Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 696. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1533 — 696. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um fjárfestingar lífeyrissjóða.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig samræmist fjárfesting 16 lífeyrissjóða í Framtakssjóði Íslands lögum um fjárfestingar lífeyrissjóða, nr. 129/1997, en í VII. kafla þeirra laga er tilgreint í hverju lífeyrissjóðir mega fjárfesta?
Lífeyrissjóði er heimilt að eiga allt að 20% af hlutafé í samlagshlutafélögum með vísan til ákvæðis til bráðabirgða VII í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sbr. lög nr. 171/2008 og lög nr. 130/2009. Í bráðabirgðaákvæðinu er veitt undanþága frá ákvæði 4. málsl. 5. mgr. 36. gr. laganna þegar fjárfesting í samlagshlutafélögum, þ.m.t. Framtakssjóði Íslands slhf., er annars vegar. Heimildin gildir til 31. desember 2013. Þó er lífeyrissjóði heimilt að halda allt að 20% eignarhlut í félögum sem þeir hafa fjárfest í fram yfir umrætt tímamark en nýjar fjárfestingar eða nýjar skuldbindingar í slíkum félögum eftir það lúta almennri reglu 4. málsl. 5. mgr. 36. gr. laganna.
Umrætt bráðabirgðaákvæði var fært í lög að tillögu meiri hluta efnahags- og skattanefndar en í nefndaráliti meiri hlutans kemur fram að tilgangur ákvæðisins sé sá að gera lífeyrissjóðunum kleift að taka þátt í stofnun samlagshlutafélags um endurreisn atvinnulífsins.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1533 — 696. mál.
Svar