Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 588. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1248 — 588. mál.
félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Ragnheiðar E. Árnadóttur um sumarlokanir á heimilum og stofnunum fyrir aldraða, fatlaða eða sjúka.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu mörgum heimilum, stofnunum eða deildum innan þeirra fyrir aldraða, fatlaða eða sjúka, sem heyra undir ráðuneytið, er fyrirhugað að loka tímabundið í sumar vegna sumarleyfa?
2. Hversu marga íbúa, þjónustuþega eða sjúklinga munu sumarlokanirnar snerta?
3. Hvaða úrræði standa viðkomandi einstaklingum og fjölskyldum þeirra til boða vegna þessa?
Aldraðir.
Félags- og tryggingamálaráðherra fer með yfirstjórn öldrunarmála samkvæmt lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.
Þótt yfirstjórn öldrunarmála sé frá 1. janúar 2008 hjá félags- og tryggingamálaráðherra hafa ekki allar rekstrarheimildir fyrir hjúkrunarrými, dvalar- eða dagvistarrými ennþá verið færðar frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Svar við fyrirspurninni tekur því einvörðungu til þeirra rýma sem heyra rekstrarlega undir félags- og tryggingamálaráðuneytið eins og raunar 1. tölul. fyrirspurnarinnar mælir fyrir um. Meðfylgjandi er til skýringa yfirlit yfir fjölda hjúkrunarrýma, dvalarrýma og dagvistarrýma, skipt eftir landshlutum og stofnunum (sjá fylgiskjal). Þar kemur einnig fram til hvors ráðuneytisins hver stofnun heyrir rekstrarlega.
Engin rými á hjúkrunar- og dvalarheimilum verða lokuð í sumar.
Dagvistarrými á Breiðdalsvík verða ef til vill lokuð í eina viku í lok júlí eða byrjun ágúst.
Dagvistarrými á Sauðárkróki verða lokuð að hluta á tímabilinu 11. júlí–8. ágúst. Lokunin mun snerta 22 einstaklinga en í staðinn verður boðið upp á böðun og tíðara innlit heima.
Fatlaðir.
Svæðisskrifstofa Vesturlands, Svæðisskrifstofa Vestfjarða, Svæðisskrifstofa Austurlands: Engar sumarlokanir fyrirhugaðar.
Svæðisskrifstofa Suðurlands:
Lokunin mun ná til:
* Svæðisskrifstofunnar sem verður lokuð 12. júlí – 16. júlí.
* Viss, vinnu- og hæfingarstöðvar á Selfossi og í Þorlákshöfn sem verður lokuð 5. júlí – 30. júlí.
* Skammtímavistunar á Selfossi sem verður lokuð 14. júní – 27. júlí.
Lokunin mun snerta:
* Viss, vinnu- og hæfingarstöð. Lokunin mun snerta 43 aðila.
* Skammtímavistun. Lokunin mun snerta 25 manns á aldrinum 9–47 ára.
Úrræði sem viðkomandi einstaklingum eða fjölskyldum þeirra munu standa til boða:
* Almennt tekur fólk sitt eigið sumarleyfi á þeim tíma sem lokunin er. Einnig nýtir fólk sér önnur tilboð á þessum tíma, t.d. sumardvalir, ferðalög o.fl.
* Í skammtímavistun er boðið upp á aukna þjónustu við 2–4 einstaklinga sem þurfa á mikilli þjónustu að halda. Sú aukning er í boði í þrjár vikur þegar skammtímavistunin er lokuð.
Svæðisskrifstofa Reykjanes (SMFR):
Lokunin mun ná til:
* Hæfingarstöðvar og starfsþjálfunarstaðar, þ.e. vinnustaða fyrir fatlað fólk og dreifist yfir mismunandi tíma:
– Bæjarhraun 21. júní – 16. júlí.
– Dalvegur 28. júní – 23. júlí.
– Fannborg 19. júlí – 13. ágúst.
– Örvi 12. júlí – 6. ágúst.
– Hafnargata 5. júlí – 30. júlí.
Lokunin mun snerta:
* 131 einstakling.

* Nær allir einstaklingar sem þessi skerðing snertir búa á heimilum á vegum SMFR og fá þar þjónustu. Þeir taka sumarfrí frá vinnu þær vikur sem lokað er og fara þá flestir í einhverjar sumardvalir eða önnur ferðalög a.m.k. hluta þess tíma. Eitthvert aukið álag getur þó komið til í búsetuþjónustunni en reynsla síðasta árs styður að þetta sé gert aftur. Hingað til hefur SMFR skipulagt lokanir þannig að alltaf sé einhver hæfingarstöð opin og þá unnt að færa einhverja þjónustu á milli sé þörf á.
Svæðisskrifstofa Reykjavíkur:
Lokunin mun ná til:
* Eikjuvogar sem verður lokað 13. júlí – 2. ágúst.
* Holtavegar sem verður lokað 13. júlí – 2. ágúst.
* Hólabergs sem verður lokað 15. júlí – 5. ágúst.
Lokunin mun snerta:
* Flesta sem fá skammtímavistun, eða um það bil 65 einstaklinga, en þess ber þó að geta að nýtingarhlutfall hefur dregist mjög saman á þessum tíma á undanförnum árum.

* Gert er ráð fyrir að börn og aðrir sem fá skammtímavistun séu á þessum tíma í sumardvöl eða leyfum með foreldrum sínum og fjölskyldum.
* Á undanförnum árum hafa skammtímavistanirnar verið lokaðar tvær vikur í senn á hverju sumri.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins verður lokuð í þrjár vikur frá og með mánudeginum 12. júlí.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð blindra sjónskertra og daufblindra einstaklinga: Engar sumarlokanir fyrirhugaðar.
Þjónustuaðilar með samning við félags- og tryggingamálaráðuneytið vegna reksturs sértækrar félagsþjónustu við fatlaða.
Sveitarfélagið Hornafjörður: Engar sumarlokanir fyrirhugaðar.
Vestmannaeyjabær:
Lokunin mun ná til:
* Frístundavers grunnskólabarna sem verður lokað í júníbyrjun en nokkur fötluð börn hafa nýtt sér það úrræði.

* Vestmannaeyjabær styrkir aðila sem bjóða upp á sumarúrræði fyrir börn gegn því að þau láti börn með sérþarfir vera í forgangi.
Styrktarfélagið Ás:
Lokunin mun ná til:
* Skrifstofunnar í Skipholti 50c sem verður lokuð 19. júlí – 6. ágúst.
* Lyngáss sem verður lokaður 12. júlí – 16. júlí.
* Bjarkaráss sem verður lokaður 28. júní – 23. júlí.
* Lækjaráss sem verður lokaður 5. júlí – 23. júlí.
* Áss vinnustofu sem verður lokuð 19. júlí – 13. ágúst.
Lokunin mun snerta:
* Alla einstaklinga sem eru í dagþjónustu, alls 157 manns, en eðlilegt er talið að fólk með fötlun taki sumarleyfi eins og aðrir.

* Komi upp vandamál á þessum lokunardögum hefur verið reynt að leysa úr þeim málum eins og mögulegt er.
Byggðasamlag Norðurlands vestra:
Lokunin mun ná til:
* Skammtímavistunar á Sauðárkróki sem mun hafa lokað fjóra sólarhringa í maí, fjóra sólarhringa í júní, óvíst með júlí og fimm sólarhringa í ágúst.
* Iðju/dagvistar á Hvammstanga sem mun hafa lokað í fjórar vikur í sumar, iðju/dagvistar á Blönduósi sem verður lokuð í fimm vikur í sumar, iðju/dagvistar á Sauðárkróki sem mun hafa lokað í fjórar vikur í sumar og iðju/dagvistar á Siglufirði sem mun hafa lokað í fjórar vikur í sumar.
Lokunin mun snerta:
* Tólf einstaklinga í skammtímavistun.
* Í iðju/dagvist mun lokunin snerta fjóra einstaklinga á Hvammstanga, fimm einstaklinga á Blönduósi, 16 einstaklinga á Sauðárkróki og 13 einstaklinga á Siglufirði.

* Sumarfrí notenda og aðstoð frá búsetuþjónustu í iðju/dagvist á Hvammstanga.
* Sumarfrí og afþreying tengd sambýlisþjónustu í iðju/dagvist á Blönduósi.
* Sumarfrí notenda og aðstoð frá búsetuþjónustu í iðju/dagvist á Sauðárkróki.
* Sumarfrí notenda og aðstoð frá búsetuþjónustu í iðju/dagvist á Siglufirði.
Akureyrarkaupstaður:
Lokunin mun ná til:
* Þriggja þjónustustaða, þ.e. skammtímavistunar, hæfingarstöðvar og starfsþjálfunar/ vinnustaðar. Önnur þjónusta helst opin/óbreytt yfir sumartímann.
* Skammtímavistunar sem verður lokuð í 12 daga, þ.e. 9. ágúst – 18. ágúst.
* Skógarlundar/Birkilundar, hæfingarstöðvar sem verður lokuð 12. – 23. júlí.
* Plastiðjunnar Bjargs/Iðjulundar sem mun verða lokuð 19. júlí – 6. ágúst.
Lokunin mun snerta:
* 14 einstaklinga í skammtímavistun.
* Alla notendur hæfingarstöðvarinnar Skógarlundar/Birkilundar, 53 talsins.
* 30 einstaklinga í fastri vinnu (ótímabundinni ráðningu) og 26 í starfsþjálfun/endurhæfingu hjá Plastiðjunni Bjargi/Iðjulundi.

* Einstaklingarnir í skammtímavistun fá aukna samfellda þjónustu fyrir lokun og þar sem mest er þörfin koma þau aftur inn strax eftir lokun.
* Einstaklingar sem eru á hæfingarstöðinni Skógarlundi/Birkilundi og eru í búsetuþjónustu fá þjónustu á heimilum sínum eða fara í orlofsdvöl á þessum tíma. Aðrir fá ekki þjónustu í stað þeirrar sem fellur niður en fara í sumarleyfi á þessum tíma.
* Af þeim einstaklingum sem starfa hjá Plastiðjunni Bjargi/Iðjulundi og eru í vinnu/ þjálfun fara 14–16 í sumarvinnu á vegum Akureyrarbæjar með stuðningi frá Atvinnu með stuðningi.
Norðurþing: Engar sumarlokanir fyrirhugaðar.
Fylgiskjal.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1248 — 588. mál.
Svar

Fjöldi hjúkrunar-, dvalar- og dagvistarrýma, skipt eftir svæðum.
(Uppfært 9. febrúar 2010.)
| Hjúkrunarrými 2010 |
Dagvistarrými 2010 |
Dvalarrými 2010 |
||
| Reykjavík | ||||
| Droplaugarstaðir* | 82 | 0 | 0 | |
| Eir* | 173 | 0 | 24 | |
| Fell | 0 | 24 | 0 | |
| Fríðuhús | 0 | 0 | 15 | |
| Grund | 187 | 29 | 0 | |
| Hlíðarbær | 0 | 0 | 20 | |
| Hrafnista (DAS) Reykjavík | 246 | 62 | 30 | |
| LSH | 18 | 0 | 20 | |
| Lindargata 59 | 0 | 0 | 18 | |
| Múlabær | 0 | 0 | 48 | |
| Seljahlíð | 20 | 0 | 0 | |
| Skjól* | 109 | 0 | 0 | |
| Skógarbær* 1) | 81 | 0 | 0 | |
| Sóltún* | 92 | 0 | 0 | |
| Víðines | 38 | 0 | 0 | |
| Maríuhús | 0 | 0 | 20 | |
| MS Dagvistun | 0 | 0 | 40 | |
| Þorragata 3 | 0 | 0 | 40 | |
| Rými samtals: | 1.046 | 115 | 275 | |
| Höfuðborgarsv. annað en Reykjavík | ||||
| Drafnarhús, Hafnarfirði | 0 | 0 | 20 | |
| Hrafnista, (DAS) Hafnarfirði | 158 | 66 | 26 | |
| Sólvangur, Hafnarfirði* | 55 | 0 | 0 | |
| Vífilsstaðir, Garðabæ | 50 | 0 | 0 | |
| Holtsbúð, Garðabæ | 40 | 0 | 10 | |
| Sunnuhlíð, Kópavogi* | 73 | 0 | 18 | |
| Roðasalir, Kópavogi | 11 | 0 | 20 | |
| Skjólbraut, Kópavogi | 0 | 11 | 0 | |
| Gullsmári, Kópavogi | 0 | 11 | 0 | |
| Dagvist Seltjarnarnesbæjar | 0 | 0 | 9 | |
| Hlaðhamrar, Mosfellsbæ | 0 | 0 | 9 | |
| Rými samtals: | 387 | 88 | 112 | |
| Reykjanes | ||||
| Grindavíkurbær – dagvist. | 0 | 0 | 5 | |
| Víðihlíð, Grindavík* | 25 | 0 | 0 | |
| Garðvangur, Garði | 39 | 0 | 0 | |
| Hlévangur, Reykjanesbæ | 32 | 0 | 0 | |
| Reykjanesbær – dagvist. | 0 | 0 | 26 | |
| Rými samtals: | 96 | 0 | 31 | |
| Vesturland | ||||
| Heilbrigðisst. Akranesi* | 26 | 0 | 0 | |
| Höfði, Akranesi | 48 | 30 | 20 | |
| Dvalarheimilið í Borgarnesi | 32 | 19 | 3 | |
| Jaðar, Ólafsvík | 10 | 5 | 2 | |
| Fellaskjól, Grundarfirði | 9 | 3 | 2 | |
| Dvalarheimilið í Stykkish. | 9 | 10 | 2 | |
| St. Franciskusp. Stykkish* | 9 | 0 | 0 | |
| Silfurtún, Búðardal | 8 | 6 | 0 | |
| Fellsendi Búðardal** | 26 | 0 | 0 | |
| Rými samtals: | 177 | 73 | 29 | |
| Vestfirðir | ||||
| Barmahlíð, Reykhólum | 14 | 2 | 2 | |
| Heilbrigðisst. Patreksfirði* | 16 | 0 | 2 | |
| Vesturbyggð, Bíldudal | 0 | 0 | 3 | |
| Sjúkraskýlið, Suðureyri | 0 | 0 | 5 | |
| Hlíf, Ísafirði | 0 | 0 | 8 | |
| Heilbrigðisst. Ísafirði* | 31 | 0 | 0 | |
| Heilbrigðisst. Bolungarvík* | 13 | 0 | 0 | |
| Heilbrigðisst. Hólmavík* | 12 | 0 | 2 | |
| Rými samtals: | 86 | 2 | 22 | |
| Norðurland vestra | ||||
| Heilbrigðisst. Hvammst.* | 24 | 0 | 0 | |
| Dagvist heilbrst. Hvammst. | 0 | 0 | 3 | |
| Heilbrigðisst. Blönduósi* | 27 | 9 | 0 | |
| Sæborg, Skagaströnd | 5 | 4 | 2 | |
| Heilbrigðisst. Sauðárkróki* | 41 | 9 | 0 | |
| Dagvistun Skagafjarðar | 0 | 0 | 11 | |
| Dagvistun aldraðra Blönduósi | 0 | 0 | 2 | |
| Dagvist Siglufjarðarkaupstaðar | 0 | 0 | 7 | |
| Heilbrigðisst. Siglufirði* | 27 | 0 | 0 | |
| Rými samtals: | 124 | 22 | 25 | |
| Norðurland eystra | ||||
| Hornbrekka, Ólafsfirði | 18 | 11 | 6 | |
| Dalbær, Dalvík | 24 | 20 | 14 | |
| Samningur við Akureyrarbæ* | 167 | 28 | 32 | |
| Dagvist Eyjafjarðarsveitar | 0 | 0 | 1 | |
| Grenilundur, Grenivík | 4 | 6 | 0 | |
| Heilbrigðisst. Þingeyinga* | 23 | 0 | 0 | |
| Hvammur, Húsavík | 10 | 30 | 13 | |
| Mörk, Kópaskeri | 0 | 0 | 5 | |
| Vík, Raufarhöfn | 0 | 0 | 5 | |
| Naust, Þórshöfn | 13 | 3 | 4 | |
| Rými samtals: | 259 | 98 | 80 | |
| Austurland | ||||
| Heilbrst. Austurl. Vopnafirði* | 12 | 0 | 0 | |
| Heilbrst. Austurl. Egilsst.* | 17 | 0 | 0 | |
| Fljótsdalshérað | 0 | 8 | 6 | |
| Heilbrst. Austurl. Seyðisfirði* | 18 | 0 | 5 | |
| Hulduhlíð, Eskifirði | 18 | 7 | 5 | |
| Heilbrst. Austurl. Neskaupst.* | 9 | 0 | 2 | |
| Uppsalir, Fáskrúðsfirði | 13 | 12 | 2 | |
| Breiðdalsvík | 0 | 0 | 5 | |
| Samningur við Hornafjörð* | 26 | 6 | 6,5 | |
| Rými samtals: | 113 | 33 | 31,5 | |
| Suðurland | ||||
| Ás/Ásbyrgi, Hveragerði*** | 31 | 65 | 0 | |
| Dagvistun Hveragerði | 0 | 0 | 5 | |
| Egilsbraut, Þorlákshöfn | 0 | 0 | 6 | |
| Sólvellir, Eyrabakka | 3 | 13 | 0 | |
| Kumbaravogur, Stokkseyri | 39 | 7 | 0 | |
| Heilbrigðisst. Selfossi* | 40 | 0 | 0 | |
| Árborg, dagvistun | 0 | 0 | 21 | |
| Blesastaðir, Skeiðum | 3 | 10 | 0 | |
| Lundur, Hellu | 28 | 3 | 2 | |
| Kirkjuhvoll, Hvolsvelli | 16 | 16 | 2 | |
| Hraunbúðir, Vestmannaeyjum | 30 | 8 | 10 | |
| Heilbrst. Vestmannaeyjum | 13 | 0 | 0 | |
| Hjallatún, Vík | 12 | 6 | 0 | |
| Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri | 15 | 4 | 1 | |
| Samtals: | 230 | 132 | 47 | |
| Samtals á landinu öllu | 2.518 | 563 | 653 | |
| * Rými fyrir aldraða sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið. | ||||
| ** Rými fyrir geðsjúka | ||||
| *** Til viðbótar uppgefnum rýmum eru 45 rými fyrir geðfatlaða | ||||
| 1) Þar af 11 hjúkrunarrými fyrir fólk undir ellilífeyrisaldri | ||||