Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 614. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1360 — 614. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs.
1. Við hvaða sveitarfélög og/eða sorpsamlög sveitarfélaga hafa skilakerfi samið um móttöku raf- og rafeindatækjaúrgangs á grundvelli laga nr. 73/2008, um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum.
Samkvæmt 21. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, skulu söfnunarstöðvar sveitarfélaga hafa aðstöðu fyrir móttöku á raf- og rafeindatækjaúrgangi. Söfnunarstöðvunum ber að taka við slíkum úrgangi frá heimilum gjaldfrjálst en er heimilt að taka gjald fyrir móttöku á öðrum raf- og rafeindatækjaúrgangi en frá heimilum. Í 7. gr. reglugerðar nr. 1104/2008, um raf- og rafeindatækjaúrgang, er gert ráð fyrir að skilakerfin semji við sveitarfélög um nánara fyrirkomulag söfnunar úrgangsins. Sjá nánar töflu í svari við 2. lið fyrirspurnarinnar.
2. Hvenær hófst söfnun raf- og rafeindatækjaúrgangs hjá söfnunarstöðvum sveitarfélaga samkvæmt samningum við skilakerfi? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum/sorpsamlögum.
Sjá töflu hér að neðan.
3. Í hvaða sveitarfélögum er söfnun raf- og rafeindatækjaúrgangs enn ekki hafin? Liggja fyrir upplýsingar um hvenær úr því verði bætt?
Eins og kemur fram hér að framan er gert er ráð fyrir að skilakerfi og sveitarfélag semji um nánara fyrirkomulag söfnunar úrgangsins, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 1104/2008, um raf- og rafeindatækjaúrgang. Í þeim tilvikum þar sem samningur hefur ekki verið gerður getur söfnunarstöð beðið skilakerfi um að sækja til sín úrgang og skal skilakerfið sækja úrganginn innan þriggja daga, sbr. 6. mgr. 7. gr. sömu reglugerðar.
Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun hafa 28 sveitarfélög samið við skilakerfi um nánara fyrirkomulag söfnunar raf- og rafeindatækjaúrgangs, sbr. töflu í svari við 2. lið fyrirspurnarinnar.
Ekki liggja fyrir upplýsingar hjá Umhverfisstofnun um hvenær og hvort önnur sveitarfélög og skilakerfi semja sín á milli um fyrirkomulag söfnunar úrgangsins.
4. Hve mikið magn raf- og rafeindatækjaúrgangs hefur safnast á árinu 2009:
Eftirfarandi eru áætlaðar tölur fyrir árið 2009, byggðar á upplýsingum frá starfandi skilakerfum:
a. heildarmagn í tonnum,
Heildarmagn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem safnað var á Íslandi 2009 er 931.725 kg, eða 931 tonn.
b. í kílóum á hvern landsmann,
Mannfjöldi á Íslandi 1. janúar 2010 var 317.630. Það þýðir að árið 2009 hafi verið safnað 2,93 kg á hvern landsmann.
c. á hverri söfnunarstöð?
Í töflunni hér á eftir eru upplýsingar um hvernig heildarmagn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem safnað var á Íslandi 2009 skiptist á milli söfnunarstöðva.
Samkvæmt reglugerð nr. 1104/2008, um raf- og rafeindatækjaúrgang, skulu skilakerfi skila upplýsingum um magn sem safnað er skipt eftir flokkum til stýrinefnda fyrir 1. júní 2010 fyrir árið 2009.
5. Hve hátt er hlutfall endurvinnslu/endurnotkunar raf- og rafeindatækjaúrgangs hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum?
1 Sundurliðun liggur ekki fyrir.
Hafa ber í huga að Norðurlöndin innleiddu tilskipun nr. 2002/96/EB, raf- og rafeindatækjaúrgang, mun fyrr eða á árunum 2005–2006, nema Noregur sem hefur haft sambærilegar reglur frá árinu 1999. Framkvæmd laga vegna innleiðingar á tilskipun nr. 2002/96/EB hér á landi hófst 1. janúar 2009 og er því komin skemur á veg.
6. Hefur sú aðferð sem lagt var upp með í söfnun raf- og rafeindatækjaúrgangs staðist væntingar ráðuneytisins og hagsmunaaðila?
Framleiðendaábyrgð á raf- og rafeindatæki kom til framkvæmda 1. janúar 2009. Komið hafa fram ýmsir hnökrar á því fyrirkomulagi sem innleitt hefur verið hér á landi við söfnun og endurvinnslu raf- og rafeindatækjaúrgangs frá því að lögin tóku gildi. Margt af því er búið að leysa eða unnið er að lausn mála. Fyrir liggur að laga þurfi ýmis atriði er varða framkvæmd og útfærslu eins og búist var við. Á þeim tíma frá því að lögin tóku gildi hér á landi hefur reynslan sýnt að það eru þættir sem má einfalda og bæta. Sumt af því kallar á lagabreytingar og er í vinnslu frumvarp um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs sem mun taka á þessum þáttum.
Væntingar hagsmunaaðila, þ.e. skilakerfa, varðandi kerfið hafa að þeirra mati ekki staðist. Hagsmunaaðilar hafa bent á að sú leið sem lögin mæla fyrir um sé kostnaðarsöm og óhentug. Að þeirra mati hefði Úrvinnslusjóður átt að sjá um söfnun raf- og raftækjaúrgangs, sem þeir telja að hefði verið hagkvæmara fyrir alla aðila, neytendur, úrvinnsluaðila sem og framleiðendur og innflytjendur. Einnig telja hagsmunaaðilar að stýrinefnd hafi ekki staðið undir væntingum. Þá hefur komið fram að skilakerfin telja mikinn kostnað af starfi stýrinefndar, sérstaklega í ljósi þeirrar þjónustu sem stýrinefnd veitir skilakerfum. Einnig hafa þau bent á að erfiðlega hafi gengið að fá aðila sem standa utan skilakerfis (free-riders) til að gerast aðilar að skilakerfi.
Ráðuneytið telur að nokkru leyti sé hægt að taka undir framangreinda gagnrýni.
7. Hver er kostnaður sveitarfélaga af móttöku raf- og rafeindatækjaúrgangs og hverjar eru tekjur þeirra samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra ákveður?
Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga liggja þessar upplýsingar ekki fyrir.
8. Áformar ráðherra að endurskoða gjaldskrána á þessu ári?
Gjaldskrá um afnot skilakerfa af aðstöðu fyrir móttöku raf- og rafeindatækjaúrgangs frá heimilum var sett fyrri hluta árs 2009. Ráðuneytið vann gjaldskrá að fengnum tillögum stýrinefndar og að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Við undirbúning að ákvörðun gjalda var leitað upplýsinga hjá fagaðilum bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Þessar upplýsingar vörðuðu m.a. rekstrarkostnað móttökustöðva, tekjur vegna hinna ýmsu flokka úrgangs og magns mismunandi flokka. Var mat lagt á kostnaðaraukningu sveitarfélaga af breyttu lagaumhverfi í ljósi þessara upplýsinga. Fermetrafjöldi gáms og nauðsynlegt athafnasvæði í kringum hann voru meðal þeirra forsendna sem ráðuneytið hafði til hliðsjónar við mat sitt.
Eðlilegt er að fara reglulega yfir forsendur gjalda með stýrinefnd, skilakerfum og Sambandi íslenskra sveitarfélaga og meta hvort þörf sé að endurskoða þá gjaldskrá sem í gildi er.
9. Telur ráðherra koma til greina að breyta lögum um meðhöndlun úrgangs og fela Úrvinnslusjóði ábyrgð á söfnun og meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs í stað sérstakra skilakerfa?
Með lögum nr. 73/2008, um breytingu á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, voru innleiddar hér á landi tilskipun 2002/96/EB um raf- og rafeindabúnaðarúrgang og tilskipun 2003/108/EB um breytingu á tilskipun 2002/96/EB um raf- og rafeindabúnaðarúrgang. Tilskipun 2002/96/EB kveður á um aukna framleiðendaábyrgð. Frumvarp um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs var unnið í nefnd sem í áttu sæti fulltrúar umhverfisráðuneytis, Félags íslelnskra stórkaupmanna, Umhverfisstofnunar, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúar atvinnulífsins í nefndinni voru alfarið sammála þeirri leið sem lögð var til í frumvarpinu. Tilskipun um raf- og rafeindabúnaðarúrgang hefur verið innleidd á öllu EES-svæðinu, þannig að löggjöfin á þessu svæði er hliðstæð hvað varðar framleiðendaábyrgð á raf- og rafeindatæki þó að uppbygging kerfis og framkvæmdin sé á einhvern hátt mismunandi milli landa.
Eðlilegt er að leggja mat á árangur þessa fyrirkomulags þegar komin er á það heldur meiri reynsla t.a.m. í árslok 2011.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1360 — 614. mál.
Svar

| Sveitarfélög | Fjöldi sveitar félaga | Sorpsamlag – Þjónustuaðili | Samningur við skilakerfi | Landshluti | Heildarfjöldi sveitarfélaga í landshluta | Hvenær hófst söfnun | Magn safnað 2009 (kg) |
| Djúpavogshreppur | 1 | Efnam. 1 | Já | Austurland | 9 | 01 2010 | 0 |
| Fjarðabyggð – Reyðarfjörður | 1 | Hringrás 2 | Nei | Austurland | 08 2009 | 0 | |
| Fjarðabyggð | 1 | Hringrás | Nei | Austurland | 9 | 08 2009 | 1000 |
| Fjarðabyggð – Reyðarfjörður | 1 | Efnam. 3 | Nei | Austurland | 9 | 2009 | 132 |
| Hornafjörður | 1 | Efnam. | Já | Austurland | 9 | 01 2010 | 0 |
| Reykjavík | 1 | Hringrás | Nei | Höfuðborgarsvæðið | 8 | 01 2009 | 25.000 |
| Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu | 7 | SORPA Efnam. |
Já | Höfuðborgarsvæðið | 8 | 01 2009 05 2009 |
810287 |
| Akureyrarkaupstaður | 1 | Efnam. | Já | Norðurland eystra | 14 | 02 2010 | 7.957 |
| Akureyrarkaupstaður | 1 | Hringrás | Nei | Norðurland eystra | 14 | 08 2009 |
2000 |
| Dalvíkurbyggð | 1 | Efnam. | Já | Norðurland eystra | 14 | 02 2010 | 0 |
| Langanesbyggð | 1 | Hringrás | Nei | Norðurland eystra | 14 | 08 2009 | 0 |
| Norðurþing – Húsavík | 1 | Efnam. | Já | Norðurland eystra | 14 | 12 2009 | 1898 |
| Blönduósbær | 1 | Efnam. | Já | Norðurland vestra | 7 | 11 2009 | 0 |
| Húnaþing vestra – Hvammstangi | 1 | Efnam. | Já | Norðurland vestra | 7 | 11 2009 | 9.475 |
| Skagafjörður | 1 | Hringrás | Nei | Norðurland vestra | 7 | 08 2009 | 5000 |
| Skagafj.– Sauðárkr. | Efnam. 4 | Nei | 2010 | 63 | |||
| Skagaströnd | 1 | Efnam. | Já | Norðurland vestra | 7 | 11 2009 | 0 |
| Skagaströnd | 1 | Hringrás | Nei | Norðurland vestra | 7 | 0 | |
| Reykjanes – Helguvík | 1 | Hringrás | Nei | Reykjanes | 5 | 08 2009 | 0 |
| Sveitarfélög á Reykjanesi | 5 | Kalka Efnam. 5 |
Já | Reykjanes | 5 | 05 2009 | 60.156 |
| Árborg | 1 | Efnam. | Já | Suðurland | 14 | 10 2009 | 3.959 |
| Bláskógabyggð | 1 | Efnam. 6 | Já | Suðurland | 14 | 12 2009 | 621 |
| Grímsnes- og Grafningshreppur – Seyðishólar | 1 | Efnam. | Já | Suðurland | 14 | 01 2010 | 0 |
| Mýrdalshreppur | 1 | Hringrás | Nei | Suðurland | 14 | 08 2009 | 500 |
| Ölfus | 1 | Efnam. | Já | Suðurland | 14 | 12 2009 | 0 |
| Ísafjarðarbær | 1 | Efnam. | Já | Vestfirðir | 10 | 11 2009 | 1.854 |
| Akraneskaupstaður | 1 | Efnam. | Já | Vesturland | 10 | 11 2009 | 104 |
| Borgarbyggð – Borgarnes | 1 | Efnam. | Já | Vesturland | 10 | 12 2009 | 0 |
| Snæfellsbær – Ólafsvík | 1 | Efnam. | Já | Vesturland | 10 | 11 2009 | 0 |
| Stykkishólmsbær | 1 | Efnam. | Nei | Vesturland | 10 | 1.000 7 | |
| Grundarfjarðarbær | 1 | Efnam. | Nei | Vesturland | 10 | 719 8 | |
| Samtals | 32 | 77 | 931.725 |
3. Í hvaða sveitarfélögum er söfnun raf- og rafeindatækjaúrgangs enn ekki hafin? Liggja fyrir upplýsingar um hvenær úr því verði bætt?
Eins og kemur fram hér að framan er gert er ráð fyrir að skilakerfi og sveitarfélag semji um nánara fyrirkomulag söfnunar úrgangsins, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 1104/2008, um raf- og rafeindatækjaúrgang. Í þeim tilvikum þar sem samningur hefur ekki verið gerður getur söfnunarstöð beðið skilakerfi um að sækja til sín úrgang og skal skilakerfið sækja úrganginn innan þriggja daga, sbr. 6. mgr. 7. gr. sömu reglugerðar.
Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun hafa 28 sveitarfélög samið við skilakerfi um nánara fyrirkomulag söfnunar raf- og rafeindatækjaúrgangs, sbr. töflu í svari við 2. lið fyrirspurnarinnar.
Ekki liggja fyrir upplýsingar hjá Umhverfisstofnun um hvenær og hvort önnur sveitarfélög og skilakerfi semja sín á milli um fyrirkomulag söfnunar úrgangsins.
4. Hve mikið magn raf- og rafeindatækjaúrgangs hefur safnast á árinu 2009:
Eftirfarandi eru áætlaðar tölur fyrir árið 2009, byggðar á upplýsingum frá starfandi skilakerfum:
a. heildarmagn í tonnum,
Heildarmagn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem safnað var á Íslandi 2009 er 931.725 kg, eða 931 tonn.
b. í kílóum á hvern landsmann,
Mannfjöldi á Íslandi 1. janúar 2010 var 317.630. Það þýðir að árið 2009 hafi verið safnað 2,93 kg á hvern landsmann.
c. á hverri söfnunarstöð?
Í töflunni hér á eftir eru upplýsingar um hvernig heildarmagn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem safnað var á Íslandi 2009 skiptist á milli söfnunarstöðva.
Samkvæmt reglugerð nr. 1104/2008, um raf- og rafeindatækjaúrgang, skulu skilakerfi skila upplýsingum um magn sem safnað er skipt eftir flokkum til stýrinefnda fyrir 1. júní 2010 fyrir árið 2009.
| Sveitarfélag | Söfnunarstöð/Þjónustuaðili | Magn kg |
| Djúpavogshreppur | 0 | |
| Fjarðabyggð – Reyðarfjörður | Hringrás | 0 |
| Fjarðabyggð | Hringrás | 1000 |
| Fjarðabyggð – Reyðarfjörður | Efnamóttakan | 132 |
| Hornafjörður | 0 | |
| Reykjavík | Hringrás – Klettagarðar | 25.000 |
| Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu | SORPA – Ánanaust | 127.287 |
| SORPA – Jafnasel | 100.329 | |
| SORPA – Sævarhöfði | 223.113 | |
| SORPA – Dalvegur | 168.596 | |
| SORPA – Breiðhella | 104.732 | |
| SORPA – Blíðubakki | 40.874 | |
| SORPA – Norðurgrund | 1.471 | |
| Efnamóttakan | 43.885 | |
| Akureyrarkaupstaður | Efnamóttakan | 7.957 |
| Akureyrarkaupstaður | Hringrás | 2000 |
| Dalvíkurbyggð | Efnamóttakan | 0 |
| Langanesbyggð | Hringrás | 0 |
| Norðurþing – Húsavík | Efnamóttakan | 1898 |
| Blönduósbær | Efnamóttakan | 0 |
| Húnaþing vestra – Hvammstangi | Efnamóttakan | 9.475 |
| Skagafjörður | Hringrás | 5000 |
| Skagafjörður – Sauðárkrókur | Efnamóttakan | 63 |
| Skagaströnd | Efnamóttakan | 0 |
| Skagaströnd | Hringrás | 0 |
| Reykjanes – Helguvík | Hringrás | 0 |
| Sveitarfélög á Reykjanesi | Efnamóttakan | 60.156 |
| Kalka – Grindavík | 0 | |
| Kalka – Vogar | 0 | |
| Kalka – Garður | 0 | |
| Árborg | Efnamóttakan | 3959 |
| Bláskógabyggð | Efnamóttakan | 621 |
| Laugarvatn | 0 | |
| Reykholt | 0 | |
| Heiðarbær á Þingvöllum | 0 | |
| Grímsnes- og Grafningshreppur – Seyðishólar | Efnamóttakan | 0 |
| Mýrdalshreppur | Hringrás | 500 |
| Ölfus | Efnamóttakan | 0 |
| Ísafjarðarbær | Efnamóttakan | 1.854 |
| Akraneskaupstaður | Efnamóttakan | 104 |
| Borgarbyggð – Borgarnes | Efnamóttakan | 0 |
| Snæfellsbær – Ólafsvík | Efnamóttakan | 0 |
| Stykkishólmsbær | Efnamóttakan | 1.000 |
| Grundarfjarðarbær | Efnamóttakan | 719 |
5. Hve hátt er hlutfall endurvinnslu/endurnotkunar raf- og rafeindatækjaúrgangs hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum?
| Land | Ár | Safnað kg | Endurnotkun (re-use) | % | Endurnýting (recovery) | % |
| Ísland | 2009 | 930.006 | -1 | - | - | - |
| Svíþjóð | 2008 | 146.767.000 | - | - | 135.529.000 | 92,34 |
| Finnland | 2008 | 54.628.817 | 475.900 | 0,87 | 47.074.200 | 86,17 |
| Noregur | 2009 | 153.362.000 | 5100 | 0,03 | 139.117.000 | 91,75 |
| Danmörk | 2008 | 77.629.000 | - | - | - | - |
Hafa ber í huga að Norðurlöndin innleiddu tilskipun nr. 2002/96/EB, raf- og rafeindatækjaúrgang, mun fyrr eða á árunum 2005–2006, nema Noregur sem hefur haft sambærilegar reglur frá árinu 1999. Framkvæmd laga vegna innleiðingar á tilskipun nr. 2002/96/EB hér á landi hófst 1. janúar 2009 og er því komin skemur á veg.
6. Hefur sú aðferð sem lagt var upp með í söfnun raf- og rafeindatækjaúrgangs staðist væntingar ráðuneytisins og hagsmunaaðila?
Framleiðendaábyrgð á raf- og rafeindatæki kom til framkvæmda 1. janúar 2009. Komið hafa fram ýmsir hnökrar á því fyrirkomulagi sem innleitt hefur verið hér á landi við söfnun og endurvinnslu raf- og rafeindatækjaúrgangs frá því að lögin tóku gildi. Margt af því er búið að leysa eða unnið er að lausn mála. Fyrir liggur að laga þurfi ýmis atriði er varða framkvæmd og útfærslu eins og búist var við. Á þeim tíma frá því að lögin tóku gildi hér á landi hefur reynslan sýnt að það eru þættir sem má einfalda og bæta. Sumt af því kallar á lagabreytingar og er í vinnslu frumvarp um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs sem mun taka á þessum þáttum.
Væntingar hagsmunaaðila, þ.e. skilakerfa, varðandi kerfið hafa að þeirra mati ekki staðist. Hagsmunaaðilar hafa bent á að sú leið sem lögin mæla fyrir um sé kostnaðarsöm og óhentug. Að þeirra mati hefði Úrvinnslusjóður átt að sjá um söfnun raf- og raftækjaúrgangs, sem þeir telja að hefði verið hagkvæmara fyrir alla aðila, neytendur, úrvinnsluaðila sem og framleiðendur og innflytjendur. Einnig telja hagsmunaaðilar að stýrinefnd hafi ekki staðið undir væntingum. Þá hefur komið fram að skilakerfin telja mikinn kostnað af starfi stýrinefndar, sérstaklega í ljósi þeirrar þjónustu sem stýrinefnd veitir skilakerfum. Einnig hafa þau bent á að erfiðlega hafi gengið að fá aðila sem standa utan skilakerfis (free-riders) til að gerast aðilar að skilakerfi.
Ráðuneytið telur að nokkru leyti sé hægt að taka undir framangreinda gagnrýni.
7. Hver er kostnaður sveitarfélaga af móttöku raf- og rafeindatækjaúrgangs og hverjar eru tekjur þeirra samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra ákveður?
Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga liggja þessar upplýsingar ekki fyrir.
8. Áformar ráðherra að endurskoða gjaldskrána á þessu ári?
Gjaldskrá um afnot skilakerfa af aðstöðu fyrir móttöku raf- og rafeindatækjaúrgangs frá heimilum var sett fyrri hluta árs 2009. Ráðuneytið vann gjaldskrá að fengnum tillögum stýrinefndar og að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Við undirbúning að ákvörðun gjalda var leitað upplýsinga hjá fagaðilum bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Þessar upplýsingar vörðuðu m.a. rekstrarkostnað móttökustöðva, tekjur vegna hinna ýmsu flokka úrgangs og magns mismunandi flokka. Var mat lagt á kostnaðaraukningu sveitarfélaga af breyttu lagaumhverfi í ljósi þessara upplýsinga. Fermetrafjöldi gáms og nauðsynlegt athafnasvæði í kringum hann voru meðal þeirra forsendna sem ráðuneytið hafði til hliðsjónar við mat sitt.
Eðlilegt er að fara reglulega yfir forsendur gjalda með stýrinefnd, skilakerfum og Sambandi íslenskra sveitarfélaga og meta hvort þörf sé að endurskoða þá gjaldskrá sem í gildi er.
9. Telur ráðherra koma til greina að breyta lögum um meðhöndlun úrgangs og fela Úrvinnslusjóði ábyrgð á söfnun og meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs í stað sérstakra skilakerfa?
Með lögum nr. 73/2008, um breytingu á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, voru innleiddar hér á landi tilskipun 2002/96/EB um raf- og rafeindabúnaðarúrgang og tilskipun 2003/108/EB um breytingu á tilskipun 2002/96/EB um raf- og rafeindabúnaðarúrgang. Tilskipun 2002/96/EB kveður á um aukna framleiðendaábyrgð. Frumvarp um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs var unnið í nefnd sem í áttu sæti fulltrúar umhverfisráðuneytis, Félags íslelnskra stórkaupmanna, Umhverfisstofnunar, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúar atvinnulífsins í nefndinni voru alfarið sammála þeirri leið sem lögð var til í frumvarpinu. Tilskipun um raf- og rafeindabúnaðarúrgang hefur verið innleidd á öllu EES-svæðinu, þannig að löggjöfin á þessu svæði er hliðstæð hvað varðar framleiðendaábyrgð á raf- og rafeindatæki þó að uppbygging kerfis og framkvæmdin sé á einhvern hátt mismunandi milli landa.
Eðlilegt er að leggja mat á árangur þessa fyrirkomulags þegar komin er á það heldur meiri reynsla t.a.m. í árslok 2011.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Söfnun á grundvelli þjónustusamnings Sagaplasts (dótturfyrirtækis Efnamóttökunnar).
- Neðanmálsgrein: 2
- 2 Ekki samningur á milli skilakerfis og sveitarfélags. Hins vegar er raf- og rafeindatækjaúrgangi safnað á grundvelli þjónustusamnings Hringrásar hf. og sveitarfélags en Hringrás hf. er í samvinnu við annað skilakerfið. Þetta á við alla söfnunarstaði Hringrásar í þessari töflu. Skilakerfið hefur ekki talið þörf á að semja beint við sveitarfélag þar sem þegar er samningur milli sveitarfélags og Hringrásar um móttöku á raf- og rafeindatækjaúrgangi. Skilakerfið og Hringrás hafa gert samkomulag um að tekið sé á móti raf- og rafeindatækjaúrgangi á öllum móttökustöðvum Hringrásar.
- Neðanmálsgrein: 3
- 3 Tilfallandi skil.
- Neðanmálsgrein: 4
- 4 Efnamóttakan hefur móttekið raftækjaúrgang frá Flokkun á Sauðárkróki á árinu 2010. Tilfallandi skil árið 2009.
- Neðanmálsgrein: 5
- 5 Söfnunarstöðvar Kölku eru í Garði, Grindavík og Vogum.
- Neðanmálsgrein: 6
- 6 Söfnunarstöðvar Bláskógabyggðar eru á Laugarvatni, í Reykholti og í Heiðarbæ á Þingvöllum.
- Neðanmálsgrein: 7
- 7 Heildartala fyrir Stykkishólmsbæ og Grundarfjarðarbæ er 1.719 kg.
- Neðanmálsgrein: 8
- 8 Heildartala fyrir Stykkishólmsbæ og Grundarfjarðarbæ er 1.719 kg.