Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 697. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1532  —  697. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um skipan umsjónaraðila með lífeyrissjóðum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða lífeyrissjóðum hefur ráðherra skipað umsjónaraðila samkvæmt lögum nr. 129/ 1997?
    Eru sjóðirnir enn þá með umsjónaraðila og hafa umsjónar aðilarnir lagt fram tillögur um
framtíð viðkomandi sjóða? Ef svo er, hverjar voru tillögur þeirra?


    Ráðherra hefur fjórum sinnum frá gildistöku laga nr. 129/1997, 1. júlí 1998, skipað umsjónaraðila með lífeyrissjóðum. Í fyrsta skipti var það árið 2003 er Tryggingasjóði lækna var skipaður umsjónaraðili. Árið 2009 var hins vegar þrívegis skipaður umsjónaraðili yfir samtals sex lífeyrissjóðum. Fyrst var skipaður umsjónaraðili yfir Kili lífeyrissjóði, Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands og Eftirlaunasjóði Félags íslenskra atvinnuflugmanna (EFÍA), þá Íslenska lífeyrissjóðnum og Lífeyrissjóði Eimskipafélags Íslands og loks yfir Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogsbæjar. Nánar um einstök tilvik:
    Árið 2003 skipaði ráðherra lífeyrissjóði Tryggingasjóðs lækna umsjónaraðila eftir umsögn og tillögur frá Fjármálaeftirlitinu. Umsjónaraðili var skipuð Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður, með erindisbréfi ráðherra, dags. 3. janúar 2003. Bar umsjónaraðila að skila tillögum fyrir 1. febrúar s.á. og í samræmi við 2. mgr. 46. gr. laganna skyldu stjórn og framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins víkja frá störfum þann tíma sem umsjónaraðili starfaði. Tillaga umsjónaraðila eftir skoðun á málefnum sjóðsins og greinargerðum endurskoðanda var að sjóðnum skyldi slitið og skipuð skilanefnd, sbr. 3. mgr. 47. gr. laganna, en þar segir m.a. að ráðherra geti að tillögu umsjónaraðila ákveðið slit lífeyrissjóðs. Skal ráðherra þá skipa skilanefnd þriggja manna sem sér um slit á sjóðnum eða flutning á starfsemi hans til annars lífeyrissjóðs. Skilanefnd tekur við öllum heimildum sjóðstjórnar og falla jafnframt niður heimildir stjórnarinnar frá sama tíma. Skilanefnd skal taka ákvörðun um hvort sjóðnum skuli slitið með sameiningu við annan sjóð eða með öðrum hætti, sbr. 2. og 3. mgr. 49. gr. Hinn 19. febrúar 2003 ákvað ráðherra á grundvelli 3. mgr. 47. gr. laganna að skipa skilanefnd þriggja manna til að sjá um slit á sjóðnum eða flutning á starfsemi hans til annars lífeyrissjóðs. Í skilanefndinni áttu sæti Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður og tveir sérfræðingar í fjármálaráðuneytinu. Tryggingasjóði lækna var slitið í kjölfarið en sá sjóður tók eingöngu við séreignarsparnaði, en rak ekki samtryggingardeild. Réttindi hafa því verið flutt til annarra vörsluaðila séreignarsparnaðar að vali rétthafa.
    Hinn 17. mars 2009 skipaði ráðherra Viðar Lúðvíksson hæstaréttarlögmann sem umsjónaraðila yfir Kili lífeyrissjóði, Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands og Eftirlaunasjóði Félags íslenskra atvinnuflugmanna (EFÍA), eftir umsögn og tillögur frá Fjármálaeftirlitinu. Bar umsjónaraðila að skila tillögum fyrir 1. júlí s.á. og í samræmi við 2. mgr. 46. gr. laganna skyldu stjórn og framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins víkja frá störfum þann tíma sem umsjónaraðili starfaði. Hinn 30. júní s.á. lagði umsjónaraðili fram skýrslur um tvo fyrrnefndu sjóðina en skýrslu um EFÍA hinn 10. júní að loknum ársfundi sjóðsins þar sem gert var ráð fyrir að stjórn og framkvæmdastjóri tækju á ný við réttindum sínum og skyldum við yfirstjórn og rekstur EFÍA. Í skýrslunum er gerð grein fyrir álitaefnum sem upp komu á skipunartímanum, ábendingum um úrbætur og störfum hans fyrir sjóðina.
    Hinn 17. mars 2009 skipaði ráðherra einnig umsjónaraðila yfir Íslenska lífeyrissjóðnum og Lífeyrissjóði Eimskipafélags Íslands II, eftir umsögn og tillögur frá Fjármálaeftirlitinu. Umsjónaraðili yfir þessum tveimur lífeyrissjóðum var skipuð Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður. Bar umsjónaraðila að skila tillögum fyrir 1. júlí s.á. og í samræmi við 2. mgr. 46. gr. laganna skyldu stjórn og framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins víkja frá störfum þann tíma sem umsjónaraðili starfaði. Gildistími erindisbréfs umsjónaraðila var síðan framlengdur til 1. október s.á. Í skýrslu umsjónarmanns til ráðherra, dags. 30. október, taldi hún að Íslenski lífeyrissjóðurinn væri vel fær um að starfa áfram og ekki væri þörf á því að leggja til neinar frekari breytingar en þegar höfðu verið gerðar á skipulagi hans. Hins vegar lagði umsjónaraðili til um Lífeyrissjóð Eimskipafélags Íslands II að þar sem sjóðurinn uppfyllti ekki lengur ákvæði laga um starfsemi lífeyrissjóða skyldi honum slitið í samræmi við 3. mgr. 47. gr. laganna og skipuð skilanefnd til að annast framkvæmd slitanna. Hér var um að ræða fámennan lífeyrissjóð með innan við tíu sjóðfélaga, en skv. 21. gr. laga nr. 129/1997 skulu að jafnaði minnst 800 sjóðfélagar greiða iðgjöld til lífeyrissjóðs nema hann tryggi áhættudreifingu vegna skuldbindinga sinna með öðrum hætti. Samkvæmt gildandi samþykktum sjóðsins frá árinu 2000 bar Eimskipafélag Íslands hf. ábyrgð á öllum skuldbindingum hans. Sú ábyrgð færðist síðar yfir á Landsbanka Íslands hf. og Straum-Burðarás Fjárfestingarbanka hf. Hinn 11. febrúar 2010 skipaði ráðherra skilanefnd til að sjá um slit á sjóðnum. Í nefndina voru skipuð Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður og tveir sérfræðingar í fjármálaráðuneytinu. Hinn 22. júní s.á. gerði nefndin grein fyrir því að sjóðurinn hefði sameinast Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda frá og með 1. janúar 2010 og gert væri ráð fyrir að sjóðfélagar yrðu fyrir óverulegri skerðingu á lífeyrisréttindum sínum.
    Hinn 19. júní 2009 skipaði ráðherra Elínu Jónsdóttur lögfræðing umsjónaraðila Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar eftir umsögn og tillögur frá Fjármálaeftirlitinu. Gildistími erindisbréfs umsjónaraðila var síðan framlengdur til 1. september s.á. Bar umsjónaraðila að skila tillögum og í samræmi við 2. mgr. 46. gr. laganna skyldu stjórn og framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins víkja frá störfum þann tíma sem umsjónaraðili starfaði. Starf umsjónaraðila leiddi til þess að gerðar voru breytingar á samþykktum fyrir lífeyrissjóðinn. Þær tillögur voru sendar Fjármálaeftirlitinu til umsagnar í samræmi við 28. gr. laga nr. 129/1997. Fjármálaeftirlitið gerði ekki athugasemdir við þær tillögur og voru þær staðfestar af fjármálaráðuneytinu. Þær tillögur fólu m.a. í sér að breytt yrði framkvæmd á skipan stjórnar sjóðsins og skyldu þær miða að því að gera stjórn sjóðsins óháðari bæjarstjórn Kópavogs. Bæjarstjóri Kópavogsbæjar yrði ekki lengur sjálfkjörinn stjórnarformaður heldur yrði skipaður óháður oddamaður. Jafnframt var gerð breyting á framkvæmd fjárfestingarstefnu og kveðið á um verkferla og sérstakar reglur um lán til sjóðfélaga, auk þess sem iðgjald til sjóðsins var hækkað til samræmis við 2. gr. laga nr. 129/1997.