Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 30. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 30  —  30. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skattrannsóknir og skatteftirlit.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hver var heildarhækkun á opinberum gjöldum árlega á tímabilinu 2000–2009 í kjölfar skattrannsókna og skatteftirlits, sundurliðað eftir lögaðilum, einstaklingum og tegundum skattsvika? Hve hátt hlutfall er það af skatttekjum og áætluðum skattsvikum og hver er hlutur stórfyrirtækjaeftirlits ríkisskattstjóra?
     2.      Hver var árlegur fjöldi mála hjá skattyfirvöldum á tímabilinu 2000–2009, sundurliðað eftir uppruna, afgreiðslu og embættum (a. skattrannsóknarstjóra ríkisins, b. ríkisskattstjóra, skattstjórum og stórfyrirtækjaeftirliti, c. yfirskattanefnd)?
     3.      Hversu mörgum málum frá umræddu tímabili er ólokið hjá skattrannsóknarstjóra og um hvaða fjárhæðir er þar að ræða?
     4.      Hvað störfuðu margir (stöðugildi) við skatteftirlit og skattrannsóknir árlega 2000–2009?
     5.      Að hverju hafa skatteftirlit og skattrannsóknir helst beinst á árunum 2000–2009, þ.e. í hve miklum mæli:
              a.      að fjármálafyrirtækjum og fjármálastofnunum (bönkum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, eignarleigufyrirtækjum og öðrum fjármálastofnunum, lögmönnum, löggiltum endurskoðendum og öðrum fjárvörsluaðilum, tryggingafélögum, lífeyrissjóðum o.s.frv.),
              b.      að svonefndum skattaparadísum,
              c.      að skilum á fjármagnstekjuskatti,
              d.      að ólöglegum frádráttarliðum,
              e.      að skatti af hlutabréfakaupum stjórnenda og starfsmanna (þ.e. með svokölluðum kúlulánum),
              f.      að hlunnindum og eigin neyslu forsvarsmanna sem færð er á rekstur fyrirtækisins?
     6.      Hvað hafa verið kveðnir upp margir dómar í skattsvikamálum á tímabilinu 2000–2009? Hversu mörgum málum lauk með sektarúrskurði hjá yfirskattanefnd og hversu mörgum með sektarmeðferð hjá skattrannsóknarstjóra (frá 2006)? Óskað er sundurgreiningar eftir tegundum skattsvika.
     7.      Hvað hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins rannsakað mörg mál þar sem um hefur verið að ræða vanskil á fjármagnstekjuskatti á umræddu tímabili? Hve háar fjárhæðir voru í vanskilum í þeim tilvikum og hve mikið hefur innheimst?
     8.      Hver er ábyrgð löggiltra endurskoðenda vegna rangra skila og rangra upplýsinga, af ásetningi eða af gáleysi? Eru dæmi um að löggiltir endurskoðendur hafi á umræddu tímabili sætt refsingu vegna brota á skattalögum?


Skriflegt svar óskast.