Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 26. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 26  —  26. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hvernig var staðið að samþykkt íslenskra stjórnvalda á þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins?
     2.      Var málið borið upp og rætt í ríkisstjórn og standa allir ráðherrar að samþykktinni?
     3.      Var málið borið upp og rætt í þingflokkum stjórnarflokkanna og var gengið úr skugga um að áætlunin nyti stuðnings þingflokka stjórnarflokkanna og þar með meiri hluta Alþingis?