Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 607. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1261 — 607. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um rekstur ÁTVR árin 2002– 2010.
1. Hver er markaðskostnaður ÁTVR árin 2002–2010, þ.e. við auglýsingar, bæklinga, ráðgjöf, hönnun, birtingar og þess háttar?
2. Hver er húsnæðiskostnaður ÁTVR á framangreindu tímabili og hvað skýrir breytingar á kostnaðinum á þessum árum að mati ráðherra? Hver er kostnaður ÁTVR af breytingum á vínbúðum, innan og utan?
3. Hver er þróun rekstrarkostnaðar ÁTVR á tímabilinu og hvað skýrir breytingar á kostnaðinum að mati ráðherra?
Svar óskast sundurliðað eftir árum (áætlað 2010).
Almennt.
Rekstrarkostnaður ÁTVR helst að verulegum hluta í hendur við aukna sölu á áfengi og breytingar á söluverði áfengis og tóbaks. Ef heildarrekstrarkostnaður ÁTVR er skoðaður á föstu verðlagi er hann nánast fasti, eins og sjá má á mynd hér á eftir. Sala hefur aukist verulega í magni en verð á áfengi lækkað sé miðað við fast verðlag.
Markaðs- og kynningarkostnaður hefur rúmlega tvöfaldast, á föstu verðlagi, á árunum 2002–2009. Helstu skýringar þessa eru aukið innra markaðsstarf og útgáfa á prentuðu efni hjá ÁTVR. Aukin krafa er frá samfélaginu um áherslu á samfélagslega ábyrgð, t.d. með þátttöku í forvarnarstarfi, með auglýsingum, m.a. í sjónvarpi og blöðum og útvarpi. Leiðarljós verslunarinnar er að ná fram ábyrgari neyslu á áfengi hjá almenningi. Með markaðsstarfi reynir ÁTVR að hafa áhrif á viðhorf til áfengismála í samfélaginu. ÁTVR selur vöru sem getur verið mjög skaðleg fyrir neytandann og samfélagið. Þess vegna hvetur ÁTVR viðskiptavini sína til heilbrigðar og ábyrgrar neyslu. Í því felst meðal annars að söluvaran sé notuð í hófi og við réttar aðstæður. ÁTVR lítur á það sem eitt af mikilvægustu verkefnum sínum að standa vörð um unga fólkið og vernda það gagnvart áfengi og misnotkun þess. Breyta þarf þeim viðhorfum í þjóðfélaginu að áfengisneysla unglinga sé í lagi. ÁTVR fylgir því ströngum reglum um aldurseftirlit og er í samstarfi við lögreglu og forvarnaraðila. Einnig fer ÁTVR í herferðir sem beinast að þessu markmiði og er „Bíddu“-herferðin gott dæmi um það. Undir markaðs- og kynningarkostnaði er einnig þátttaka í könnunum, t.d. vinnustaðagreiningu, birgjakönnunum, Íslensku ánægjuvoginni o.fl.
Ef þróun áfengissölu er skoðuð og hún borin saman við fjölgun vínbúða og fermetrafjölda, sbr. mynd hér á eftir, sést að góð samsvörun er milli aukningar í sölu áfengis og aukins húsakosts. Aukin umsvif ÁTVR í fjölda vínbúða og stækkun vöruhúss á Stuðlahálsi eru viðbrögð við aukinni eftirspurn. Ef skoðaður er kostnaður við rekstur og viðhald húsnæðis, á föstu verðlagi, kemur í ljós að flestir liðir hafa haldist nær óbreyttir þrátt fyrir aukinn fermetrafjölda. Þeir liðir sem hafa hækkað eru húsaleiga og viðhaldskostnaður. Sérstaklega hækkuðu þessir liðir árin 2008 og 2009 og eiga þeir sínar skýringar í efnahagshruninu. Ef þessar miklu hækkanir á húsaleigu og viðhaldi árin 2008 og 2009 hefðu ekki komið til væri þessi kostnaður á fermetra á föstu verðlagi nær óbreyttur árin 2002–2009.
Markaðskostnaður.
Markaðs- og kynningarkostnaður samanstendur af útgáfu vöruskrár sem jafnan er gefin út fjórum sinnum á ári og útgáfu fræðsluefnis, þ.m.t. þemadagaefnis fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Seinni árin hefur verið aukin áhersla á samfélagslega ábyrgð með birtingu auglýsinga í sjónvarpi, útvarpi, dagblöðum og á netinu. Auglýsingarnar hafa bæði verið í nafni vínbúðanna og í samvinnu við aðra, t.d. Umferðarstofu. Undir þennan lið fellur kostnaður vegna reglulegra markaðskannana um ánægju viðskiptavina, birgjakannanir og vinnustaðagreining starfsfólks. ÁTVR hefur t.d. verið þátttakandi í Íslensku ánægjuvoginni frá árinu 2003.
Húsnæðiskostnaður.
Stefna ríkisins er almennt að leigja húsnæði af því tagi sem hentar starfsemi ÁTVR og hefur fyrirtækið fylgt þeirri stefnu um margra ára skeið. Í þeim tilfellum fellur viðhald utanhúss að jafnaði á leigusalann. Mestur hluti kostnaðarins við viðhald er því vegna viðhalds innanhúss, innréttinga og búnaðar.
Aukin umsvif í rekstri, fleiri verslanir og þar með fleiri fermetrar skýra þróun rekstrar- og viðhaldskostnaðar fasteigna. Á eftirfarandi töflu má sjá þróun reksturs og viðhalds fasteigna.
Í samræmi við aukna sölu var ráðist í gagngerar endurbætur á dreifingarmiðstöð fyrirtækisins og viðbyggingu við hana og var það verk unnið á árunum 2007 og 2008. Árið 2008 voru opnaðar tvær nýjar vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu en þá hafði ekki verið opnuð vínbúð þar frá árinu 2001.
Rekstrarkostnaðar.
Þróun rekstrarkostnaðar má skýra með auknum umsvifum. Seldir lítrar hafa aukist um 41% á tímabilinu eða um 5,8 milljónir lítra. Vínbúðum hefur fjölgað um níu á tímabilinu og viðskiptavinum hefur fjölgað um 32%. Á sama tímabili hefur Íslendingum fjölgað um 10%. Ef kostnaðurinn er umreiknaður á miðársverðlag 2009 sést að breytingar á rekstrarkostnaði á tímabilinu eru óverulegar.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1261 — 607. mál.
Svar

Lykilstærðir 2002–2009.
| 2002 | 2009 | Breyting, % | |
| Sala, þús. lítrar | 14.191 | 19.957 | 41% |
| Fjöldi vínbúða | 40 | 49 | 23% |
| Fjöldi fermetra | 14.600 | 19.300 | 32% |
| Fjöldi viðskiptavina (þús.) | 3.256 | 4.300 | 32% |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Markaðskostnaður.
Markaðs- og kynningarkostnaður samanstendur af útgáfu vöruskrár sem jafnan er gefin út fjórum sinnum á ári og útgáfu fræðsluefnis, þ.m.t. þemadagaefnis fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Seinni árin hefur verið aukin áhersla á samfélagslega ábyrgð með birtingu auglýsinga í sjónvarpi, útvarpi, dagblöðum og á netinu. Auglýsingarnar hafa bæði verið í nafni vínbúðanna og í samvinnu við aðra, t.d. Umferðarstofu. Undir þennan lið fellur kostnaður vegna reglulegra markaðskannana um ánægju viðskiptavina, birgjakannanir og vinnustaðagreining starfsfólks. ÁTVR hefur t.d. verið þátttakandi í Íslensku ánægjuvoginni frá árinu 2003.
Markaðs- og kynningarkostnaður, millj. kr.
| 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | Áætlun 2010 | |
| Á verðlagi hvers árs | 23 | 25 | 50 | 49 | 60 | 82 | 105 | 87 | 103 |
| Umreiknað á miðársverðlag 2009 | 40 | 42 | 80 | 75 | 86 | 106 | 118 | 87 |
Húsnæðiskostnaður.
Stefna ríkisins er almennt að leigja húsnæði af því tagi sem hentar starfsemi ÁTVR og hefur fyrirtækið fylgt þeirri stefnu um margra ára skeið. Í þeim tilfellum fellur viðhald utanhúss að jafnaði á leigusalann. Mestur hluti kostnaðarins við viðhald er því vegna viðhalds innanhúss, innréttinga og búnaðar.
Aukin umsvif í rekstri, fleiri verslanir og þar með fleiri fermetrar skýra þróun rekstrar- og viðhaldskostnaðar fasteigna. Á eftirfarandi töflu má sjá þróun reksturs og viðhalds fasteigna.
Rekstur og viðhald fasteigna, millj. kr.
| 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | Áætlun 2010 | |
| Á verðlagi hvers árs | |||||||||
| Húsaleiga | 57 | 62 | 65 | 70 | 87 | 98 | 133 | 151 | 170 |
| Orka (rafmagn og hiti) | 11 | 13 | 16 | 14 | 12 | 15 | 17 | 19 | |
| Ræsting og öryggisþjónusta | 29 | 36 | 38 | 39 | 51 | 63 | 68 | 61 | |
| Opinber gjöld, sameiginleg þjónusta | 34 | 34 | 35 | 37 | 40 | 47 | 54 | 56 | |
| Viðhald – húsnæði, áhöld og innréttingar | 74 | 62 | 76 | 78 | 80 | 102 | 196 | 213 | |
| Samtals | 206 | 207 | 229 | 237 | 270 | 324 | 468 | 500 | 425 |
| Umreiknað á miðársverðlag 2009 | |||||||||
| Húsaleiga | 98 | 103 | 104 | 107 | 124 | 126 | 148 | 151 | |
| Orka (rafmagn og hiti) | 19 | 21 | 26 | 21 | 17 | 19 | 19 | 19 | |
| Ræsting og öryggisþjónusta | 50 | 60 | 60 | 59 | 72 | 81 | 76 | 61 | |
| Opinber gjöld, sameiginleg þjónusta | 59 | 56 | 55 | 57 | 57 | 60 | 60 | 56 | |
| Viðhald – húsnæði, áhöld og innréttingar | 127 | 104 | 120 | 118 | 113 | 131 | 219 | 213 | |
| Samtals | 354 | 345 | 364 | 362 | 384 | 418 | 522 | 500 | |
| Fjöldi fermetra í rekstri 2002–2009 Heildarfjöldi fermetra (þús.) árslok | 14,6 |
14,7 |
14,8 |
15 |
15,5 |
17,2 |
17,9 |
19,3 |
|
Í samræmi við aukna sölu var ráðist í gagngerar endurbætur á dreifingarmiðstöð fyrirtækisins og viðbyggingu við hana og var það verk unnið á árunum 2007 og 2008. Árið 2008 voru opnaðar tvær nýjar vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu en þá hafði ekki verið opnuð vínbúð þar frá árinu 2001.
Rekstrarkostnaðar.
Þróun rekstrarkostnaðar má skýra með auknum umsvifum. Seldir lítrar hafa aukist um 41% á tímabilinu eða um 5,8 milljónir lítra. Vínbúðum hefur fjölgað um níu á tímabilinu og viðskiptavinum hefur fjölgað um 32%. Á sama tímabili hefur Íslendingum fjölgað um 10%. Ef kostnaðurinn er umreiknaður á miðársverðlag 2009 sést að breytingar á rekstrarkostnaði á tímabilinu eru óverulegar.
Rekstrarafkoma, þús. kr.
| Á verðlagi hvers árs | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | Áætlun 2010 |
| Rekstrartekjur | 14.380 | 14.974 | 15.399 | 16.641 | 17.790 | 19.337 | 21.231 | 25.244 | 23.931 |
| Rekstrarkostnaður | 13.909 | 14.572 | 14.926 | 16.185 | 17.316 | 19.027 | 20.931 | 23.978 | 22.883 |
| Hagnaður | 471 | 402 | 473 | 456 | 474 | 310 | 300 | 1.266 | 1.048 |
| Umreiknað á miðársverðlag 2009 | |||||||||
| Rekstrartekjur | 24.755 | 24.987 | 24.465 | 25.376 | 25.319 | 24.916 | 23.712 | 25.244 | |
| Rekstrarkostnaður | 23.945 | 24.316 | 23.714 | 24.681 | 24.644 | 24.516 | 23.377 | 23.978 | |
| Hagnaður | 810 | 671 | 751 | 695 | 675 | 400 | 335 | 1.266 | |