleyfi fyrir henni í Svíþjóð fyrir nokkrum árum. Aðferðin er þannig að lík er fryst niður í -18°C. Síðan er kistunni með líkinu sökkt í fljótandi köfnunarefni. Við þetta verður líkaminn frauðkenndur og síðan er kistan sett á bretti og hrist til. Við hristinginn verður líkið nánast að dufti. Með því að setja duftið í segulsvið er svo unnt að skilja kvikasilfur og aðra málma frá. Þá eru eftir 5–30 kg af dufti sem loks er sett í umhverfisvæna kistu sem búin er til úr maíssterkju eða kartöflusterkju og hún síðan jarðsett. Kistan og askan aðlagast síðan jarðveginum á 6–12 mánuðum. Með því að gróðursetja tré á leiðið mun það soga í sig næringarefnin sem losna úr læðingi.
    Þessi aðferð hefur ekki fengið almenna útbreiðslu en tilraunir standa enn yfir í Svíþjóð og víðar, m.a. í Kanada.



Fylgiskjal.

Efnagreiningar,
Hermann Þórðarson.


Skýrsla um mat á kvikasilfursmengun frá líkbrennslu og dreifingarspá.
Kirkjugarðar Reykjavíkur Fossvogi. Janúar 2007.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.