Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 31. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 31  —  31. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um hlutdeild Íslendinga í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvað eiga íslenskir einstaklingar og lögaðilar mikið í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum? Hver eru fyrirtækin, hvar starfa þau, hver er hlutur Íslendinga í þeim, hvenær eignaðist íslenski aðilinn fyrst hlut í fyrirtækinu og hvers virði er heildarhlutur Íslendinga í fyrirtækjunum talinn?
     2.      Hver eru tuttugu umsvifamestu fyrirtækin að fjórðungi eða meira í eigu Íslendinga (velta) og hverjir eru tuttugu helstu eigendur erlendra sjávarútvegsfyrirtækja hérlendis (miðað við veltu fyrirtækis og hlut)?


Skriflegt svar óskast.