Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 615. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1407  —  615. mál.




Svar



samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um tekjustofna ætlaða til vegagerðar.

     1.      Hverjir eru tekjustofnar sem ætlaðir eru til vegagerðar?
    Þær mörkuðu tekjur sem renna til vegagerðar eru bensíngjald, olíugjald og kílómetragjald.

     2.      Hvaða upphæðir eru þetta, sundurliðað á árin 2006–2010?
    
Taflan hér að neðan sýnir markaðar tekjur árin 2006–2009 og áætlun fyrir 2010, í millj. kr. Mörkuðu tekjurnar fyrir 2010 liggja ekki fyrir fyrr en að árinu loknu en þær eru áætlaðar 14.470 millj. kr. í fjárlögum 2010.
    
2006 2007 2008 2009 2010
Bensíngjald 6.935 7.220 6.834 7.730 7.420
Olíugjald 5.540 6.096 6.065 6.204 6.260
Kílómetragjald 976 1.184 1.215 974 790
Samtals 13.451 14.500 14.114 14.908 14.470

     3.      Hve mikill hluti þeirra fór til vegagerðar og hvað til annarra hluta, sundurliðað sömu ár?
    
Allar markaðar tekjur þessara ára runnu til vegagerðar með einhverjum hætti, í nýframkvæmdir, viðhald eða þjónustu við vegakerfið. Sjá sundurliðun í töflunni hér að neðan.

2006 2007 2008 2009
Nýframkvæmdir 8.216 10.801 18.643 15.863
Viðhald 2.868 3.104 3.792 4.760
Þjónusta 3.362 2.722 3.729 3.645
Samtals 14.445 16.627 26.164 24.267

    Eins og sjá má á töflunni voru framlög til þjónustu og viðhalds aukin milli áranna 2007 og 2009 um 1.656 millj. kr. til viðhalds og um 923 millj kr. til þjónustu, eða samtals aukning á þjónustu og viðhaldslið um 2.579 millj. kr.

     4.      Hverjar eru tekjur af viðkomandi tekjustofnum á ekinn kílómetra miðað við meðaleyðslu:
                  a.      bensínbifreiðar,
                  b.      dísilbifreiðar?

    Tekjur Vegagerðarinnar af hverjum lítra af bensíni eru 37,07 kr. og tekjur af hverjum lítra af dísilolíu eru 52,77 kr. Upplýsingar um tekjur á hvern ekinn kílómetra landsins liggja ekki fyrir.