Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 678. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1475  —  678. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um framkvæmd grunnskólalaga.

     1.      Telur ráðherra koma til greina að ytra mat sveitarfélaga samkvæmt nýjum grunnskólalögum og eftirlit ráðuneytis með grunnskólum verði sameinað, til að mynda að ytra mat sveitarfélaga (t.d. landshlutateymis) og eftirlit ráðuneytis myndi sameiginlegt teymi og skipti kostnaði, eða að ráðuneytið geti fengið aðgang að upplýsingum sem ytra mat sveitarfélaga vinnur gegn greiðslu hluta kostnaðar?
    Í lögum um framhaldsskóla, grunnskóla og leikskóla frá 2008 er kveðið á um að mennta- og menningarmálaráðuneytið geri áætlun til þriggja ára um kannanir og úttektir (ytra mat) sem miða að því að veita upplýsingar um framkvæmd laga, aðalnámskrár og aðra þætti skólastarfs. Ytra mat getur m.a. falist í úttektum á einstökum þáttum skólahalds, stofnanaúttektum, úttektum á námsgreinum og námsþáttum og innra mati skóla. Einnig tekur ytra mat til innlendra og erlendra kannana, rannsókna og samræmdra könnunarprófa. Í reglugerðum um innra og ytra mat fyrir hvert skólastig er nánar kveðið á um ytra mat ráðuneytisins, undirbúning þess, viðmið og eftirfylgni.
    Ráðuneytið hefur nýlega gefið út þriggja ára áætlun um mat á skólastarfi, þ.e. áætlun um ytra mat í framhaldsskólum, grunnskólum og leikskólum 2010–2012. Þar er gerð grein fyrir mati og úttektum á grunnskólastigi en ný lög um grunnskóla gera ráð fyrir auknu ytra mati á starfsemi grunnskóla. Þessu lagaákvæði verður m.a. mætt með aukinni áherslu á stofnanaúttektir. Áætlað er að á tímabilinu sem um ræðir verði gerðar stofnanaúttektir á 18 grunnskólum. Markmiðið með slíkum úttektum er að fá fram heildarmynd af starfsemi viðkomandi skóla þar sem lögð er áhersla á að skoða skólastarf út frá lögum, reglugerðum og aðalnámskrá. Nú þegar hafa nokkrar stofnanaúttektir verið gerðar á grunnskólum og verður á næsta skólaári haldið áfram á sömu braut.
    Samband íslenskra sveitarfélaga hefur í samstarfi við ráðuneytið og með stuðningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga ráðið verkefnisstjóra í skólamálum til tveggja ára frá 2009–2011. Markmið verkefnisins er að vinna að innleiðingu á ákvæðum í nýjum lögum um leik- og grunnskóla um mats- og eftirlitsskyldu sveitarfélaga og að fylgja eftir sameiginlegri framtíðarsýn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands fyrir grunnskólastarf til ársins 2020. Eitt af markmiðum verkefnisins er að skýra eftirlits- og matshlutverk sveitarfélaga gagnvart ráðuneytinu samkvæmt nýjum lögum um leik og grunnskóla. Markmiðið er að auðvelda sveitarfélögum að uppfylla þessi ákvæði laganna, til dæmis með gerð leiðbeininga fyrir skólanefndir. Annað markmið er að kortleggja samfélagslegar rannsóknir þar sem gagna er aflað í leik- og grunnskólum. Markmiðið er að gefa yfirlit yfir upplýsingaöflun í leik- og grunnskólum til að stuðla að aukinni hagnýtingu á þeim. Verkefnisstjóri vinnur náið með starfsmönnum sambandsins og ráðuneytisins sem stýra verkefni í sameiningu. Verkefnið kallar einnig á samstarf við skólaskrifstofur, forsvarsaðila sveitarfélaga og skólanefnda og fleiri hagsmunaaðila að framangreindum verkefnum. Ráðuneytinu er kunnugt um hugmyndir um sérstök landshlutateymi sem vinni að ytra mati á sveitarfélögum og lýsir ánægju sinni með frumkvæði sveitarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga í þeim efnum. Mikilvægt er að samhæfa sem best upplýsingaöflun vegna skólastarfs og væntir ráðuneytið mikils af samstarfi við sambandið og sveitarfélög í þeim efnum sem og af starfi sameiginlega verkefnisstjórans og stýrihóps þess verkefnis. Í lok næsta skólaárs ættu að liggja fyrir niðurstöður þess. Þá mun verða lagt mat á næstu skref í samstarfi ríkis og sveitarfélaga í mati á skólastarfi, sérstaklega hvað varðar lagaákvæði um ytra mat. Vel kemur til greina að ráðuneytið kaupi ákveðna þjónustu í því skyni af sveitarfélögum eða taki sameiginlega þátt í kostnaði sem af matinu hlýst.

     2.      Telur ráðherra koma til greina að fresta ýmsum ákvæðum nýrra leikskóla- og grunnskólalaga eða veita sveitarfélögum sambærilega heimild og ríkisvaldinu var veitt með nýlegum lögum um framhaldsskóla?
    Að mati ráðuneytisins hefur gengið vel að innleiða ný lög um leikskóla og grunnskóla, þrátt fyrir efnahagserfiðleika í samfélaginu og aukið álag á skólana af ýmsum ástæðum. Nú hafa langflestar reglugerðir við nýju lögin tekið gildi og sérstakur starfshópur með fulltrúum ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur lagt mat á kostnaðaráhrif laganna og þeirra reglugerða sem settar hafa verið. Þessi hópur mun starfa áfram og hafa það hlutverk að fylgjast almennt með kostnaðaráhrifum laganna og ekki síður hvernig sveitarfélögum tekst til með hagræðingaraðgerðir í ljósi efnahagsástandsins. Sveitarfélög hafa nú þegar farið rækilega yfir ýmsa kostnaðarþætti sem hljótast af rekstri leik- og grunnskóla og víða hagrætt í starfinu, án þess þó að ganga á rétt nemenda til skyldunáms. Skólar hafa t.d. verið sameinaðir, samrekstur tekinn upp á leik- og grunnskólum, skorið hefur verið niður í yfirstjórn, vettvangsferðum, endurmenntun, bekkir hafa verið stækkaðir og forfallakennsla skert. Ekki hafa hingað til verið samþykktar lagabreytingar á leik- og grunnskólalögum þrátt fyrir ítrekaðar óskir Sambands íslenskra sveitarfélaga í þeim efnum, þar hafa m.a. verið settar fram þær hugmyndir að fækka árlegum skóladögum nemenda, skerða tímabundið vikulegan kennslutíma eða fresta ákvæðum um aukið val á unglingastigi. Það er mat ráðuneytisins að sveitarfélög verði að leita allra mögulegra leiða til hagræðingar áður en til greina kemur að samþykkja lagabreytingar sem heimili sveitarfélögum að skerða kennslutíma nemenda en til greina kemur að fresta úrræðum um aukið val á unglingastigi. Ráðuneytið hefur lagt á það áherslu að breytingar verði ekki gerðar á leik- og grunnskólalögum nema um það sé sátt meðal helstu hagsmunaaðila skólasamfélagsins. Þetta hagræðingarmál verður tekið upp sérstaklega á haustfundi samráðsnefndar leik- og grunnskóla sem verður um miðjan september en í þeirri nefnd sitja fulltrúar t.d. frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, sveitarfélögum, kennarasamtökum og foreldrasamtökum. Ekki er hægt að útiloka að í kjölfarið komi til lagabreytingar sem heimili sveitarfélögum að fresta tilteknum ákvæðum nýrra leik- og grunnskólalaga, sambærilegt og nýlega var gert með lögum um framhaldsskóla. Það þarf hins vegar að horfa til fleiri þátta en fjárhagslegra í þessu samhengi, m.a. þeirrar staðreyndar að í leik- og grunnskólum er veitt afar mikilvæg grunnþjónusta. Leggja þarf áherslu á almenna velferð nemenda og er hlutverk skólans afar mikilvægt í þeim efnum.