Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 695. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1458 — 695. mál.
til fjármálaráðherra um málefni VBS fjárfestingarbanka.
1. Leituðu stjórnendur VBS fjárfestingarbanka samþykkis ráðuneytisins og/eða Fjármálaeftirlitsins fyrir lengingu kúlulána sem þeir voru með hjá bankanum til ársins 2017? Samrýmist sú framlenging skilyrðum sem ráðuneytið setti fyrirtækinu við gerð lánasamnings vegna veðskulda við Seðlabankann?
2. Hvaða aðrar breytingar voru gerðar á launasamningum starfsmanna VBS frá mars 2009 sem hefði átt að fá samþykki ráðuneytisins fyrir samkvæmt skilyrðum lánasamningsins?
3. Af hverju var ekki skipaður umsjónarmaður með VBS frá þeim tíma sem ljóst var að bankinn ætti í verulegum erfiðleikum og væri í raun ógjaldfær?
4. Hefði Fjármálaeftirlitið leyft VBS að starfa áfram ef ríkið hefði ekki veitt fyrirtækinu 26 milljarða kr. lán vegna veðskulda í mars 2009?
5. Hverjar voru forsendur ráðuneytisins til að ætla að VBS mundi geta staðið við lánasamninginn og skilyrði ráðuneytisins?
Skriflegt svar óskast.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1458 — 695. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um málefni VBS fjárfestingarbanka.
Frá Eygló Harðardóttur.