Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 637. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1370 — 637. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Guðmundar Steingrímssonar um raforkuöryggi á Vestfjörðum.
1. Hefur ráðgjafarhópur sem ráðherra skipaði 26. október sl. og átti að skila greinargerð fyrir síðustu áramót, m.a. um fyrirliggjandi tillögur Landsnets um leiðir til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum, skilað greinargerð sinni? Ef svo er, hverjar eru niðurstöður hópsins? Ef ekki, hvenær má vænta greinargerðarinnar?
Ráðgjafarhópur um leiðir til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum, sem skipaður var 26. október sl., er enn að störfum. Gert er ráð fyrir að ráðgjafarhópurinn skili áfangaskýrslu í þessum mánuði. Í framhaldinu verður áfangaskýrslan sett í opið kynningarferli þar sem öllum gefst tækifæri á að koma á framfæri athugasemdum og haldinn verður sérstakur kynningarfundur um hana í ágúst á Vestfjörðum. Í kjölfarið verða ákvarðanir teknar um endanlegar tillögur og skipaður varanlegur starfshópur til að fylgja tillögunum eftir.
2. Hvaða aðgerðir telur ráðherra fýsilegastar til þess að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum og auka þar með einnig samkeppnishæfni Vestfjarða með tilliti til iðnaðaruppbyggingar?
Aðgerðum til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum má skipta í tvennt. Annars vegar þarf að grípa til aðgerða sem leysa þau vandamál sem núverandi atvinnurekstur og almenningur á Vestfjörðum verður fyrir vegna straumleysis og spennuflökts, en hins vegar þarf að ákveða aðgerðir um framtíðarlausn í raforkumálum Vestfjarða sem jafna skilyrði svæðisins til almennrar atvinnuuppbyggingar. Í þessu sambandi verður að hafa í huga að miðað við þá álagsaukningu sem áætluð er í Orkuspá sýna kerfisrannsóknir Landsnets að flutningskerfið annar öllu forgangsálagi til ársins 2022.
Nú stendur yfir á vegum Landsnets uppsetning og prófun á fullkomnari tæknibúnaði til þess að tryggja rétt viðbrögð í kerfinu og minnka truflanir vegna rofs á Vesturlínu. Einnig er hafin vinna við endurskoðun á hönnunarforsendum og hönnun Vesturlínu til þess að auka öryggi hennar. Þessar aðgerðir eru nauðsynlegar til að bæta úr þeim vanda sem uppi er í dag. Í áfangaskýrslu Landsnets um flutningskerfi Vestfjarða eru kynntar fjórar meginleiðir til styrkingar flutningskerfisins á Vestfjörðum með það að markmiði að bæta áreiðanleika afhendingar á Vestfjörðum og auka getu kerfisins til að mæta mögulegri álagsaukningu til framtíðar. Leiðirnar eru ólíkar og kostnaður við þær mjög breytilegur. Þá hefur verið til skoðunar hvort aðgerðirnar geti falist í aukinni raforkuframleiðslu á Vestfjörðum og hafa ýmsir möguleikar verið til skoðunar, svo sem stækkun Mjólkárvirkjunar, Glámuvirkjun, virkjun Hvalár í Ófeigsfirði og sjávarfallavirkjanir á Vestfjörðum. Hlutverk ráðgjafarhópsins er m.a. að taka afstöðu til þessara mismunandi leiða. Ákvarðanir um áframhaldandi framkvæmdir þurfa að taka mið af ávinningi svæðisins af auknu afhendingaröryggi, arðsemismati framkvæmda og áhrifum á flutningskostnað til almennings, en einnig er mikilvægt að horft verði til atvinnuuppbyggingar til framtíðar.
3. Áformar ráðuneytið að grípa til einhverra aðgerða í þessum efnum, eða stuðla að þeim, í náinni framtíð?
Samkvæmt raforkulögum er það á ábyrgð Landsnets að byggja flutningskerfið upp á hagkvæman hátt að teknu tilliti til öryggis, skilvirkni, áreiðanleika afhendingar og gæða raforku. Í raforkulögum er almennt gert ráð fyrir því að uppbygging og rekstur kerfisins sé kostaður af notendum þess en ekki með beinum ríkisfjárframlögum. Á þessu stigi er ekki hægt að segja til um hvort ráðuneytið muni hafa beina aðkomu að aðgerðum til að auka afhendingaröryggi á Vestfjörðum. Ráðuneytið mun hins vegar eftir megni reyna að stuðla að því að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum og að ákvarðanir um aðgerðir taki mið af þörf fyrir atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
Í þessu sambandi má hins vegar benda á að í frumvarpi til laga um endurskoðun raforkulaga, sem nú er til umfjöllunar á Alþingi, er lagt til að við ákvörðun tekjumarka Landsnets verði tekið tillit til áreiðanleika afhendingar þar sem frávik frá viðmiðum geta leitt til hækkunar eða lækkunar tekjumarka. Með þessu er reynt að skapa fyrirtækinu hvata og forsendur til þess að geta ráðist í nauðsynlegar framkvæmdir á hagkvæmnisgrundvelli.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1370 — 637. mál.
Svar