Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 698. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Prentað upp.

Þskj. 1462  —  698. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um auðlegðarskatt.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Hvernig var tekjudreifing þeirra sem greiða auðlegðarskatt, þ.e. tekjur á árinu 2009,
                  a.      fjáreignatekjur,
                  b.      launatekjur?
     2.      Hve margir hafa ekki tekjur skv. 1. tölul. til að greiða auðlegðarskatt?
     3.      Í hvaða löndum Evrópu er greiddur auðlegðarskattur (e. net wealth tax)? Hvað er undanþegið auðlegðarskatti í þeim löndum þar sem skatturinn er lagður á?
     4.      Hefur ráðuneytið kannað hvers vegna auðlegðarskattur hefur verið afnuminn í sumum Evrópulöndum?
     5.      Hefur ráðuneytið kannað hver raunskattlagning verður á fjáreignatekjur þegar 18% fjáreignatekjuskattur og 1,25% auðlegðarskattur er lagður saman?
     6.      Hefur ráðuneytið látið kanna hvar mörk eignarnáms og skattlagningar liggja þegar auðlegðarskattur er lagður á?


Skriflegt svar óskast.