Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 658. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1480  —  658. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 8. sept.)



1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 4. gr. laganna:
     a.      Orðin „dómsmála- og mannréttindaráðuneyti“ og „félagsmála- og tryggingaráðuneyti“ falla brott.
     b.      Á eftir orðinu „fjármálaráðuneyti“ kemur: innanríkisráðuneyti.
     c.      Orðið „heilbrigðisráðuneyti“ fellur brott.
     d.      Orðin „samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti“ falla brott.
     e.      Í stað orðanna „og utanríkisráðuneyti“ kemur: utanríkisráðuneyti og velferðarráðuneyti.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2011.

Ákvæði til bráðabirgða.


     Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. er ráðherra heimilt að undirbúa stofnun nýrra ráðuneyta, m.a. með skipun ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra sem hafi heimild til að bjóða starfsmönnum starf skv. 14. gr. laganna.
    Þeim embættismönnum sem hljóta ekki áframhaldandi skipun skv. 1. mgr. skulu boðin störf í hinum nýju ráðuneytum. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði.
    Um flutning annarra starfsmanna til hinna nýstofnuðu ráðuneyta gilda ákvæði 14. gr. laganna.