Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 664. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1506 — 664. mál.
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar um þjónusturannsóknir á sviði dýraheilbrigðis.
1. Hvernig er háttað fjármögnun þjónusturannsókna vegna sjúkdómagreininga dýra?
Fjármögnun þjónusturannsókna er ákveðin með fjárlögum í gegnum fjárveitingar til Matvælastofnunar (MAST). Ekki er um sérmerktar fjárveitingar að ræða, heldur er í fjárhagsáætlun MAST á hverju ári fyrir sig ákvarðað það fjármagn sem veitt er til þjónusturannsókna. Með niðurskurði fjárveitinga til starfsemi MAST á undanförnum árum hefur þurft að skera þetta fjármagn mikið niður, raunar svo að í óefni stefnir að mati stofnunarinnar.
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að gerður verði þjónustusamningur milli Matvælastofnunar og Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum um þjónusturannsóknir á sviði dýraheilbrigðis?
Síðla árs 2007 skipaði þáverandi menntamálaráðherra nefnd til að endurskoða lög um Tilraunastöðina að Keldum. Í tillögum nefndarinnar var gert ráð fyrir breytingu á lögum um Keldur og að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið gerði sérstakan þjónustusamning við Keldur um rannsóknir á sviði dýraheilbrigðis. Þessar tillögur voru kynntar ráðuneytinu og viðræður áttu sér stað milli fulltrúa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og menntamálaráðuneytis, en málið hefur hins vegar ekki náð fram að ganga. MAST telur mjög mikilvægt að slíkur samningur verði gerður og að fjármagn til dýrasjúkdómarannsókna verði tryggt á hverjum tíma og undir það sjónarmið skal tekið. Ekki hefur þó verið talið rétt að gera þjónustusamning milli MAST og Keldna þar sem málið hefur verið í öðrum farvegi, auk þess sem MAST hefur engar fjárveitingar til að standa undir slíkum samningi. Í dag greiðir MAST fyrir þjónustu Keldna samkvæmt gjaldskrá en þess má enn fremur geta að MAST hefur á undanförnum árum gert sérstakan samning við Keldur um rannsóknir á heilasýnum úr sauðfé vegna riðurannsókna. Þjónustusamningur eins og sá sem MAST hefur til að mynda gert við Matís á sviði matvælarannsókna byggist á öðrum forsendum og tekur mið af því að Matís hafi á hverjum tíma búnað og þekkingu til að greina helstu matarsjúkdómaörverur í matvælum, veiti forgang þegar slík tilvik koma upp og sérfræðiaðstoð þegar þörf er á. Að óbreyttum lögum hafa Keldur hins vegar lögbundnar skyldur á sviði sjúkdómavarna og skulu vera MAST til ráðuneytis um allt er varðar sjúkdóma í dýrum og varnir gegn þeim. Keldur skulu einnig annast rannsóknir og þjónustu í þágu heilbrigðiseftirlits, sjúkdómagreininga og sjúkdómavarna fyrir búfé og önnur dýr í samstarfi við MAST. Miðað við skipan mála og að óbreyttum lögum hlýtur fjármagn til þessarar starfsemi að ákvarðast með fjárlögum, auk þess sem stofnanir (svo sem MAST) og aðrir aðilar sem sækja þjónustu greiða fyrir hana samkvæmt gjaldskrá. Verði skipan mála breytt þannig að gert verði ráð fyrir þjónustusamningi milli aðila hlýtur að þurfa að veita sérstakt fjármagn til þess.
3. Hver er að mati ráðherra reynslan af sameiningu eftirlits með matvælaöryggi og dýraheilbrigði?
Það er mat MAST, og undir það skal tekið, að vel hafi tekist til við sameiningu eftirlits með matvælaöryggi og dýraheilbrigði í eina stofnun þar sem eftirlit með fóðri, áburði og plöntuheilbrigði er einnig vistað.
4. Telur ráðherra að heppilegt hafi verið að aðskilja þá starfsemi sem hefur með höndum eftirlit með dýraheilbrigði annars vegar og þá sem annast rannsóknir og sjúkdómsgreiningar?
Á alþjóðavettvangi hefur á undanförnum árum verið gerð almenn krafa um að aðskilja beri stjórnsýslu og eftirlit með dýraheilbrigði frá þeim aðilum sem annast rannsóknir og greiningar á dýrasjúkdómum, til að tryggja sjálfstæði og áreiðanleika niðurstaðna rannsókna. Sama skipan mála var ákveðin á sviði matvælarannsókna, þar sem MAST sækir þjónustu hjá viðurkenndum rannsóknaraðilum. Þessi skipan mála hefur gefist vel og gerir það einnig að verkum að bæði opinberir og sjálfstæðir rannsóknaraðilar geta veitt hagsmunaaðilum þjónustu án þess að það hafi áhrif á störf eða óhlutdrægni þeirra sem fara með opinbert eftirlit.
5. Telur ráðherra að samstarf og boðleiðir milli eftirlits- og rannsóknastarfsemi séu viðunandi?
Það er mat MAST að samstarfið við Tilraunastöðina á Keldum sé með ágætum og má í því sambandi nefna samstarf vegna vandamála sem upp hafa komið á þessu ári varðandi smitandi hósta í hrossum og rannsóknir á áhrifum eldgosa á heilbrigði dýra. Þá á yfirdýralæknir, sem er starfsmaður MAST, sæti í stjórn Keldna. Einnig kemur til álita að auka samstarf þessara stofnana með svipuðum hætti og gert hefur verið á matvælasviði milli MAST og Matís, en þar hefur verið skipaður fastur samráðshópur með fulltrúum beggja stofnana til að ræða ýmis mál sem varða matvælaöryggi.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1506 — 664. mál.
Svar