138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1536 — 699. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur um þátttöku í samstarfsáætlunum Evrópusambandsins.
1. Hvert er umfang þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi á sviði rannsókna og tækniþróunar, nýsköpunar, menntunar og menningar sem er til komið sérstaklega vegna aðildar Íslands að EES-samningnum?
Það hafa engar rannsóknir verið gerðar á umfangi þátttökunnar og tölulegar upplýsingar eru af skornum skammti. Það er fyrst á árunum 2000 / 2001 sem framkvæmdastjórn ESB fer að safna og flokka upplýsingar um styrkþega, fjárhæðir styrkja o.fl. með það fyrir augum að birta þær almenningi og í sumum tilvikum síðar. Aðeins eru örfá ár síðan hægt var að sjá á vef sambandsins lista yfir styrkþega. Þetta á þó ekki að öllu leyti við um rannsóknaáætlanirnar (RÁ) en á hinn bóginn hefur t.d. ekki fyrr en á síðustu árum verið kannað hve margir þátttakendur eru í hverju verkefni sem undir þær falla. Af því leiðir að það verður að áætla fjöldann. Tölur síðustu ára gefa engu að síður mikilvægar vísbendingar um umfangið. Árið 2009 var hlutur Íslendingar í fjárhagsáætlun EES/EFTA um 8,7 millj. evra en til verkefna á forræði Íslendinga runnu um 11,2 millj. evra. Verkefnin voru rúmlega 200 og þátttakendur yfir 2000. Þó eru ekki taldir nemendur í grunn- og framhaldsskólum, sem taka þátt í verkefnum sem styrkt eru af ESB en árlega hafa þeir verið um 4.500–6.000. Talið er að meira en 90% allra grunn- og framhaldsskóla landsins hafi tekið þátt í ESB-verkefnum á sl. 15 árum. Í sumum tilvikum virðist árangurinn slakur, t.d. í menningaráætluninni en við nánari skoðun sést að þátttaka er talsverð en verkefnin eru á forræði annarra og því ekki í þeim tölum sem hér eru kynntar. Þetta á við um flestar áætlanir, þó sérstaklega menningarmál og rannsóknir.
Mennta- og æskulýðsáætlanirnar hafa sérstöðu því fénu er úthlutað hér á landi. Um 85% af ráðstöfunarfé þessara áætlana er ráðstafað í aðildarríkjunum og afgangurinn fer í stór verkefni með þátttakendum frá mörgum ríkjum eða aðgerðir og verkefni, sem snerta öll ríkin. Þátttaka í þessum „miðstýrðu“ verkefnum hefur verið lítil af Íslands hálfu. Um menningaráætlunina, Media (kvikmynda- og sjónvarpsgerð o.þ.h.) og RÁ gildir að fénu er úthlutað í Brussel. Það hefur staðið þátttöku fyrir þrifum í mörgum tilvikum að íslenskir aðilar hafa ekki bolmagn til að fjármagna sinn hluta verkefnanna, sem getur verið talsverður.
Tölulegar upplýsingar um umfang og þátttöku eru mörgum fyrirvörum háðar, einkum er varðar fjölda verkefna og þátttakenda. Verkefni geta staðið frá nokkrum dögum til margra ára og það segir lítið að bera saman 50 þátttakendur á vikulangri danshátíð við þrjá vísindamenn sem vinna að verkefni í þrjú ár. Hér gildir hið framansagða að tölurnar gefa vísbendingar. Umfangið snýst einnig um áhrifin af þátttökunni, hvaða þekkingarauð hún skapar og hvaða sambönd myndast. Þá skiptir reynslan og hæfnin til að eiga í faglegum samskiptum við fólk frá öðrum þjóðum einnig máli í þessu samhengi. Eina leiðin til að meta það er með sérstökum rannsóknum.
Varlega má áætla að yfir 20 þúsund einstaklingar hafi tekið beinan þátt í verkefnum, sem falla undir samstarfsáætlanir ESB í menningarmálum, menntamálum, vísindum og rannsóknum. Fjöldi nemenda á lægri skólastigum er 40–60 þúsund. Á árunum 2002–2009, að báðum meðtöldum, voru aðildargjöldin 43,6 millj. evra og styrkir til íslenskra verkefna um 80 millj. evra.
2. Hefur verið unnið mat á árangri og áhrifum af þátttöku Íslendinga í samstarfsáætlunum Evrópusambandsins og ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þess?
Upplýsinga- og landsskrifstofur menntaáætlunar, æskulýðsáætlunar, menningaráætlunar og Media gera skýrslur árlega um starfsemina. Þetta eru þó ekki matsskýrslur og gefa einkum tölulegar upplýsingar og lýsingu á starfsemi skrifstofanna í sumum tilvikum. Gerð var úttekt á árangri í 4. rammaáætluninni um rannsóknir árið 1999 en engin sambærileg úttekt hefur verið gerð síðan. Í fréttatilkynningu mennta- og menningarmálaráðuneytis um úttektina sagði m.a.: „Í niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að íslenskir vísinda- og tæknimenn hafa tekið virkan þátt í evrópskum samstarfsverkefnum innan fjórðu rammaáætlunar ESB. Almennt hefur samstarfið gengið vel, bæði við undirbúning umsókna og síðar við framkvæmd verkefna. Árangur birtist aðallega í aukinni hæfni starfsfólks og nánari tengslum við skóla og fyrirtæki í Evrópu. Hins vegar hefur samstarfið ekki skilað sýnilegum árangri í þróun nýrra aðferða eða afurða en enn er unnið að mörgum verkefnanna. Fram kemur að kynningu á tækifærum til samstarfs vegna rammaáætlana ESB þarf að efla. Sérstaklega er mikilvægt að sníða hana að þörfum ólíkra hópa, svo sem fyrirtækja, háskóla og rannsóknastofnana. Byggja þarf upp gagnagrunn um íslensk samstarfsverkefni og halda upplýsingum betur til haga og gera þær aðgengilegar fyrir greiningu og úttektir.
Ljóst er að með aðgangi að rammaáætlunum ESB hefur verið opnaður nýr markaður fyrir hugmyndir og hugvit þar sem Íslendingar geta látið að sér kveða í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi. Reynslan af 4. rammaáætluninni sýnir jafnframt að vinna þarf með markvissari hætti að því að nýta niðurstöður rannsókna Íslendinga sem best í hagnýtum tilgangi.“
Í þessu sambandi má geta að Vísinda- og tækniráð hefur lagt til að úttektum af þessu tagi yrði framhaldið en fjármagn hefur skort til þess.
Framkvæmdastjórn ESB metur áætlanirnar reglulega. Á þessu ári var t.d. birt úttekt og mat á framkvæmd menntaáætlunarinnar á Íslandi á árunum 2007–2009. Heildarniðurstaðan er að þátttakendur eru ánægðir og telja sig hafa gagn af þátttökunni. Einkum lofa þeir að hafa fengið tækifæri til að hitta erlenda nemendur og samstarfsmenn enda gefi það miklu meira af sér en samskipti með rafrænum hætti. Einnig er tekið fram að talið er að samstarfið hafi haft jákvæð áhrif á þróun menntamála á Íslandi, t.d. hvað varðar starfsmenntun o.þ.h. Niðurstöður sambærilegrar úttektar á æskulýðsáætluninni (EUF, Evrópa unga fólksins) fyrir sama tímabil leiðir í ljós að þátttakendur telja sig hafa lært mikið af þátttöku í verkefnum og reynsla komi þeim til góða í framtíðinni, hvort heldur er varðar erlend samskipti eða störf innanlands. Í skýrslunni segir m.a. „Í könnun sem framkvæmdastjórn ESB lét framkvæma meðal þátttakenda í áætluninni nýverið kom fram að fjölmargir þátttakendur telja ýmsa færni sína hafa aukist mikið með þátttöku í verkefnum innan EUF og tveir þriðju þátttakenda telja atvinnumöguleika sína hafa aukist vegna þátttöku í verkefnum. Víðari samfélagsleg áhrif af áætluninni umfram kjarnamarkmið hennar er ekki auðvelt að mæla, svo sem áhrif á annað óformlegt nám og æskulýðsstarf. Ljóst er að hið mikla starf sem unnið er í tengslum við áætlunina skilar sér sem almenn þekking ungs fólks um óformlegt nám og æskulýðsstarf, hvort sem viðkomandi tekur þátt í EUF eða ekki. Sama má segja um innlenda æskulýðsstefnu og venjur, en hvort tveggja nýtur þeirrar ímyndar sem EUF skapar í starfi sínu með ungu fólki.“
3. Hversu margir íslenskir aðilar hafa fengið styrki úr helstu samstarfsáætlunum Evrópusambandsins á sviði rannsókna, tækniþróunar, nýsköpunar, náms eða menningarstarfs (vegna kvikmyndagerðar, bókmennta, þýðinga, tónlistar o.s.frv.) frá gildistöku EES- samningsins?
Sjá töflu 1. Eins og að framan greinir er lítið um tölulegar upplýsingar. Í þessu efni er vandinn fólginn í að skilgreina hvað er átt við aðila og hér er því valið að telja verkefni í trausti þess að einn aðili standi á bak við hvert þeirra. Verkefnin eru á hinn bóginn afar mismunandi, allt frá kynnisferð einstaklings til margra ára rannsóknaverkefna. Í töflunni er reynt að fá yfirlit yfir aðila/verkefni, sem hægt er að bera saman en því miður aðeins árin 2006–2009 en það gefur engu að síður vísbendingar um árlegan fjölda, sem er um eða yfir 200 á ári. Tölur frá fyrri tíma reyndust ófullnægjandi og ekki samanburðarhæfar, m.a. vegna breytinga á fyrirkomulagi og áherslum hjá einstaka áætlunum.
4. Hvert er heildarumfang þessara styrkja og hversu mikið hafa Íslendingar þurft að greiða í aðildargjöld vegna þátttöku í þessu samstarfi?
Sjá töflu 2. Í fyrri hluta hennar eru upplýsingar um aðildargjöld vegna EES samningsins frá árinu 2002 til 2009, að báðum meðtöldum, og er þeirra getið í evrum til að fá sambærilegar tölur. Upplýsingar um gjöld frá 1994 til 2001 eru ekki aðgengilegar en verða sendar Alþingi um leið og þær berast frá skrifstofu EFTA í Brussel. Samanburður við fyrstu fimm árin, frá og með 1998, er þó vandmeðfarinn því evran var fyrst notuð árið 1999.
Í seinni hluta töflunnar eru upplýsingar um styrki frá 1994 til 2009 nema fyrir æskulýðsáætlunina og rannsóknaráætlanir, þar sem ekki reyndist unnt að fá upplýsingar um allt tímabilið. Vakin er athygli á að rannsóknaáætlanir eru gerðar upp í lok hvers tímabils og því er styrkfjárhæðum dreift jafnt yfir hvert þeirra.
Aðildargjöld árin 2002–2009 voru 43.066.726 evrur, styrkir á sama tímabili 80.931.656 evrur. Heldur hefur dregið saman á síðustu árum milli aðildargjalds og styrkveitinga og skýrist það m.a. af auknum fjölda aðildarríkja og þar með meiri samkeppni og hins vegar að stefnan hefur verið hjá ESB að fækka verkefnum og stækka þau jafnframt. Það gerir smáum þjóðum erfiðara fyrir.
5. Hversu stór hluti samstarfsverkefna sem notið hafa styrkja úr áætlunum Evrópusambandsins hefur verið undir forustu Íslendinga?
Ekki reyndist unnt að fá tæmandi upplýsingar í þessu efni en til að gefa vísbendingu má geta þess að á yfirstandandi ári fær menntaáætlunin á Íslandi um 0,3% af þeirri heildarfjárhæð sem þátttökuríkin fá til að úthluta og æskulýðsáætlunin fær um 0,7%. Í báðum tilvikum er fjárhæðin hærri en ef farið væri strangt eftir fólksfjölda eða þjóðarframleiðslu. Íslensk verkefni vegum Media-áætlunarinnar fengu um 0,28% af heildarframlagi. Það sem af er 7. rannsóknaráætluninni er útlit fyrir að um 0,1–0,15% hafi runnið til íslenskra verkefna. Enn er verið að greiða til verkefna, sem stofnað var til á vegum 6. áætlunarinnar og því er endanlegt uppgjör ekki komið.
6. Hversu margir einstaklingar á Íslandi hafa með beinum hætti notið góðs af samstarfsáætlunum Evrópusambandsins eftir að Ísland gerðist aðili að EES-samningnum árið 1993?
Á tímabilinu 2001–2009 tóku meira en 15 þúsund manns þátt í verkefnum á vegum samstarfsáætlana ESB á sviðum er heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti. Tölur um fjölda þátttakenda í sumum áætlunum liggur fyrir, í öðrum tilvikum er fjöldinn metinn út frá fyrirliggjandi upplýsingum um eðli verkefnanna. Ef miðað er við góðan árangur í menningar- og Mediaáætlununum frá upphafi og fram til 2000 (sjá töflur) liggur fyrir að heildarfjöldinn er ekki undir 20 þúsund manns frá árinu 1994 til 2009. Við þann fjölda bætast nemendur í grunn- og framhaldsskólum eins og að framan greinir. Hér eru ekki taldir þeir sem taka þátt í verkefnum sem eru á forræði annarra þjóða nema í örfáum tilvikum (þegar stór hluti verkefnisins fer fram hér á landi) og það styrkir þá niðurstöðu að heildarfjöldi þeirra, sem með beinum hætti hafa notið góðs af samstarfsáætlunum Evrópusambandsins sé um eða yfir 20 þúsund.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Viðauki:
Hér á eftir eru súlurit úr skýrslunni „Tækifæri til sóknar“ – Skýrsla starfshóps um þátttöku Íslands í alþjóðlegum samstarfsáætlunum.
Mynd 1. Fjöldi umsókna, samþykktra verkefna og íslenskra þátttakenda
eftir tímabilum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Athugið að 4.–6. rammaáætlanir voru fjögurra ára áætlanir en einunigs eru liðin þrjú ár af 7. RÁ (2007–2013). Tölur fyrir 7. RÁ hafa ekki verið leiðréttar þannig að árleg sókn er að aukast. Hversu mikið er þó erfitt að segja því ekki er allar undiráætlanir með umsóknarfresti á hverju ári og því líklegt að sóknin verði ekki alveg jöfn út alla áætlunina.
Mynd 2. Árangurshlutfall umsókna með íslenskri þátttöku.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 3. Þróun í fjölda og umfangi verkefna eftir áætlunum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tölur fyrir 7. RÁ eru leiðréttar þar sem einungis eru komin þrjú ár af áætluninni en fyrri áætlanir voru allar til fjögurra ára. M.v. árangurinn fyrstu þrjú árin í 7. RÁ hefur sú þróun stöðvast að verkefnum fækki og þau stækki og kann góður árangur í mannauðsáætluninni að hafa þar nokkur áhrif, en í þar er í sumum tilfellum um styrki til einstaklinga að ræða.
Mynd 11. Styrkir til Íslands frá Menntaáætlun ESB 1995–2009 (í evrum) .
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 12. Fjöldi styrkþega í menntaáætlun ESB 1995-2009.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 14. Styrkir úr miðla, menningar- og æskulýðsáætlunum ESB (í evrum).
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.