Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 698. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1531 — 698. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um auðlegðarskatt.
1. Hvernig var tekjudreifing þeirra sem greiða auðlegðarskatt, þ.e. tekjur á árinu 2009,
a. fjáreignatekjur,
b. launatekjur?
Byggt er á upplýsingum um skattframtöl einstaklinga fyrir árið 2009 eins og þau lágu fyrir við álagningu í júlí í þessu svari. Hluti framteljenda er með ófullkomin framtöl á þeim tíma og eru upplýsingar um þá ekki notaðar. Sömuleiðis eru framteljendur sem ríkisskattstjóri hefur áætlað tekjur hjá ekki notaðar. Gengið er út frá því að með fjáreignatekjum sé átt við fjármagnstekjur, eins og þær eru skilgreindar sem stofn fjármagnstekjuskatts. Upplýsingar um launatekjur eru um almennar launatekjur, þ.e. bætur almannatrygginga, lífeyrisgreiðslur, atvinnuleysisbætur o.þ.h., eru ekki meðtaldar. Hjón teljast ein fjölskylda í meðfylgjandi tölum. Við álagningu í ár var lagður á auðlegðarskattur að upphæð 3.817 millj. kr. Þar af eru 167 millj. kr. lagðar á einstaklinga sem eiga eignir hér á landi en virðast ekki hafa nein önnur tengsl við landið og fá t.a.m. ekki úthlutað persónuafslætti. Þegar álagning á þá og aðra sem tilgreindir eru hér fyrir ofan hefur verið dregin frá er eftir álagning sem nemur 3.473,4 millj. kr.
Til frekari upplýsingar fylgja hér einnig upplýsingar um dreifingu álagðs auðlegðarskatts eftir heildartekjum, þ.e. tekjuskattstofni að viðbættum fjármagnstekjum.
2. Hve margir hafa ekki tekjur skv. 1. tölul. til að greiða auðlegðarskatt?
Samkvæmt þessum upplýsingum er ekki hægt að sjá hvort einstaklingar „hafa ekki tekjur“ til að greiða álagðan auðlegðarskatt. Slíkt hlýtur að vera háð mati á því hvort taka eigi tillit til einhverra útgjalda einstaklings áður en til skattgreiðslu kemur. Það er þó t.d. ekki gert við álagningu tekjuskatts. Eðli eignarskatta er að þeir eru lagðir á eign en ekki tekjur og því kemur í sumum tilvikum til álita hvort saman fari eignir og tekjur af þeim. Fasteignaskattar sveitarfélaga eru lagðir á óháð því hvort eigandinn hafi tekjur til að greiða skattinn.
3. Í hvaða löndum Evrópu er greiddur auðlegðarskattur (e. net wealth tax)? Hvað er undanþegið auðlegðarskatti í þeim löndum þar sem skatturinn er lagður á?
Eignarskattar af ýmsum tegundum eru lagðir á í flestum löndum. Algengast er að fasteignaskattar séu tekjustofnar sveitarfélaga en eignarskattar af mismunandi tegundum eru einnig til. Til dæmis flokkast stimpilgjald sem eignarskattur. Þá eru lagðir skattar á dánarbú, erfðafé og gjafir.
Eignarskattur af eignum umfram skuldir er lagður á fyrirtæki í Lúxemborg. Á Spáni er lagður á eignarskattur en frá 2008 hefur hann verið endurgreiddur að fullu. Stighækkandi eignarskattur er lagður á í Noregi. Í Frakklandi er lagður á stighækkandi eignarskattur en húsnæðiseign er að hluta undanþegin. Eignarskattur er lagður á af kantónum í Sviss.
4. Hefur ráðuneytið kannað hvers vegna auðlegðarskattur hefur verið afnuminn í sumum Evrópulöndum?
Nei.
5. Hefur ráðuneytið kannað hver raunskattlagning verður á fjáreignatekjur þegar 18% fjáreignatekjuskattur og 1,25% auðlegðarskattur er lagður saman?
Ef greiddur hefur verið 18% skattur af fjármagnstekjum standa eftir 82% og eign einstaklingsins vex um þá upphæð. Á aukninguna leggst 1,25% auðlegðarskattur ef eignin var umfram eignamörk skattsins áður en til fjármagnsteknanna kom. Heildarskattlagning þannig fjármagnstekna er því 19,0%.
6. Hefur ráðuneytið látið kanna hvar mörk eignarnáms og skattlagningar liggja þegar auðlegðarskattur er lagður á?
Hér virðist gæta misskilnings hjá fyrirspyrjanda. Eignarnám er aðgerð af hálfu opinbers aðila þar sem einstaklingur er skyldaður til að láta af hendi eign sína vegna almenningsþarfar. Eignarnámsþoli fær fullar bætur fyrir eign sína. Ef fyrirspyrjandinn á við eignaupptöku, þ.e. ef skattgreiðandi er í þeirri stöðu að hann hefur ekki tekjur til að greiða skattinn og verður að selja eignir til að greiða skattinn þá gildir það sama um þennan skatt og aðra eignarskatta svo sem fasteignagjöld.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1531 — 698. mál.
Svar

Tafla 1. Auðlegðarskattur 2009 eftir fjármagnstekjum.
| Fjármagnstekjur 2009 | Fjöldi fjölskyldna | Auðlegðarskattur, millj. kr. | Fjármagnstekjur, millj. kr. |
| <10 millj. kr. | 910 | 487,3 | 5.013,1 |
| 10–20 millj. kr | 554 | 593,2 | 7.733,7 |
| 20–30 millj. kr. | 204 | 379,7 | 4.922,4 |
| 30–40 millj. kr. | 107 | 329,2 | 3.699,8 |
| 40–50 m.kr | 54 | 142,3 | 2.401,9 |
| > 50 m.kr | 246 | 1.541,6 | 34.726,9 |
| Samtals | 2.075 | 3.473,4 | 58.497,8 |
Tafla 2. Auðlegðarskattur 2009 eftir launatekjum.
| Launatekjur 2009 | Fjöldi fjölskyldna | Auðlegðarskattur, millj. kr. |
| engar launatekjur | 657 | 1.147,4 |
| <1 millj. kr. | 163 | 343,0 |
| 1–2 millj. kr. | 117 | 153,1 |
| 2–3 millj. kr. | 105 | 169,8 |
| 3–4 millj. kr. | 120 | 251,6 |
| 4–5 millj. kr. | 103 | 116,9 |
| 5–6 millj. kr. | 81 | 131,2 |
| 6–7 millj. kr. | 90 | 115,9 |
| 7–8 millj. kr. | 85 | 124,1 |
| 8–9 millj. kr. | 67 | 65,6 |
| 9–10 millj. kr. | 56 | 70,6 |
| > 10 m.kr | 431 | 784,2 |
| Samtals | 2.075 | 3.473,4 |
Til frekari upplýsingar fylgja hér einnig upplýsingar um dreifingu álagðs auðlegðarskatts eftir heildartekjum, þ.e. tekjuskattstofni að viðbættum fjármagnstekjum.
Tafla 3: Auðlegðarskattur 2009 eftir heildartekjum.
| Heildartekjur 2009 | Fjöldi fjölskyldna | Auðlegðarskattur, millj. kr. |
| <10 millj. kr. | 387 | 186,2 |
| 10–20 millj. kr. | 710 | 507,1 |
| 20–30 millj. kr. | 390 | 457,1 |
| 30–40 millj. kr. | 186 | 348,1 |
| 40–50 millj. kr. | 91 | 248,7 |
| >50 millj. kr. | 311 | 1.726,1 |