Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 10. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 10 —  10. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, með síðari breytingum.

Flm.: Sigurður Kári Kristjánsson, Ólöf Nordal, Birgir Ármannsson,


Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Jón Gunnarsson, Tryggvi Þór Herbertsson,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Pétur H. Blöndal.


1. gr.

    2. mgr. 165. gr. laganna orðast svo:
    Strax eftir dómtöku máls skulu dómarar ræða með sér fyrir luktum dyrum röksemdir og niðurstöðu dóms. Fyrir málflutning felur forseti einum dómara að vera frummælandi á þeim fundi en forseti stýrir þar ráðagerðum, ber fram spurningar, stuðlar að því að álit hvers dómara komi þar sem skýrast fram og telur atkvæði þeirra. Afl atkvæða ræður úrslitum. Ef meiri hluti er fyrir röksemdum og niðurstöðu frummælanda semur hann atkvæði að dómi. Sé frummælandi í minni hluta skulu þeir dómarar sem mynda meiri hluta ákveða hver þeirra skuli semja atkvæði að dómi. Dómarar skulu staðfesta atkvæði sitt skriflega, eftir atvikum með athugasemdum við forsendur. Þeir sem ekki eru sammála meiri hluta dómara skila sératkvæði. Við birtingu dóma skal koma fram hver samið hafi dómsatkvæði, þegar fleiri en einn eiga aðild að því. Atkvæði annarra dómara skulu einnig birt ásamt forsendum þeirra. Dómari sem greiðir atkvæði með ómerkingu héraðsdóms eða frávísun máls og verður í minni hluta verður einnig að greiða atkvæði um efni máls. Dómarar ganga í sameiningu frá dómi með eða án sératkvæða.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta var lagt fram á 138. löggjafarþingi en var ekki afgreitt og er það því endurflutt.
    Með frumvarpinu er lagt til að gerð verði breyting á því ákvæði laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991, með síðari breytingum, sem mælir fyrir um með hvaða hætti dómarar við Hæstarétt Íslands skuli standa að því að semja hæstaréttardóma og hvernig staðið skuli að birtingu þeirra.
    Rík krafa hefur verið uppi í samfélaginu um aukið gagnsæi í störfum helstu valdastofnana samfélagsins. Hefur sú krafa magnast á síðustu missirum, ekki síst í kjölfar þess að rannsóknarnefnd Alþingis birti skýrslu sína. Með frumvarpi þessu er reynt að koma til móts við þá kröfu að því er dóma Hæstaréttar Íslands varðar. Samkvæmt núverandi skipan kemur fram í dómum Hæstaréttar Íslands hvaða dómarar við réttinn hafa dæmt í málum hverju sinni. Að undanskildum sératkvæðum dómara við dómsniðurstöður bera dómar Hæstaréttar Íslands hins vegar ekki með sér hver þeirra dómara samdi dóminn. Með frumvarpinu er úr þessu ógagnsæi bætt og lagt til að í dómum Hæstaréttar verði birt hvaða dómari við réttinn semur dóm hverju sinni, dómarar staðfesti atkvæði sín skriflega og þeim heimilað að gera skriflegar athugasemdir við dómsforsendur telji þeir ástæðu til.
    Með breytingunni eykst gagnsæi í dómstörfum við Hæstarétt Íslands og þeim sem dómana lesa verður gert kleift að kynna sér hvaða dómari samdi dóm hverju sinni auk þess sem viðhorf einstakra dómara til sakarefnis máls hverju sinni verða aðgengilegri en þau eru nú. Þá eykur meira gagnsæi aðhald þeirra sem utan réttarins standa gagnvart dómurum Hæstaréttar og veitir þeim betra tækifæri til þess að tjá sig um og greina dómsniðurstöður. Auk þess verður að ætla að breytingin stuðli að því að auka persónulega ábyrgð einstakra dómara á dómsniðurstöðu. Einnig má gera ráð fyrir að textar í dómum verði skýrari þar sem ekki verður jafn rík ástæða og nú til að bræða saman í texta dóma sjónarmið einstakra dómara en slíkt er stundum til þess fallið að gera merkinguna óskýra. Má finna augljós dæmi úr sögu réttarins um slíkt. Nærtækt dæmi sem nefna má í því sambandi er dómur Hæstaréttar frá 19. desember 2000 í máli nr. 125/2000, Tryggingastofnun ríkisins gegn Öryrkjabandalagi Íslands, sem í daglegu tali er nefndur öryrkjadómurinn. Forsendur og niðurstöður Hæstaréttar Íslands í því máli þóttu svo óljósar og óskýrar að þáverandi forseti Alþingis skrifaði forseta Hæstaréttar Íslands bréf til þess að fá útskýringar frá réttinum um hvað í dómi hans fælist. Jafnframt var skipuð sérstök nefnd sem fengið var það hlutverk að greina dóminn og þýðingu hans.
    Samkvæmt núgildandi lögum mælir 1.–3. málsl. 2. mgr. 165. gr. laganna fyrir um að dómarar skuli strax eftir dómtöku máls ræða með sér fyrir luktum dyrum röksemdir og niðurstöðu dóms. Fyrir málflutning skuli forseti dómsins fela einum dómara á þeim fundi að hafa framsögu en forseti stýri þar ráðagerðum, beri fram spurningar, stuðli að því að álit hvers dómara komi þar sem skýrast fram og telji atkvæði þeirra. Þá mælir ákvæðið svo fyrir að afl atkvæða ráði úrslitum dómsmáls. Ekki er lagt til að á þessu verði gerð breyting.
    Með frumvarpi þessu er hins vegar lagt til að í stað 4. og 5. málsl. 2. mgr. 165. gr. laganna komi sex nýir málsliðir þar sem lögð er til breyting á núgildandi skipan varðandi það með hvaða hætti hæstaréttardómarar skuli standa að því að semja hæstaréttardóma og hvernig staðið skuli að birtingu þeirra.
    Í 4. og 5. málsl. 2. mgr. 165. gr. gildandi laga er mælt fyrir um að forseti dómsins skuli að lokinni umræðu fela frummælanda úr röðum dómara að semja atkvæði að dómi. Þá segir að greinist dómarar í meiri og minni hluta semji frummælandi atkvæði fyrir þann hluta sem hann heyrir til, en hinir dómararnir ákveði hver þeirra semji atkvæði þeirra.
    Í stað þess fyrirkomulags sem núgildandi málsliðir mæla fyrir um er í fyrsta lagi lagt til að ef meiri hluti dómara er fyrir röksemdum og niðurstöðu frummælanda þá skuli hann semja atkvæði að dómi. Sé frummælandi hins vegar í minni hluta skuli þeir dómarar sem mynda meiri hluta ákveða hver þeirra skuli semja atkvæði að dómi. Dómarar skuli þá staðfesta atkvæði sitt skriflega og eftir atvikum með athugasemdum við forsendur. Þeir dómarar sem ekki eru sammála meiri hluta dómara skila sératkvæði.
    Í annan stað mælir frumvarpið fyrir um að við birtingu dóma skuli koma fram hvaða dómari hafi samið dómsatkvæði, þegar fleiri en einn eiga aðild að því. Atkvæði annarra dómara skuli einnig birt ásamt forsendum þeirra fyrir niðurstöðu sinni.
    Eftir sem áður gerir frumvarpið ráð fyrir að dómari sem greiðir atkvæði með ómerkingu héraðsdóms eða frávísun máls og verður í minni hluta verði einnig að greiða atkvæði um efni máls og að dómarar skuli ganga í sameiningu frá dómi með eða án sératkvæða. Því er ekki lögð til breyting á 6. og 7. málsl. núgildandi 2. mgr. 165. gr.
    Verði núgildandi skipan um með hvaða hætti dómarar við Hæstarétt Íslands skuli standa að því að semja hæstaréttardóma og hvernig staðið skuli að birtingu þeirra breytt með þeim hætti sem frumvarp þetta mælir fyrir um verður hún færð nær því sem tíðkast m.a. hjá hæstarétti Noregs, hæstarétti Bandaríkjanna og hjá Mannréttindadómstól Evrópu.
    Gert er ráð fyrir að frumvarpið taki gildi um leið og það hefur verið samþykkt sem lög frá Alþingi.
    Verði frumvarpið samþykkt leiðir það ekki til kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.