Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 655. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1231  —  655. mál.




Fyrirspurn



til félags- og tryggingamálaráðherra um bótagreiðslur til foreldra með sameiginlegt forræði.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Hver er ástæða þess að foreldrar með sameiginlegt forræði fá ekki báðir umönnunarbætur og bætur vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna?
     2.      Stendur til að breyta þessu? Ef svo er, hvenær má vænta slíkra breytingar? Ef ekki, hverju sætir það?